„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Úlfari dreymdi um að myrða mann – Skaut ungan fjölskylduföður 4 sinnum í hnakkann

Úlfari dreymdi um að myrða mann – Skaut ungan fjölskylduföður 4 sinnum í hnakkann

Í apríl árið 1976 fékk ungur maður á Akureyri löngun til að upp­fylla gamlan draum. Draumur hans var að myrða mann. Hann braust inn í sport­vöru­verslun að kvöldi sunnu­dags­ins 4. apríl og stal 22 kali­bera Rem­ington riffli og skotum. Eftir að hafa gjör­eyði­lagt búð­ina með að skjóta af riffl­inum hélt hann á brott. Hann ætl­aði að láta draum­inn ræt­ast.

Um var að ræða 18 ára gamlan sjó­mann, Úlfar Ólafsson, sem var þegar orð­inn góð­kunn­ingi lög­regl­unnar fyrir smá­glæpi þrátt fyrir ungan aldur.

Lést samstundis

Skömmu eftir inn­brotið mættu tveir mennta­skóla­nemar Úlfari við Akur­eyr­ar­kirkja þar sem hann mund­aði að þeim riffl­inum og kvaðst mundu skjóta þá. Þeim var illa brugðið en Úlfar lét byss­una síga, sagði hana óhlaðna og hló. Drengirnir flúðu hið snarasta.

Því næst var Guðbjörn Tryggva­son, 28 ára kvæntur tveggja barna faðir, á ban­vænni leið Úlfars. Guðbjörn var á gangi og hugð­ist heim­sækja vin sinn. Þótt þeir þekkt­ust ekki neitt virð­ist vera að þeir hafi spjallað saman hinir róleg­ustu í örskots­stund áður en Úlfar lyfti riffl­inum og skaut Guðbjörn fjórum skotum í hnakka og eitt í öxl. Guðbjörn lést sam­stundis.

Lögregla var kölluð á svæðið snemma á sunnu­dags­morg­unin þegar hjón rák­ust á illa leikið lík Guð­björns. Það tók yfir­völd ekki langan tíma að tengja saman ránið á riffl­inum við morðið á Guðbirni. Riffl­inum hafði verið hent 160 metrum frá þar sem hann fannst í snjó­skafli. Raðnúmer stað­festi að um hið stolna vopn var að ræða.

Á röngum stað á röngum tíma

Málið var strax tekið traustum tökum og fjöldi manna yfir­heyrðir, þar á meðal pilt­arnir sem Úlfar hafi rek­ist á við kirkj­una. Gátu þeir gefið grein­ar­góða lýs­ingu á mann­inum og var Úlfar hand­tek­inn í kjöl­farið. Eftir að hafa verir yfir­heyrður í rúman sól­ar­hring játað hann morðið á Guðbirni, hæg­látum og vel liðnum fjöl­skyldu­manni, sem var svo óhepp­inn að vera á röngum stað á röngum tíma.

Að sjálf­sögðu var Úlfar lát­inn sæta geð­rann­sókn en var tal­inn sak­hæfur og dæmdur til 16 ára fang­els­is­vistar fyrir þetta til­efn­is­lausa og hrotta­lega morð sem átti sér engar máls­bætur. Hæsti­réttur mild­aði dóm­inn í 12 ár í febr­úar 1978 sökum ungs ald­urs Úlfars auk þess sem hann hafði ský­laust játað brot sitt.

Kveikti í Hrauninu

Úlfar komst aftur í frétt­irnar árið 1981 þegar hann, ásamt tveimur öðrum föngum, kveiktu í fata­geymslu á Litla-Hrauni sem erf­ið­lega gekk að slökkva. Bæði fangar og fanga­verðir hlutur reyk­eitrun og talið var að fangar í ein­angr­un­ar­klefum hafi verið í lífs­háska áður en slökkvi­liði tókst að ráða að nið­ur­lögum elds­ins. Allir þrír fengu tveggja ára dóm fyrir íkveikj­una sem talin var að hafa komið bæði föngum og starfs­fólki í lífs­háska.

Flestir töldu íkveikj­una hafa verið hluta af flótta­til­raun en það ját­uðu þre­menn­ing­arnir aldrei.

Úlfar flutti til Dan­merkur eftir að hafa setið af sér dóm sinn og lést þar árið 2009, 51 árs að aldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins