„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Með skammbyssur í Krónunni: „Vopn eiga ekki heima á almannafæri – Við viljum vera vopnlaust land“

Með skammbyssur í Krónunni: „Vopn eiga ekki heima á almannafæri – Við viljum vera vopnlaust land“
Eru lög­reglu­menn­irnir á mynd­inni vopn­aðir skamm­byssum?

Ljósmynd sem virð­ist sýna tvo sér­sveit­ar­menn á gangi um hábjartan dag vopn­aða skamm­byssum á leið í Krónuna, hefur vakið mikla athygli inni Facebook-síðu sem ber nafnið Pírata­spjallið 2.

Kona sem heitir Helga deilir inn­legi og segir „að hér hittir ein vin­kona þessa í Krónunni; það rifj­ast þá upp fyrir mér að ég var í bak­aríi í mið­borg­inni með barn með mér og þar voru tveir vopn­aðir að versla sér sæta­brauð,“ og spyr: „Þetta getur ekki verið í lagi, er það?“

Á mynd sem fylgir færsl­unni og sjá má með þess­ari grein virð­ast tveir sér­sveit­ar­menn vera vopn­aðir skamm­byssum á leið í Krónuna, mögu­lega til að fá sér nær­ingu.

Birna spyr á síð­unni: „Veit ein­hver hvar ég finn „memóið“ um að það sé orðið normal að tvær löggur skreppi saman í Krónuna vopn­aðar skamm­byssum?“

Gerður er ekki sátt við það sem virð­ist vera vopnuð sér­sveit um hábjartan dag rölt­andi í róleg­heitum í átt að Krónunni: „Okkur er ekki fyr­ir­munað að halda sönsum og hugsa og haga okkur eins og siðað fólk; vopn eiga ekk­ert heima á almanna­færi,“ segir Gerður og bætir við: „Við viljum vera vopn­laust land og það er algjör­lega út fyrir öll mörk að láta fólk venj­ast við að hafa þau sem sjálf­sagðan hlut. Ég var full­viss um að þetta myndi þró­ast í þessa átt þegar lög­reglan var klædd í árás­argall­ann og breytt­ist í ógn í stað verndar þegar Ómar Ragn­ars­son var hand­tekin í Gálga­hraun­inu af „bún­inga­vörðum sendi­boðum“ lög­regl­unnar – ekki vörðum lag­anna, því Ómar var að verja svæðið sam­kvæmt vernd­ar­lögum. Að taka Ómar fastan var eins og að taka Vigdísi Finn­boga­dóttur fasta. Skömm sé okkur að leyfa heil­brigðri skyn­semi ekki þátt­töku í dag­legu lífi. „Við Íslend­ingar viljum ekki vopnað fólk á vappi, nema nauð­syn sé. Og það er í mínum huga ákveðin sam­fé­lags­sátt­máli um það, því vill ég sem borg­ari þessa lands ekki breyta.“

Elsa leggur orð í belg og segir að „það sem er svo hræði­legt er að við erum að „normalisera“ þetta. Þökkum fyrir að þetta er enn ekki komið lengra, þannig að hægt er að setja brems­urnar á, núna.“

Heiða er heldur ekki ánægð og bendir á „að lög­reglan er með sér­stök box í bílnum þar sem þeir geta geymt vopnin. Við eigum ekk­ert að þurfa að venj­ast því að sjá vopn­aða lög­reglu­menn í almanna­rým­inu. Algjör óþarfi.“

Nú er það ykkar að meta, kæru les­endur, hvort þarna séu sér­sveit­ar­menn­irnir tveir á mynd­inni vopn­aðir skamm­byssum eður ei.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins