„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hljóðlátt hjá Hertz og áfram okur: Neytendasamtökin – „Hægt að leigja bíl á mun lægra verði“

Hljóðlátt hjá Hertz og áfram okur: Neytendasamtökin – „Hægt að leigja bíl á mun lægra verði“
Bryn­hildur Pét­urs­dóttir fram­kvæmda­stjóri Neyt­enda­sam­tak­anna.

Tvær fréttir Mannlífs nýlega sem fjalla um hátt verð hjá bíla­leig­unni Hertz vöktu mikla athygli. Í þeim var fjallað um íslenskan náms­mann sem búsettur er í Danmörku og kom nýverið til Íslands í smá frí frá fræð­unum og til að hitta fjöl­skyldu og vini.

Hún hafði sam­band við bíla­leig­una Hertz með það í huga að leigja hjá þeim bíl í sautján daga. Hún hætti snar­lega við og blöskr­aði hrein­lega þegar henni var tjáð af starfs­manni Hertz að leiga á smá­bílnum Toyota Yaris í sautján daga kost­aði nálægt hálfri milljón króna; eða sem nemur um 26 þús­und krónum á dag.

Tók starfs­mað­ur­inn undir með íslenska náms­mann­inum þegar hún tjáði honum undrun sína og sagði að það gæti varla verið að nokkur myndi leigja bíl á svona fárán­legu háu okur­verði.

Starfs­mað­ur­inn sagði: „Já, sama hér, nei, það eru bara útlend­ingar sem leigja á svona verði.“

Þrátt fyrir ítrek­aðar fyr­ir­spurnir Mannlífs til bíla­leig­unnar Hertz varð­andi málið hafa engin svör borist frá þeim bænum.

Í fram­haldi af svar­leysi bíla­leig­unnar Hertz hafði Mannlíf sam­band við Neyt­enda­sam­tökin sem hafa það að mark­miði sínu að gæta hags­muna neyt­enda og tala máli þeirra; sjá til þess að neyt­endur njóti sann­mælis í við­skiptum og veita neyt­endum upp­lýs­ingar um verð og gæði vöru og þjón­ustu.

Ekki stóð á svörum frá Neyt­enda­sam­tök­unum öfugt við bíla­leig­una Hertz þegar Mannlíf spurði út í málið; kann­að­ist Bryn­hildur Pét­urs­dóttir fram­kvæmda­stjóri Neyt­enda­sam­tak­anna við fréttir Mannlífs af háu verði bíla­leig­unnar Hertz:

„Lausleg leit á net­inu sýnir að hægt er að leigja bíl á mun lægra verði,“ sagði Bryn­hildur við Mannlíf.

Bryn­hildur sagði einnig að Neyt­enda­sam­tökin ráð­leggðu fólki sem til þeirra leit­aði að kynna sér málin vel og að „okkar ráð­legg­ingar nú sem ætíð eru að hvetja fólk til að gera verð­sam­an­burð og eiga við­skipti við þau fyr­ir­tæki sem bjóða best.“

Reynt var að ná í eft­ir­talda hjá bíla­leig­unni Hertz án árang­urs:

Sigfús B. Sig­fús­son for­stjóri, til vinstri. Kristján Bergmann Sig­ur­björns­son for­stöðu­maður sölu, mark­aðs og upp­lýs­inga­tækni­s­viðs, til hægri. Og neðst í grein, Sigurður Berndsen fram­kvæmda­stjóri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins