„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Anna og Elísa fullyrða að Ingó Veðurguð hafi verið bannaður í félagsmiðstöðvum – Sjáðu svar Samfés

Anna og Elísa fullyrða að Ingó Veðurguð hafi verið bannaður í félagsmiðstöðvum – Sjáðu svar Samfés

Tvær konur hafa stigið fram í opnum færslum á Facebook og tjáð sig um meint brot Ingólfs Þór­ar­ins­sonar eða Ingós Veð­urguðs. Í færslum kvenn­anna kalla þær meðal ann­ars eftir því að Samfés stígi fram og stað­festi það sem þær og fleiri eru að segja, að Ingó hafi verið bann­aður á skemmt­unum á þeirra vegum vegna ósæmi­legrar hegð­unar í garð ungra stúlkna, einmitt í tengslum við slíkar skemmt­anir.

Sjá einnig: Ingó Veðurguð í við­tali við Mannlíf: „Ég ætla ekki að láta eyði­leggja mann­orð mitt“

Elísa Snæ er önnur kvenn­anna og segir hún að fyrir ein­hverjum árum hafi hún unnið í Félags­mið­stöð og þá hafi verið komið bann á það að ákveðin aðili fengi að spila á skemmt­unum fyrir ung­linga. Ástæðan var sú að hann hafi verið þekktur fyrir að sitja fyrir stúlkum á heim­leið og bjóða þeim far heim. Við erum að tala um 13 til 15 ára gamlar stúlkur á leið heim frá skemmtun í félags­mið­stöð­inni sinni, segir Elísa. Færsla Elísu endar svo á þessum orðum: „Það er í raun ótrú­legt að það hafi ein­fald­lega verið hætt að ráða mann­inn, og látið þar við sitja. Segir eflaust meira um breyttan tíð­ar­anda en annað, að við fag­fólk í frí­stunda­starfi höfum ekki farið með málið lengra á sínum tíma. En nú er tím­inn til að færa þetta grund­vallar, lág­marks við­mið aðeins hærra. Ráðum fólk a skemmt­anir sem við erum alla­vega þokka­lega viss um að beiti ekki kyn­ferð­is­of­beldi. Þó fyrr hefði verið. Samfés ég skora á ykkur að koma fram og stað­festa þetta bann við ráðn­ingu á ákveðnum manni“.

Elísa Snæ Mynd af Facebook

Sjá einnig: Þetta er fólkið sem henti Ingó af Þjóð­há­tíð – Nafn­lausar ásak­anir kost­uðu Veð­urguð­inn „giggið“

Anna María Þor­kels­dóttir sem starfar við skóla og frí­stunda­deild Breið­holts hafði meðal ann­ars þetta um málið að segja: „Ég er agn­dofa yfir við­brögðum kvenna við fréttum dags­ins um að ákveð­inn tón­list­ar­maður fái ekki að syngja fyrir framan ara­grúa af ungum stúlkum í sumar eftir að tugir stúlkna eru búnar að lýsa fram­ferði manns­ins gagn­vart þeim. Sumar af þessum konum sem eru að segj­ast ekki styðja þessa ákvörðun eru ömmur og mömmur stúlkna og þær vilja að þær séu í návígi við mann sem hefur lengi verið þekktur fyrir ósæmi­legt atferli. Ein af þeim sem kom fram þurfti að lesa færslu frá ömmu sinni þar sem hún styður þennan mann. Pössum okkur, við vitum ekki hvað dætur okkur og barna­börn hafa lent í, því að það eru fáir sem segja frá af ýmsum ástæðum. Þessi umræða er ekki gripin úr lausu lofti“. Anna María segir að téður maður hafi verið bann­aður á skemmt­unum Samfés vegna þess að hanna var að sýna ung­lingum á aldr­inum 13 til 15 ára ósæmi­lega hegðun. „Hann söng á jóla­skemmtun (þar sem voru yngri börn og for­eldrar þeirra ) um að maður setur tillann inn og setur tillann út og hristir hann svo til (í Hókí Pókí)“.

Færslu Önnu Maríu má sjá í heild sinni hér.

Anna María Þor­kels­dóttir Mynd af Facebook

Mannlíf kallaði eftir viðbrögðum Samfés

Mannlíf setti sig í sam­band við Samfés og spurði út í það hvort téðum tón­list­ar­manni hefði verið mein­aður aðgangur að þeirra við­burðum vegna ósæmi­legrar hegð­unar í garð ungra stúlkna. Svarið frá stjórn Samfés er svo hljóð­andi:

 „Hvað varðar skemmti­krafta á við­burðum Samfés þá hafa full­trúar Ung­menna­ráðs Samfés alltaf valið hverja þau vilja bóka. Við­kom­andi hefur ekki komið fram í þeim umræðum né vali frá árinu 2015 sam­kvæmt vit­neskju núver­andi stjórnar sam­tak­anna og fram­kvæmda­stjóra. Rétt er að taka fram að starfs­fólk félags­mið­stöðva og ung­menna­húsa sjá sjálf um að bóka skemmti­krafta á sína við­burði. Samfés kemur ekki að dag­legu starfi aðild­ar­fé­laga“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

#METOO2

Þetta eru viðbrögð þeirra sem Ingó kærði: „Vaknaði bara við að Ingó veðurguð er búinn að kæra mig“
Innlent#METOO2

Þetta eru við­brögð þeirra sem Ingó kærði: „Vaknaði bara við að Ingó veð­urguð er búinn að kæra mig“

Fyrr í dag var greint frá nöfnum þeirra fimm sem Ingólfur veð­urguð fékk lög­mann sinn, Vilhjálm H. Vil­hjálms­son, til að senda kröfu­bréf. Í þeim er farið á leit að við­kom­andi biðji Veð­urguð­inn afsök­unar á æru­meið­andi ummælum í hans garð, dragi þau til baka og greiði honum miska­bætur og lög­fræði­kostnað. En það voru Edda Falak áhrifa­valdur, Sindri Þór Sig­ríð­ar­son Hilm­ars­son við­skipta­fræð­ingur,...
Vilhjálmur rís upp Ingó til varnar – Blaðamenn og áhrifavaldar verða kærðir
Innlent#METOO2

Vil­hjálmur rís upp Ingó til varnar – Blaða­menn og áhrifa­valdar verða kærðir

Blaða­menn, áhrifa­valdar og fólk sem hefur ásakað Ingó Veðurguð um refsi­verða hátt­semi mega eiga von á kæru eftir að lög­fræð­ing­urin Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son gekk til liðs við Veð­urguð­inn. Rík­is­út­varpið greindi frá þessu. Fimm verða að biðj­ast afsök­unar Kæran kemur í kjöl­far þess að Aðgerða­hóp­ur­inn Öfgar birti 32 nafn­lausar sögur sem fjöll­uðu um meint brot Ingó gegn fjölda kvenna. Sam­fé­lags­miðlar hafa...
„Hvað er það þegar tvær manneskjur stunda kynlíf og önnur hefur ekki áhuga?“ – „Nauðgun.“ MYNDBAND
Innlent#METOO2

„Hvað er það þegar tvær mann­eskjur stunda kyn­líf og önnur hefur ekki áhuga?“ – „Nauðgun.“ MYNDBAND

Óskar Steinn Jón­ínu­son Ómarsson birti afar slá­andi mynd­band á TikTok; sveipað ákveðnum létt­leika og galsa, en und­ir­tónn­inn er þó kol­svartur og alvar­legur enda við­fangs­efnið ekk­ert grín: Nauðg­anir. Hann túlkar í mynd­band­inu – sem tvær per­sónur – text­ann við lagið „Fanney“ eftir Ingó Veðurguð. Eftir þá túlkun er lagið hreint ekki það „sama“ og áður. Óskar opnar texta lags­ins upp á...
Ólöf afhjúpar skelfilega tölfræði: „Feðraveldið notar þetta hinsvegar sér til rökstuðnings“
Innlent#METOO2

Ólöf afhjúpar skelfi­lega tölfræði: „Feðra­veldið notar þetta hins­vegar sér til rökstuðn­ings“

Ólöf Tara Harð­ar­dóttir, einka­þjálf­ari, hefur verið áber­andi í seinni bylgju MeToo bylt­ing­ar­innar hér á landi, þar sem hún hefur barist ötul­lega gegn ofbeldi á konum. Nú á dög­unum birti Ólöf færslu á Facebook síðu sinni þar sem hún fer meðal ann­ars yfir tölur til­kynntra nauð­gana, hve margar þeirra fari að jafn­aði fyrir dóm og hlut­fall sak­fell­inga. Tara segir að talið...
Andrea: „Ég sný mér við og er þá ekki Reðurguðinn mættur að bjóða sér upp undir pilsið mitt”
Innlent#METOO2

Andrea: „Ég sný mér við og er þá ekki Reð­urguð­inn mættur að bjóða sér upp undir pilsið mitt”

Mikið hefur verið bent á það að þolendur komi ekki fram undir nafni í tengslum við hina svo köll­uðu Meetoo bylt­ingu og virð­ist fólk alls ekki skilja af hverju þolendur eða meintir þolendur kjósi nafn­leynd. Á þessu er engin breyt­ing ef horft er til fjölda mála sem upp hafa komið í tengslum við þekktan tón­list­ar­mann, Ingó Veðurguð. Nú hefur Andrea...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins