„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Eva orðlaus eftir strætóferð: „Hvers konar samfélag viljum við vera?“

Eva orðlaus eftir strætóferð: „Hvers konar samfélag viljum við vera?“
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint.

„Bið ykkur um að sýna sam­fé­lags­á­byrgð í strætó og horfa ekki fram hjá þegar ókunn­ugur maður er í strætó og er sýni­lega að áreita unga konu sem vill ekk­ert við hann tala,“ segir Eva Lilja í færslu á Facebook síð­unni Betra Breið­holt.

Augljóst ofbeldi

Hún segir hafa verið alla­vega 7 manns hafa setið fyrir aftan þessa ungu konu og tekur fram að eng­inn hafi neitt sagt eða gert til að stöðva þetta aug­ljósa ofbeldi. ,,Strætó­bíl­stjóri gerði heldur ekk­ert alla leið­ina frá Ráðhúsi í Selja­hverfi í leið 3”.

Eva segir það alvar­legt að við borg­arar sýnum ekki sam­fé­lags­á­byrgð þrátt fyrir grátur ungu kon­unnar sem ítrekað bað mann­inn að láta sig í friði. „Hvers konar sam­fé­lag viljum við vera?  Þessi unga kona fær nú skýr skila­boð að öllum er sama og hvað þá í almenn­ings vagni.  Skömmin er okkar.”

Samstaðan bara til á netinu

Fjöldi fólks hefur brugð­ist við færsl­unni og spyrja ein­hverjir Evu hvort hún hafi gripið til aðgerða, sem hún seg­ist hafa gert ásamt fjöl­skyldu sinni, og kallað til lög­reglu.

Einnig er umræða um við­brögð vagn­stjóra sem sumir segja að sé upp­tek­inn við akstur á meðan aðrir benda á að hann sé í tal­stöðv­ar­sam­bandi við stjórn­stöð og geti til­kynnt atvik á við þetta.

Dísa segir eina leið að þykj­ast þekkja þol­and­ann. „Nei hæ! Langt síðan ég hef séð þig! Hvað er að frétta af mömmu þinni? Ertu með þessum manni? Nei? Komdu þá og sestu hjá mér til að catch up.“ Ef ger­and­inn bregst illa við svo­leiðis, þá á ekki að hika við að hringja strax á lög­regl­una og biðja um aðstoð”.

Ísidór segir fólk vera bleyður og Einar segir að þessi svo­kall­aða „sam­staða” sé ein­ungis til á net­inu en þegar til komin þá sjái eng­inn neitt.

Veldur hræðslu og kvíða

Fleiri stíga fram með sam­bæri­legar sögur af áreiti í strætó.

„Ég hef lent í því svo oft að vera ein í strætó klukkan kannski 11 að kvöldi til og ein­hverjir karlar 2x eldri en ég setj­ast hjá manni í nán­ast tómum strætó,” skrifar Heiða. Hún seg­ist ekki vita hvort um hugs­un­ar­leysi sé að ræða en það valdi því að maður sé kró­aður skít­hræddur upp við glugg­ann, grát­biðj­andi inn í sér að mann­eskjan sé ekki að fara að reyna að tala við mann eða gera ekki eitt­hvað. „Oft er maður ekki svo heppin. Það er örugg­lega fullt af fólki sem gerir þetta ekki úr illsku eða vill bara vera vina­legt, en endi­lega hugsið út í það að mann­eskjan veit ekki hvernig þú ert og ekki setj­ast hjá þeim.

Það hafa margir slæma reynslu og þetta getur valdið svo mik­illi hræðsu og kvíða”.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins