„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Streitustjórnun mikilvæg gegn kulnun

Streitustjórnun mikilvæg gegn kulnun
Kristín Snorra­dóttir

Eftir Kristínu Snorra­dóttur

Þegar streita fer yfir ákveðin mörk verður hún skað­leg bæði lík­am­lega og and­lega og því er mik­il­vægt að mæta ein­stak­lingum á mjúkan hátt bæði lík­am­lega og and­lega.

Streitu­horm­ónið kortisol stýrir streitu­stigi og það er eitt af því sem þarf að hafa í huga þegar unnið er að því að draga úr streitu, því ekki viljum við auka kortisol fram­leiðslu lík­am­ans því það þýðir meiri streita!

Streita getur verið hættu­leg:

Of hátt streitu­stig veldur lík­am­legum ein­kennum eins og grunnur, hraður and­ar­dráttur, melt­inga­trufl­anir, aukin svita­myndun, munn­þurrkur, hjart­slátt­ar­trufl­anir og magn­leysi sem flestir þekkja sem óeðli­lega mikla þreytu.

Andlega getur farið að bera á kvíða­ein­kennum, hugs­anir verða jafn­vel hrað­ari og óró­legar, ákveðin upp­gjöf gerir vart við sig og ein­stak­lingur upp­lifir sig aldrei ná að halda utan um það sem hann gerir þar sem ein­beit­inga­skortur og eirð­ar­leysi eru ríkj­andi. Streita er und­an­fari kuln­unar.

Einnig getur komið upp dep­urð, ein­mana­leiki, grát­köst og allt þetta heggur í sjálfs­mynd­ina sem laskast og ein­stak­ling­ur­inn fer að sjá sig sem verð­lausan og jafn­vel ómögu­legan.

Leiðir til að losa um streitu og ná niður streitu­horm­ón­inu kortisol:

Ýmsar leiðir eru til sem fólk getur nýtt sér en mik­il­vægt er að fá stuðn­ing hjá fag­að­ila þegar það á við.

Fimm grunn­þættir sem þarf að hafa í lagi til að ná jafn­vægi and­lega og lík­am­lega eru svefn, slökun, mat­ar­ræði, hreyf­ing og félags­legi þátt­ur­inn.

Ef eitt­hvað af þessu er í ólagi er mjög lík­legt að það séu fleiri en einn þáttur lík­leg­ast allir.

Svefn:

Svefninn er mjög mik­il­vægur því eitt af ein­kennum of mik­illar streitu er oft rof­inn svefn og þar verður til víta­hringur sem keyrir upp streitu­horm­ónið! Ýmsar leiðir eru til þess að bæta svefn. Ein sem þekkt er og byggð er á rann­sóknum er að draga úr skjá­tíma minnst tveimur  klukku­stundum fyrir svefn, engan síma með upp í rúm. Ljósið frá skjánum og áreitið á heil­ann truflar melatónín­fram­leiðsl­una en melatónín er þetta dásam­lega hormón sem hjálpar okkur að verða þreytt og sofa.

Slökun:

Slökun er nauð­syn­leg í þessu hraða sam­fé­lagi sem nútíma fólk býr í. Hvort sem þú nýtir þér aðferðir hug­leiðslu, núvit­undar, jóga nidra eða finnur þína leið er slökun magnað með­ferða­form við streitu og hjálpar okkur að vera í núinu og þar með í jafn­vægi. Sem dæmi má nefna að við iðkun jóga nidra, sem er svefn jóg­anna og eitt dýpsta form slök­unar, þá lækkar streitu­horm­ónið kortisól um 60 % á meðan á því stendur og dópamín sem er gleði­hormón hækkar að sama skapi. Já það eru til rann­sóknir um þetta líka. Öll djúp­slökun hægir á kerf­inu og kemur á jafn­vægi sem og hjálpar okkur að vera hér og nú.

Mat­ar­ræði:

Mataræði er grunn­þörf og að hafa í huga að nær­ingin sé góð sem sagt að nær­ing­ar­inni­hald sé gott skiptir öllu fyrir elds­neyt­is­þörf lík­am­ans. Engin megrun heldur skyn­sam­leg nær­ing og að nær­ast reglu­lega. Það sem ger­ist í of mik­illi streitu er gjarnan það að fólk sækir í sykur og önnur kol­vetni til þess að keyra upp orku, gengur svo á þess­ari skyndi­orku með til­heyr­andi auka­verk­unum sem geta verið að fitna, verkja­köst og annað í þeim dúr. Þegar lík­am­inn upp­lifir of mikla streitu fer hann í ákveðið ástand þar sem hann heldur í allan fitu­forða og býr til meira af því hann und­ir­býr sig fyrir hung­ursneið.

Hreyfing:

Hreyfing er okkur öllum nauð­syn­leg enda er mann­eskjan gerð til þess að hreyfa sig en þegar streitu­stuð­ull­inn er kom­inn of hátt þarf að aðlaga hreyf­ing­una að hverjum og einum. Of mikil og of kröftug hreyf­ing getur hækkað streitu­stig lík­am­ans og komið kortisól­inu upp í hæstu hæðir og það viljum við ekki. Fyrir suma er léttur 20 mín­útna göngutúr nákvæm­lega hár­rétt upp­skrift á meðan aðrir geta farið í crossfit. Mik­il­vægt að muna að ein­stak­lings­miða og finna hreyf­ingu sem við­kom­andi hefur gaman af.

Félags­legt sam­neyti:

Félags­legi þátt­ur­inn er oft sá þáttur sem dettur alveg út þar sem allt umfram það allra nauð­syn­leg­asta er áreiti og erfitt þegar streita er of mikil. Það að hitta fólk og hafa gaman er mjög nær­andi og kveikir á góðum horm­ónum sem draga úr streitu­horm­ón­inu. Velja skemmti­legt fólk og skemmti­legar athafnir.

Höfundur er Acc vott­aður mark­þjálfi og félags­kona í FKA

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

pistill

Bakdyramegin á bannaðar myndir
Reynir Traustason
Skoðun

Reynir Traustason

Bak­dyra­megin á bann­aðar myndir

Ein helsta skemmtun okkar púkanna á Flateyri var að fara í bíó í Sam­komu­hús­inu. Tvisvar í viku voru sýn­ingar á blóma­tíma bíó­ferð­anna. Á sunnu­dögum voru barna­sýn­ingar og á fimmtu­dags­kvöldum voru myndir sem á stundum voru harð­bann­aðar yngri en 16 ára. Ég hef lík­lega verið orð­inn 11 ára þegar þörf okkar krakk­anna í þorp­inu til að kom­ast á bann­aðar myndir varð...
Íslendingar kunna ekki væntingastjórnun
Skoðun

Brynjar Birgisson

Íslend­ingar kunna ekki vænt­inga­stjórnun

Ég skal fús­lega við­ur­kenna að ég á til að synda á móti straumnum þegar kemur að skoð­unum á knatt­spyrnu en ég ein­fald­lega næ ekki utan um þær hug­leið­ingar að íþrótta­blaða­menn og aðdá­endur íslenska karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu telji árangur Åge Hareide með lands­liðið ekki nógu góðan. Í raun er talað um það innan knatt­spyrnu­heims­ins að öruggt sé að Norð­mann­inum verði sagt...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu