„Ég man fyrst eftir því þegar ég var svona fimm ára, þá heyri ég læti frammi þegar ég átti að vera sofnaður. Ég fór fram og sá bróður minn taka mömmu mína hálstaki.“
Óðinn Örn er er aðeins 17 ára gamall en hefur gengið í gegnum margt sem aðstandandi fórnarlamba fíknisjúkdóma. Í nýjasta hlaðvarpi Það er von segir hann opinskátt frá því hvernig fíknisjúkdómur bróður hans hafði bein áhrif á líf allrar fjölskyldunnar.
Kom heim í fráhvörfum
Óðinn segir að hann hafi ekki skilið allar aðstæðurnar á þessum aldri og hafi ekki hugsað meðvitað um þetta aftur fyrr en árið 2019, en þá hafi það komið almennilega í ljós að bróðir hans væri kókaínfíkill,
„Hann var komandi heim í fráhvörfum,“ segir Óðinn þegar hann lýsir hvernig ástandið var árið 2019. Bróðir hans hafi verið reiður og erfiður og hafi ráðist á sig og aðra fjölskyldumeðlimi í geðshræringunum sem fylgdu fráhvörfunum.
Óðinn talar um að það sé minnistætt þegar bróðir hans fór í fyrstu innlögnina á Vogi, hvað það hafi verið erfitt að sjá bróður sinn illa útlítandi, útkeyrðan, grannan og ræfilslegan. „Ég hélt að þetta væri bara búið eftir það.“
Mamma í meðvirkniskasti
Þegar stóri bróðir flutti heim eftir meðferð þurfti Óðinn að víkja og sofa á dýnu inni hjá mömmu og pabba því bróðir hans þurfti herbergið. Óðinn talar um að hafa oft liðið eins og „Palli einn í heiminum“ því líf foreldra hans snerist um bróður hans og sveiflurnar í kringum neysluna. „Mamma var auðvitað í meðvirkniskasti alltaf, gat ekki sótt mig í skólann því hún þurfti að hvíla sig vegna þess að þetta tók allt svo mikinn toll“.
Þegar Óðinn er spurður út í það hvort hann hafi trú á að bróðir hans nái bata þá svarar hann að í þessari meðferð sem hann sé í núna hafi hann fulla trú á honum og hann sé nú þegar búinn að fyrirgefa honum og hlakki til þess að eyða tíma með bróður sínum.
Fíkniefni eru ekki töff
Óðinn talar um hvernig það er að upplifa sig útundan, hann sé einn af fáum sem hefur ekki prófað kannabis og segist hann eiga fullt af vinum sem reykja kannabis og taka spítt og halda að það sé töff. Hann tekur það skýrt fram að það sé ekki töff að nota fíkniefni. Það sé sorglegt og það sé enn sorglegara að monta sig á því eða að hafa það viðhorf að það sé til upphafningar á einhvern hátt.
Óðinn hefur þrátt fyrir ungan aldur, upplifað margt sem tengist neyslu í gegnum ástvini en hann hefur bæði misst ástvin vegna neyslunnar og af slysförum eftir að neyslu lauk.
Hann tók afstöðu gegn því að nota hugbreytandi efni sjálfur vegna þess að hann veit hvert það getur tekið hann en í þættinum segir hann okkur frá nokkrum atvikum tengdum neysluheimi bróður síns sem hann þurfti að horfa upp á.




















Athugasemdir