„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Garðabær þverneitar fyrir spillingu eftir milljarðasamning Bjargar: „Hagsmunatengslin voru þekkt“

Garðabær þverneitar fyrir spillingu eftir milljarðasamning Bjargar: „Hagsmunatengslin voru þekkt“
Gunnar Ein­ars­son bæj­ar­stjóri Garð­an­bær og Björg Fenger for­seti bæj­ar­stjórnar Garða­bæjar

Eftir að það kom upp á yfir­borðið með umfjöllun Mannlífs að meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í bæj­ar­stjórn Garða­bæjar hefði veitt for­seta sínum, Björgu Fenger, samn­ing án útboðs upp á einn millj­arð króna, þótt hún sé einn stærsti eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins sem hlaut samn­ing­inn – Terru – áður Gáma­þjón­ustan – reyndi Mannlíf í nokkra daga að fá við­brögð frá meiri­hlut­anum í Garðabæ. Þegar engin svör bár­ust þá setti blaða­maður Mannlífs saman ítar­legan spurn­ing­ar­lista og sendi á þá sem að mál­inu koma – þann 8. Júlí – og fylgdi með spurn­ing­ar­list­anum þessi fyr­ir­spurn:

Góðan dag.

Ég heiti Svanur Már Snorra­son og starfa sem blaða­maður á mann­lif.is

Ég skrif­aði frétt um samn­ing án útboðs sem Garðabær gerði við fyr­ir­tækið Terra sem er að hluta til í eigu for­seta bæj­ar­stjórnar Garða­bæjar.

Hér er teng­ill á frétt­ina: https://gamla.mannlif.is/frettir/gardabaer-snidgengur-log-samid-an-utbods-vid-fyrirtaeki-i-eigu-forseta-baejarstjornar/

Ég fer fram á að fá svör og upp­lýs­ingar varð­andi þetta mál – sem og svör við spurn­ingum Mannlífs varð­andi málið sem er að finna hér fyrir neðan í tölvu­pósti þessum – sem og í með­fylgj­andi við­hengi – og minni ég þig á að þér ber að veita umbeðin gögn skv. upp­lýs­inga­lögum nr. 140/2012.

Yfir­skrift pósts­ins frá Garðabæ var: Svör við fyr­ir­spurn Mannlífs varð­andi kaup á fær­an­legum hús­ein­ingum fyrir ung­barna­leik­skóla.

Ef ekki var nauð­syn­legt eða ólög­legt að gera samn­ing þennan án útboðs, hvers vegna var þá gerður samn­ingur við einmitt þetta fyr­ir­tæki, Terru?

„Eitt megin hlut­verka sveit­ar­fé­laga er að standa að þjón­ustu við íbúa sína og hér í Garðabæ hefur mörg und­an­farin ár for­eldrum ung­barna verið tryggð leik­skóla­vist fyrir börn sín frá um 12 mán­aða aldri. Í lok síð­asta árs lá fyrir mikil fjölgun leik­skóla­barna sem mjög brýnt væri að bregð­ast við með sem hag­kvæmustum hætti. Hafist var handa við að athuga þá kosti sem gætu verið í boði með það í huga að hafa til­búið hús­næði fyrir ung­barna­leik­skóla haustið 2021. Nið­ur­staða þeirrar athug­unar sem fór fram var að nota þær hús­ein­ingar sem í boði voru hjá fyr­ir­tæk­inu Terra ehf. Um er að ræða leigu á fær­an­legum hús­ein­ingum sam­kvæmt samn­ingi sem sam­þykktur hefur verið í bæj­ar­ráði. Með til­komu starf­semi ung­barna­leik­skóla mun Garðabær geta boðið fjölda for­eldrum allt að 96 barna leik­skóla­vist í haust.“

Lá það alveg ljóst fyrir að Terra væri hag­stæð­asti kost­ur­inn fyrir bæj­ar­búa Garða­bæjar sem án alls vafa vilja að sem best sé farið með skatt­pen­ing þeirra?

„Samn­ingur við Terra ehf. um fær­an­legar hús­ein­ingar fyrir starf­semi ung­barna­leik­sóla er mjög hag­stæður og kjör samn­ings­ins í alla staði eðli­leg. Hagkvæmi samn­ings­ins birt­ist fyrst og fremst í þeirri þjón­ustu sem Garðabær getur veitt sínum íbúum með því að bjóða for­eldrum ung­barna leik­skóla­vist frá um 12 mán­aða aldri.“

Eruð þið með kláran sam­an­burð varð­andi kostnað samn­ings­ins við önnur sam­bæri­leg fyr­ir­tæki á Íslandi sem mögu­lega hefðu tekið þátt í útboði verks­ins, hefði útboðið farið fram?

„Aðrir kostir voru skoð­aðir en nið­ur­staðan var að hag­kvæm­ast væri að semja við Terru og þróa verk­efnið með fyr­ir­tæk­inu á grund­velli samn­ings­kaupa sem er við­ur­kennd inn­kaupa­að­ferð og á vel við þegar verið er fara nýjar leiðir en í Garðabæ hefur aldrei verið farin sú leið starfs­rækja leik­skóla fyrir 4-6 deildir í fær­an­legum hús­ein­ingum. Í samn­ings­ferl­inu hefur verk­efnið verði mótað sam­eig­in­lega af aðilum eins t.d. hönnun þak­gerðar og ísetn­ing lagna fyrir gólf­hita sem er mjög til þæg­inda fyrir starf­semi ung­barna­leik­skóla. Þá hefur leik­skóla­stjóri, sem ráð­inn hefur verið til að stýra skól­anum, komið að yfir­ferð teikn­inga og í þeirri sam­eig­in­legu yfir­ferð hefur m.a. verið hægt að verða við óskum sem fram hafa komið t.d. á upp­röðun á eld­húsi, stærð glugga o.fl.“

Er á ein­hvern hátt eðli­legt að bæj­ar­stjórn sjötta stærsta sveit­ar­fé­lags Íslands, Garðabær, geri samn­ing þar sem deg­inum ljós­ara er og án alls vafa að hags­muna­tengsl eru mikil á milli bæj­ar­stjórnar Garða­bæjar og for­seta bæj­ar­stjórnar? Ef þið teljið þennan samn­ing hafa verið gerðan án vit­neskju ykkar um áður­nefnd hags­muna­tengsl þá bið ég ykkur að stað­festa það – vissuð þið eða ekki af áður­nefndum hags­muna­tenglsum?

„Í málum sem hafa verið til afgreiðslu í bæj­ar­stjórn er varða mál­efni Sorpu bs, þar sem fjallað hefur verið um gjald­skrár og fjár­mál byggða­sam­lags­ins hefur Björg Fenger, bæj­ar­full­trúi vikið sæti við afgreiðslu og umræðu um við­kom­andi mál og gætt í hví­vetna hæf­is­reglna sveit­ar­stjórn­ar­laga. Hag­muna­tengslin voru þekkt en eign­ar­hald eða önnur tengsl ein­stakra bæj­ar­full­trúa í fyr­ir­tækjum úti­lokar ekki að bæj­ar­stjórn taki ákvörðun um við­skipti við við­kom­andi fyr­ir­tæki. Bæj­ar­full­trúi sem veit hæfi sitt orka tví­mælis ber skylda til að vekja athygli á því og ber að ávallt að yfir­gefa fund­ar­sal við með­ferð máls og afgreiðslu. Það hafa bæj­ar­full­trúar í bæj­ar­stjórn Garða­bæjar ávallt gert til að gæta hæf­is­reglna og þá lýst sig van­hæfa til þátt­töku í með­ferð og afgreiðslu ein­stakra mála.“

Eru slík vinnu­brögð, að veita samn­ing án útboðs með hlið­sjón af aug­ljósum hags­muna­tengslum, algeng í bæj­ar­stjórn Garða­bæjar, og þar á ég við meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks­ins? Er svona samn­inga­gerð án útboðs og með aug­ljósum hags­muna­tengslum eitt­hvað sem mætti kalla „algengt og/eða almennt fyr­ir­komu­lag,“ og þá gert í fullri sam­vinnu og sátt við minni­hlut­ann í bæj­ar­stjórn?

„Við skoðun á fund­ar­gerðum bæj­ar­ráðs má sjá með aug­ljósum hætti að almennt gildir sú regla að verk­fram­kvæmdir eru boðnar út. Á árinu 2021 hafa verið opnuð til­boð í þrettán verk­efni, ýmist verk­fram­kvæmdir eða aðra þjón­usta. Við afgreiðslu á samn­ingi um leigu á fær­an­legum hús­ein­ingum fyrir ung­barna­leik­skóla hefur þess verið gætt að hags­muna­tengsl hafa ekki haft nein áhrif á ákvörð­un­ar­töku í mál­inu. Bæj­ar­full­trú­inn Björg Fenger sat ekki fund bæj­ar­ráðs þar sem samn­ing­ur­inn var sam­þykktur og það vita það eða eiga vita það allir bæj­ar­full­trúar að Björg hefur ekki haft nein afskipti að mál­inu.“

Hvaða ein­stak­lingur setti fram þá hug­mynd að skyn­sam­leg­ast væri að sleppa útboði varð­andi þennan samn­ing sem gerður var við Terra, og er því að ein­hverju eða að miklu leyti ábyrgur fyrir því að málið var afgreitt án útboðs og til hags­muna­að­ila sem er for­seti bæj­ar­stjórnar Garða­bæjar? Það getur ekki verið, eða er að minnsta kosti afar ólík­legt, að allir bæj­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Garðabæ hafi á sama and­ar­taki fengið þessa „hug­mynd“ og síðan fram­kvæmt hana – eða hef ég rangt fyrir mér í þeim efnum?

„Eins og fram kemur í svari við spurn­ingu nr. 1 lá það fyrir í lok síð­asta árs að vegna mik­illar fjölg­unar barna á leik­skóla­aldri væri brýnt að leita leiða til að geta veit for­eldrum ung­barna leik­skóla­vist fyrir börn sín. Það var sam­eig­in­legt verk­efni starfs­manna bæj­ar­ins að kanna hvað kostir væru í boði og sam­eig­in­leg nið­ur­staða að hag­kvæm­asti kost­ur­inn væri að semja við Terra ehf, um leigu á fær­an­legum kennslu­stofum. Garðabær er stoltur af því að opna nýjan ung­barna­leik­skóla í haust þar sem tekið verður á móti fjöl­mörgum leik­skóla­börnum og þannig komið á móts við þarfir mjög margra ungra for­eldra í bæj­ar­fé­lag­inu. Sjá frétt að vef bæj­ar­ins: Leik­skól­inn Mána­hvoll tekur til starfa í haust https://www.gardabaer.is/stjornsysla/utgefid-efni/frettir/leikskolinn-manahvoll-tekur-tilstarfa-i-haust“

Mannlíf mun fjalla áfram um þetta mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins