„Ég er með genagalla sem veldur því að ég hef minni orku í fótunum en jafnaldrar mínir og nota því rafmagnshjólastól til að fara á milli staða,“ segir í grein sem Halldór Björn, 10 ára Eyjapeyi, skrifar í Eyjafréttir. „Eins og þið flest vitið eru nýlega komin Hopp-hjól til Eyja. Flestir eru mjög glaðir, en ekki ég og ég veit að aðrir fatlaðir vita um hvað ég er að tala”. Halldór Björn segir að eftir að Hopp-hjólin hafi komin séu þau oft hindrun fyrir rafmagnshjólastólinn hans til að komast á milli staða. „Margir sem nota þessi hjól henda þeim bara frá sér eða skilja þau eftir á miðri gangstétt. Svo gerið það hugsiði um aðra”.
Ákalli Halldórs hefur verið deilt á Facebook og er bent á að það eigi jafnvel enn meira erindi við íbúa miðborgar Reykjavíkur en íbúa Vestmannaeyja. Mikil umræða hefur átt sér stað um Hopp-hjólin undanfarið, ekki síst meðal íbúa Miðbæjarins en þar er gríðarlegt magn hjóla hist og her.
Vilhjálmur segist, sem íbúi í 101, ítrekað bent á hið sama. „Að sjálfsögðu get ég stigið yfir rafskutkuna sem skilin var eftir þvert fyrir inngang að mínu heimili – en hvers vegna á svona lagað að teljast í lagi?” Hann segir að það sé aldrei í lagi. „Málið er hreint út sagt á ábyrgð rekstraraðila sem sjálfir eiga að finna lausn”. Vilhjálmur segir að það megi ekki vera bráðum, heldur núna. ,,Þangað til „núna„ á sér stað eiga sveitarfélög að grípa inn í og stöðva þessa óværu, skrifar Vilhjálmur.
„Tillitsemi kostar ekkert,“ bætir Sigrún við.




















Athugasemdir