„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hagsmunasamtök heimilanna krefja seðlabankastjóra svara um verðtryggð lán – Bönnuð víða um heim

Hagsmunasamtök heimilanna krefja seðlabankastjóra svara um verðtryggð lán – Bönnuð víða um heim
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri

Hags­muna­sam­tök heim­il­inna kalla eftir afstöðu seðla­banka varð­andi verð­trygg­ingu í nýrri til­kynn­ingu. Þau segja að þrátt fyrir að Ásgeir Jónsson, seðla­banka­stjóri hafi svo sann­ar­lega komið með ferskan and­blæ inn í æðstu stjórn pen­inga­mála hér á landi sé nokkuð erfitt að lesa úr yfir­lýs­ingum hans skýra afstöðu með eða móti verð­trygg­ingu lána til neyt­enda. Þó sé ljóst að Ásgeir sé vel með­vit­aður um andúð þorra almenn­ings á verð­trygg­ing­unni.

Í til­kynn­ing­unni segir enn­fremur: „Í við­tali í Við­skipta­blað­inu 1. júlí sl. sagð­ist Ásgeir „vona að við séum að kom­ast á þann stað núna að sá árangur sem við höfum náð í bar­átt­unni við verð­bólgu leiði til þess að [óverð­tryggð] nafn­vaxta­lán geti tekið við” af verð­tryggðum lánum. Hann sagð­ist þó sjá fyrir sér að það gerð­ist með nátt­úru­legum hætti, en sæi samt ekki til­gang­inn með því að banna verð­tryggð lán. Þessi ummæli hafa vakið furðu margra, þar á meðal Hags­muna­sam­taka heim­il­anna, og vakið ýmsar spurn­ingar”.

Bönnuð í 25 ríkjum

Hags­muna­sam­tökin spyrja hvort að seðla­banka­stjóri viti ekki að verð­tryggð lán flokk­ist sem lán með nei­kvæðri afborgun (e. negative amortisation) eða að vegna neyt­enda­vernd­ar­sjón­ar­miða sé lán sem hafa slíka eig­in­leika bönnuð í 25 ríkjum Banda­ríkj­anna og þar­lendar stofn­anir og félaga­sam­tök hafi varað sér­stak­lega við þeim?

„Veit seðla­banka­stjóri ekki að lán með slíka eig­in­leika eru einnig bönnuð í mörgum Evr­ópu­löndum? Telur seðla­banka­stjóri þessar aðgerðir stjórn­valda þeirra ríkja vera til­gangs­lausar? Veit seðla­banka­stjóri ekki að verð­tryggð lán auka hætt­una á fjár­mála­legum óstöð­ug­leika með því að auka hlut­fall spá­kaup­mennsku­lán­tak­enda (e. speculative borrowers)?”

Spurt er….

Og það brenna fleiri spurn­ingar á Hags­muna­sam­tök­unum:

,,Veit seðla­banka­stjóri ekki að verð­trygg­ing lána heim­il­anna þvælist fyrir pen­inga­stefnu seðla­bank­ans og gerir honum þannig erf­ið­ara að ná verð­bólgu­mark­miði sínu? Veit seðla­banka­stjóri ekki að þetta knýr seðla­bank­ann til þess að beita stýri­vaxta­tæki sínu af meiri hörku en ella sem leiðir til hærra og óstöðugra vaxta­stigs en ef lán heim­il­anna væru almennt óverð­tryggð?

Veit seðla­banka­stjóri ekki að hærra og óstöðugra vaxta­stig vegna útbreiðslu verð­tryggðra lána ýtir undir vaxta­mun­ar­við­skipti og gjald­eyr­is­bólur sem gera gengi krón­unnar óstöðugra en ella? Veit hann ekki að vegna mik­ils vægis inn­fluttra vara í vísi­tölu neyslu­verðs leiðir óstöðugra gengi til óstöðugri verð­bólgu og gerir seðla­bank­anum erf­ið­ara en ella að hemja slíkar sveiflur?

Veit seðla­banka­stjóri ekki að verð­trygg­ing ýtir undir útlána­getu banka og eykur þannig pen­inga­magn í umferð sem myndar víta­hring víxl­verk­unar verð­bólgu og pen­inga­legrar þenslu?

Hags­muna­sam­tök heim­il­anna telja reyndar að seðla­banka­stjóri viti flest af því sem hér hefur verið rakið og hafa því óskað eftir fundi með honum til að ræða nánar um skað­leg áhrif verð­trygg­ingar á heim­ilin og hag­kerfið”.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins