„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Rakel var lengi kærasta Ingós Veðurguðs: „Mér líður eins og ég hafi verið kýld í magann“

Rakel var lengi kærasta Ingós Veðurguðs: „Mér líður eins og ég hafi verið kýld í magann“

Rakel María Hjalta­dóttir, fyrr­ver­andi kærasta Ingólfs Þór­ar­ins­sonar, betur þekkts sem Ingó Veðurguð, seg­ist vilja skila skömminni og lýsir því yfir að hún standi með öllum þeim sem orðið hafa fyrir kyn­ferð­is­of­beldi af ein­hverju tagi. Eftir að hafa lesið fjölda frá­sagna á hendur mann­inum sem hún var með í sex ár líður henni eins og hún hafi verið kýld í mag­ann.

Aðgerða­hóp­ur­inn Öfgar birti nafn­lausar frá­sagnir rúm­lega 20 kvenna sem lýsa kyn­ferð­is­of­beldi og áreitni af hálfu Ingós. Þá hafa sögur og frá­sagnir tengdar honum tengst seinni #metoo-bylgj­unni á Íslandi og þá sér­stak­lega á sam­fé­lags­miðl­unum Reddit, Twitter og TikTok.

Sjá einnig: Andrea: „Ég sný mér við og er þá ekki Reð­urguð­inn mættur að bjóða sér upp undir pilsið mitt”

Í kjöl­far þess að til­kynnt var um að Ingólfur myndi stjórna Brekku­söngnum á Þjóð­há­tíð í ár skrif­uðu yfir 130 konur undir áskorun til Þjóð­há­tíð­ar­nefndar um að Ingó yrði lát­inn taka poka sinn. Nefndin varð við þeirri áskorun og leitar nú eft­ir­manns Veð­urguðs­ins. Í gangi er und­ir­skrift­ar­listi þar sem skorað er á nefnd­ina að ráða Ingó aftur og hafin hefur verið söfnun und­ir­skrifta þar sem Þjóð­há­tíð­ar­nefnd er hvött til að standa við ákvörð­un­ina.

Neitar sök

Í við­tali við Mannlíf hafn­aði Ingó öllum ásök­unum og hefur þegar haf­ist handa við að leita réttar síns.  Rakel seg­ist alls ekki vilja setj­ast í dóm­ara­sæti í mál­inu og án þess að nafn­greina Ingó í færslu sinni er ljóst að hún ræðir þar um sinn fyrr­ver­andi kærasta til margra ára. Hún segir:

„Í rúm­lega 6 ár var ég í sam­bandi með ein­stak­ling. Allan tím­ann stóð ég með honum og studdi hann í gegn um alls konar erf­iða tíma, af því að það er það sem maður gerir … stendur með mak­anum sínum og trúir því sem hann segir. Á sunnu­dag­inn las ég yfir 20 frá­sagnir. Mér leið eins og ég hefði verið kýld í mag­ann, eins og ég gæti ekki andað og þyrfti að kasta upp. Síðan þá hefur mér liðið eins og ég sé að burð­ast með risa­stórt grjót ofan á mér.“

Sjá einnig: Ingó Veðurguð í við­tali við Mannlíf: „Ég ætla ekki að láta eyði­leggja mann­orð mitt“

Stendur með þolendum

Rakel skýrir út hvers vegna hún ákvað að skrifa færslu sína eftir að hafa lesið fjölda ásak­ana á hendur Ingó.

„Mér líður ein­hvern­veg­inn eins og ég beri ábyrgð, sem er auð­vitað mjög brenglað þegar við­kom­andi ein­stak­lingur gerir það ekki einu sinni sjálfur. Ég ætl­aði ekki að tjá mig neitt en ég er að læra það að ég má taka pláss, þessar til­finn­ingar skipta máli og ég má segja hvernig mér líður. Létta á þessum þunga. Ég vil bara skila skömminni. Létta á mér og ýta þeirri til­finn­ingu um að ég beri ein­hverja ábyrgð í burtu og segja að ég stend með öllum þeim sem hafa orðið fyrir ofbeldi“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins