„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Blátt bann við að ráða tiltekinn gítargaulara“

„Blátt bann við að ráða tiltekinn gítargaulara“

Mál Ingós Veð­urguðs, sem sak­aður hefur verið um kyn­ferð­is­áreiti og kyn­ferð­is­of­beldi af tugum kvenna, er alltaf að „stækka“ og hefur tekið á sig ótal birt­ing­ar­myndir, og hér eru tvær.

Formaður Nem­enda­fé­lags Borg­ar­holts­skóla, Jón Bjarni Snorra­son, greindi frá því á Twitter-reikn­ingi félags­ins að bannað hafi verið að bóka Ingólf Þór­ar­ins­son – Ingó Veðurguð – á skemmt­anir á vegum félags­ins og skól­ans í rúm átta ár. Megi þá ákvörðun rekja til þess að „stjórn 2012-2013 ein­fald­lega heyrði „flökku­sögu“ um Ingólf og kaus að banna fram­tíðar stjórn­ar­með­limum nem­enda­fé­lags­ins að bóka Ingó Veðurguð. Þetta kemur fram í árs­skýrslu stjórnar 2012-2013.“

Sjá einnig: Andrea: „Ég sný mér við og er þá ekki Reð­urguð­inn mættur að bjóða sér upp undir pilsið mitt”

Síðan þá hefur Ingó verið á bann­list­anum og er þar enn, en þó var hann bók­aður á eina skemmtun árið 2018, og urðu deilur um þá ákvörðun innan skól­ans. Þetta kemur fram á áður­nefndum Twitter-reikn­ingi en þar gagn­rýnir Jón Bjarni harð­lega, sem og stjórn nem­enda­fé­lags­ins 2021-2022, þá ráðn­ingu vet­ur­inn 2017-2018.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hangir uppi blað á skrif­stofu skóla­fé­lags­ins þar sem stendur stórum stöfum: „Ekki bóka Ingó á ball.“ Er Ingó sam­kvæmt sömu heim­ildum sá eini sem er á bann­lista nem­enda­fé­lags Borg­ar­holts­skóla.

Sjá einnig: Ingó Veðurguð í við­tali við Mannlíf: „Ég ætla ekki að láta eyði­leggja mann­orð mitt“

Í áður­nefndu árs­skýrslu nem­enda­fé­lags­ins um gang mála vet­ur­inn 2012-2013, kemur fram að reynt hafi verið að banna Ingó Veðurguð frá skemmt­unum á vegum skól­ans; það skráð í reglur nem­enda­fé­lags­ins; ein­hverjir í stjórn­inni hafi þó mót­mælt því og sagt að ekki mætti banna ein­staka tón­list­ar­menn. En engu að síður var Ingó settur á bann­lista.

Annað dæmi sem einnig má benda á er að fram­kvæmda­stjóri Bleika fíls­ins, for­varn­ar­hóps í Eyjum sem vinnur gegn nauðg­unum, Jóhanna Ýr Jóns­dóttir tjáði sig um mál Ingós á Facebook.

Sagði meðal ann­ars að „ég hef tekið eftir því und­an­farið að heimur sam­fé­lags­miðla á Íslandi skipt­ist í tvennt. Þeir sem eru á Twitter og svo þeir sem eru ekki á Twitter. Því þeir sem eru ekki á Twitter virð­ast ekki vita að Samfés, ÍTR og hinir ýmsu skólar hafa lagt blátt bann við að ráða til­tek­inn gít­ar­gaul­ara síð­ustu ár vegna ein­stak­lega óvið­eig­andi sam­skipta hans við barn­ungar stúlkur,“ og bætir við:

„Þau sem eru ekki á Twitter virð­ast ekki hafa séð skets frá Steinda jr síðan 2009 um þessi sömu óvið­eig­andi sam­skipti.“ Jóhanna seg­ist ekki skilja „af hverju ENGIR af þessum stjórn­endum sem hafa síð­ustu tíu ár amk vitað þetta en litu undan, hafi ekki stigið fram núna.

Sjá einnig: Sögur um Ingó safn­ast upp á Reddit – Veð­urguð­inn bar fyrir sig minnis­leysi hjá Sölva

Þannig að, þið getið hætt að öskra á þessar ungu stúlkur (sem urðu þolendur sem börn btw), það er heill haf­sjór af full­orðnu fólki þarna úti sem VISSI en þau gerðu ekk­ert.

Þögnin frá þeim er meira sker­andi en nokkuð annað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynferðisofbeldi

Barnfóstra John Stamos misnotaði hann í æsku: „Ég pakkaði því niður eins og fólk gerir“
Menning

Barn­fóstra John Stamos mis­not­aði hann í æsku: „Ég pakk­aði því niður eins og fólk gerir“

John Stamos opnar sig upp á gátt í end­ur­minn­ing­ar­bók sinni sem kemur út á næst­unni. Bókin heitir If You Would Have Told Me en senni­lega er mesta upp­ljóstr­unin í bók­inni, kafl­inn þar sem hann lýsir kyn­ferð­is­legri mis­notkun sem hann varð fyrir í æsku. Í bók­inni segir leik­ar­inn góð­kunni frá því er hann var beittur kyn­ferð­is­legu ofbeldi af barn­fóstru þegar hann...
Konráð lýsir kynferðisofbeldi sem hann varð fyrir í Bæjarbíói: „Ég man að myndin var byrjuð“
Innlentkynferðisofbeldi

Konráð lýsir kyn­ferð­is­of­beldi sem hann varð fyrir í Bæj­ar­bíói: „Ég man að myndin var byrjuð“

Konráð Ragn­ars­son var einn af þeim ólánsömu drengjum sem gert var að dvelja í Breiðu­vík á sínum tíma; var þar beittur miklu harð­ræði og rang­læti. Konráð er frá­bær ljós­mynd­ari sem hlotið hefur fjölda við­ur­kenn­inga fyrir myndir sínar um víða ver­öld. Hann lýsir ömur­legri reynslu sinni af kyn­ferð­is­of­beldi sem hann varð fyrir, ritar um reynslu sína á Facebook-síðu sinni. „Þegar ég...
Storytel-Stefán með slóð tilkynninga um kynferðislega háttsemi
Innlentkynferðisofbeldi

Storytel-Stefán með slóð til­kynn­inga um kyn­ferð­is­lega hátt­semi

Stefán Hjör­leifs­son, fram­kvæmda­stjóri Stor­ytel á Ís­landi, lét af störf­um hjá fyr­ir­tæk­inu á Ís­landi eft­ir að þrjár kon­ur kvört­uðu und­an hátt­semi hans. Kvart­an­irn­ar sner­ust um óvið­eig­andi hátt­semi af kyn­ferð­is­leg­um toga. Stundin greinir frá. Kvart­anir vegna Stefáns hjá Storytel ná að minnsta kosti rúmt eitt og hálft ár aftur í tím­ann. Til­kynn­ing­arnar bár­ust móð­ur­fé­lagi Storytel í Stokk­hólmi. Sjá einnig: Stefán stígur til...
Tveir stjórnarmenn sögðu af sér eftir uppljóstranir um barnaklám
Heimurkynferðisofbeldi

Tveir stjórn­ar­menn sögðu af sér eftir upp­ljóstr­anir um barnaklám

Tveir æðstu stjórn­ar­menn Mindgeek, þeir Feras Antoon og David Tassillo, hafa hætt störfum hjá fyr­ir­tæk­inu. Þeir höfðu báðir starfað þar í meira en ára­tug, Antoon sem for­stjóri og Tassillo sem rekstr­ar­stjóri. Mindgeek rekur vin­sælu klám­veit­una PornHub. Financial Times greinir frá þessu. Gustað hefur um PornHub und­an­farið eftir að í ljós kom að mikið magn kyn­ferð­is­legs efnis á veit­unni var þar...
Leiðbeiningar að þolendavænni orðræðu fjórða valdsins
Skoðun

Ritstjórn Mannlífs

Leið­bein­ingar að þolenda­vænni orð­ræðu fjórða valds­ins

Eft­ir­far­andi er aðsendur pist­ill frá bar­áttu­hópnum Öfgum. Árs­skýrsla Stíga­móta árið 2020 sýnir að 23,1% af þeim sem leit­uðu til Stíga­móta árið 2020 höfðu gert eina eða fleiri til­raunir til sjálfs­vígs. Hlutfall þeirra sem gert hafa eina eða fleiri til­raunir til sjálfs­vígs hefur verið á bil­inu 20 – 28% á árunum 2016 til 2020 meðal þeirra ein­stak­linga sem leitað hafa til...
Íslandsvinurinn Mason Greenwood sakaður um heimilisofbeldi: „Ég ætla að ríða þér, fíflið þitt“
Menning

Íslands­vin­ur­inn Mason Greenwood sak­aður um heim­il­is­of­beldi: „Ég ætla að ríða þér, fíflið þitt“

Mason Greenwood, leik­maður fót­boltaliðs­ins Manchester United, hefur verið sak­aður um heim­il­is­of­beldi af kær­ustu sinni, Harriet Robson. Robson opn­aði sig um ofbeldið á Instagram-aðgangi sínum í gær og birti myndir af áverkum sínum. Við eina mynd­ina skrif­aði hún: „Til allra þeirra sem vilja vita hvað Mason Greenwood gerir við mig í raun og veru.“ Myndin sýnir and­lit Robson, vör hennar stokk­bólgna...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins