„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ísbílstjórinn Jón Ísak lifir ævintýralífi: „Þarf að rífast við einbúann svo hann kaupi ís“

Ísbílstjórinn Jón Ísak lifir ævintýralífi: „Þarf að rífast við einbúann svo hann kaupi ís“
Jón Ísak er ísbíl­stjóri sem krussar landið þvert og endi­langt. Mynd: Reynir Traustason

„Það eru eig­in­lega bara furðu­fuglar sem vilja ekki fá ísbíl­inn í heim­sókn,“ segir Jón Ísak Ragn­ars­son, einn reynd­asti ísbíl­stjóri lands­ins, sem ekur landið þvert og endi­langt og selur ís og fisk­meti. Hann var í ferð númer tvö í Árnes­hreppi um mán­að­ar­mótin. Þá var hann svo stál­hepp­inn að fólk á tjald­svæði Ferða­fé­lags Íslands á Val­geirs­stöðum keypti af honum tvö íspinna og bauð honum að snæða með sér humar­súpu.

Ísbíllinn valt

Jón Ísak er ætt­aður frá Vest­manna­eyjum. Hann ekur einum af 12 ísbílum lands­ins sem þvæl­ast upp um allar sveitir, þorp og bæi. Og ísbíll­inn fer meira að segja til Vest­manna­eyja.

„Það voru 13 ísbílar á ferð­inni um landið í fyrra en svo valt einn þeirra og það tók því ekki að gera við hann. Þetta er þriðja sum­arið mitt og ég er orð­inn einn af þeim sjó­uð­ustu hjá fyru­ir­tæk­inu. Mín sér­grein er Vest­firðir. Þetta er gefadi starf og maður er stöðugt að hitta skemmti­legt fólk. Í sein­ustu ferð minni hitt ég skemmti­legan náunga sem reynd­ist vera nafni minn. Við erum meira að segja báðir skírðir Jón Ísak, eftir öfum okkar en erum ekk­ert skyldir,“ segir Jón Ísak og hlær.

Hann er spurður um bestu við­skipta­vin­ina.

„Skemmti­leg­asta fólkið er það sem býður manni í humar­súpu,“ segir hann, hlær og fær sér skeið af súpu og dæsir af vel­þóknun. Jón Ísak ætlar ekki að gera starfið sem ísbíl­stjóri að ævi­starfi. Hann er búinn að skrá sig í sagn­fræði og ætlar að leggja það fyrir sig. Reynslan af heim­sóknum um landið hjálpar honum í þeim efnum. Hann safnar sögum í sarp­inn.

„Bænd­urnir hafa sér­stak­lega gaman að því að segja mér sögur af búskapnum og úr veit­inni. Sumir eru orðnir góðir kunn­ingjar mínir. Þetta er ævin­týra­starf“.

Jón Ísak á að baki far­sælan feril sem ísbíl­stjóri og engin sér­stök áföll að baki.

„En ég brenndi að vísu kúp­ling­una í síð­ustu ferð. Ég náði að hökta til Reykja­víkur. Um pásk­ana fór ég á Vest­firði og þá mátti minnstu muna að illa færi. Ég var að aka um Dalina og van­mat hálk­una. Það var skaf­renn­ingur, tals­verður vindur, og bíll­innn tók að rása á 90 kíló­metra hraða. Bíllinn missti gripið í beygj­unni. Sem betur fór hélt ég ró minni og náði tökum á ástand­inu og slapp með skrekk­inn“.

Jón Ísak er ísbíl­stjóri sem krussar landið þvert og endi­langt.

Rifist við einbúa

Jón Ísak seg­ist hitta marga merki­lega kvisti á ferðum sínum. Einbúi nokkur á Suð­ur­landi er honum sér­stak­lega minn­is­stæður.

„Maður hittir alls­konar skraut­legt fólk og skrýtið. Stundum heim­sæki ég ein­búa sem búa afskekkt og kaupa af mér ís en vilja líka spjalla og bjóða upp á kaffi. Einn slíkur býr á Suð­ur­landi. Hann er inn­múr­aður Mið­flokks­maður og vill fá að ríf­ast við mann. Og magnið í ískaup­unum ræðst af því hve harðar deil­urnar eru. Það er auð­velt að ríf­ast við hann og ég græði vel á þeim heim­sóknum. Hann er gjarnan hæstá­nægður með að fá að tappa af sér,“ segir Jón Ísak.

Krakkar, krakkar, ísbíllinn er kominn

Við tölum um apr­ílgabb yfir humar­súp­unni í hús­bílnum á Val­geirs­stöðum. Sagan af móð­ur­inni frá Eski­firði er rifjuð upp. Börnin hennar fjögur voru sof­andi á koddum sínum þann 1. apríl þegar brast á með bjöllu­hljómi eins og þeim sem ísbíll­inn gefur frá sér. Móðirin kall­aði hátt.

„Krakkar, krakkar, ísbíll­inn er kom­inn. Börnin, á aldr­inum 3 til 10 ára, þustu á nátt­klæð­unum einum út á götu en þar var ekkkert að sjá nema brodd­skitugulan Toyota Yaris. Að baki þeirra stóð móð­irin í dyr­unum og engd­ist sundur og saman af hlátri, með klingj­andi bjöllu í hend­inni. Jón Ísak hló og kann­að­ist vel við gleði bless­aðra barn­anna þegar hann rennir hlað með bjöllu­hljómi. Tekið skal fram að móð­irin í sög­unni er alla­jafna afskap­lega góð við börnin sín en með afar sér­stæðan húmor.

Kröfuharðir viðskiptavinir

Við­skipta­vinir Jóns Ísaks eru kröfu­harðir. Þegar eitt­hvað er að vör­unni þarf að gefa afslátt og láta skaða­bætur

„Stundum er maður hund­skammaður ef ísinn stenst ekki allar gæða­kröfur. Þetta er algeng­ast með eina ónefnda ísteg­und. Það er allur gangur á því hvernig ástandið er á þeirri vöru. Ef þeir hafa bráðnað þurfum við að gefa nýjan kassa í skaða­bætur“.

Pakksaddur ísbílstjóri

Ísbíl­stjór­inn Jón Ísak kveður á hlað­inu á Val­geirs­stöðum. Hann er pakksaddur eftir veit­ing­arnar í hús­bílnum og þakkar fyrir sig fögrum orðum og segir skemmti­leg­asta fólkið vera það sem býður upp á humar­súpu. Skála­vörður spyr um vöru­úr­valið Hann sagð­ist bjóða upp á fiski­flök og gellur, auk allra ísteg­und­anna. Gellur, virki­lega?

„Já, ég hélt reyndar fyrir nokkrum árum að gellur væru bara sætar stelpur. Svo komst ég að því í starfi mínu að þetta er hluti af þorsk­inum og einkar ljúf­fengt. Fis­herman á Suð­ur­eyri fram­leiðir gell­urnar, rétt eins og annan fisk sem við seljum,“ segir Jón Ísak. Söluræðan virk­aði og hált annað kíló af gellum skiptu um hendur. Þá var einn kassi af hnetu­toppum og freist­andi til að það yrði stað­ist. Jón Ísak kvaddi með virktum og tryllti af stað á ísbílnum. Á hlað­inu stóðu við­skipta­vin­irnir og horfðu á eftir honum hverfa í ryk­mekki fyrir nesið undir Urð­ar­t­indi.

Leið ísbíls­ins liggur um mal­ar­veg­inn í Árnes­hreppi, norður Djúp og þaðan á Suð­ur­eyri Þingeyri, Flateyri, Ísafjörð og Bol­ung­ar­vík. Vikufrí í Reykja­vík býður Jóns Ísaks eftir helgi. Svo fer hann aftur á stúf­ana, á ísbílnum, drekk­hlöðnum af gellum og rjómaís.

„Það verður gott að kom­ast í frí en gaman að snúa aftur,“ hafði hann sagt að skiln­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kvöldviðtal Mannlífs

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síðasta skipti: „Ég er að berjast í þessu“
Menning

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síð­asta skipti: „Ég er að berj­ast í þessu“

Geir Ólafsson heldur á næst­unni sjö­unda árið í röð stór­sýn­ing­una Las Vegas Christmas Show í Gamla bíói og fer hann sem endranær á kostum ásamt hljóm­sveit Don Randi og gesta­stjörnum. Randi, sem mætir með sitt „big­band“, hefur starfað með ýmsum banda­rískum stjór­stjörnum og má þar nefna Elvis Presley, Frank Sinatra, Phil Spector, The Beach Boys, Nancy Sinatra og Michael Jackson....
Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geðræn vandamál“
InnlentKvöldviðtal Mannlífs

Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál“

„Ég var alveg svo­lítið erf­iður ung­lingur“ segir Diljá Pét­urs­dóttir söng­kona og þátt­tak­andi fyrir Íslands hönd í Eurovision 2023. „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál,“ svarar hún, í við­tali hjá Reyni Trausta­syni, aðspurð hvort hún sé trúuð og segir það helstu ástæðu þess að hún hafi hald­ist svo lengi innan kirkj­unar. Diljá byrj­aði ung að syngja í kirkjukór...
Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jólaflóðinu: „Mér finnst gaman á jólum“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jóla­flóð­inu: „Mér finnst gaman á jólum“

Feðginin Illugi Jök­uls­son og Vera Ill­uga­dóttir eru dýrkuð og dáð sem dag­skrár­gerð­ar­fólk í útvarpi. Þau eru þó að sýsla ýmis­legt annað og nú fyrir jólin er Illugi með tvö spil og þrjár bækur í jóla­bóka­flóð­inu. Eina þeirra, bók­ina Dýrin, skrif­uðu þau feðginin saman. „Við Vera tókum saman og skrif­uðum bók­ina um dýrin, ein­fald­lega af því dýr eru svo skemmti­leg og...
Trausti með tvö skemmtileg jólaspil í verslunum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Trausti með tvö skemmti­leg jóla­spil í versl­unum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“

„Hvað er ég eig­in­lega búinn að koma mér út í?“ spyr Trausti Haf­steins­son spila­út­gef­andi sig reglu­lega þessa dag­ana en hann gefur ekki bara út eitt heldur tvö íslensk borð­spil fyrir þessi jól. Spilin tvö eru Gettu betur spurn­inga­spilið og skemmtispiliið Hræri­grautur. Gettu betur og Hræri­grautur eru komin í versl­anir í tak­mörk­uðu upp­lagi. Íslensk spil hafa einmitt verið valin jóla­gjöf árs­ins...
Móðir heimilislauss manns stígur fram og krefst breytinga: „Við höfum verið með lögregluvernd“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Móðir heim­il­is­lauss manns stígur fram og krefst breyt­inga: „Við höfum verið með lög­reglu­vernd“

Á Íslandi er tals­verður fjöldi heim­il­is­lausra og lítið um úrræði fyrir þennan hóp. Fólk á öllum aldri leita í athvörf og gisti­skýli sem ætluð eru heim­il­is­lausum. Mannlíf ræddi við móður 25 ára manns sem neyð­ist til að leita í gisti­skýlið á Lind­ar­götu en þar er aðstaða fyrir 25 karl­menn. „Ég hef ekk­ert sam­band við hann nema ein­staka sinnum þegar hann...
Samúel er að gera frábæra hluti í tónlistinni: „Tónlist með mikinn persónuleika höfðar til mín“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Samúel er að gera frá­bæra hluti í tón­list­inni: „Tónlist með mik­inn per­sónu­leika höfðar til mín“

Samúel Reyn­is­son er ungur og efni­legur tón­list­ar­maður frá Hafn­ar­firði, mennt­aður píanó­leik­ari sem spilar einnig á fjölda ann­arra hljóð­færa. Mannlíf sett­ist niður með Samúel og frædd­ist um líf hans og list, en hann seg­ist njóta matar- og kok­teil­gerðar í botn og er alveg að ná tökum á inn­an­húss garð­yrkju. Samúel, segðu mér aðeins frá því hvaðan þú kemur, frá æsk­unni, námi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu