„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Búin að fá nóg af Íslandi – „Ég hef ekkert meira að gefa hér á landi“

Búin að fá nóg af Íslandi – „Ég hef ekkert meira að gefa hér á landi“
Wictoria Joanna Ginter. Mynd: Julie Rowland.

„Þetta gerði úts­lagið fyrir mig á Íslandi,“ skrifa Wictoria Joanna Ginter, Pólsk kona sem hefur verið búsett á Íslandi í 14 ár, í opinni færslu á Facebook.

„Takk fyrir allt sem þið hafið kennt mér um ykkur á 14 árum. Ég er búin að missa von­ina um að vera nokkurn tíma með­tekin inn í íslenskt sam­fé­lag. Ég hef ekk­ert meira að gefa hér á landi”.

Allt leit vel út

Hún seg­ist hafa lagt hart að sér ð leita að starfi sem myndi henta hennar hæfi­leikum, reynslu og menntun. Oft hafi hún sótt um störf sem ekki köll­uðu einu sinni á hennar reynslu og getu. Hún hafi sjaldan sem aldrei fengið svar, hvað það boð í við­tal. Fyrst hafi hún ein­fald­lega talið að eft­ir­spurn eftir störfum væri þetta mikil en smám saman hafi hana farið að gruna að erlent nafn hennar hefði eitt­hvað með þetta að gera.

„Ég var næstum búin að gefa upp von­ina þegar ég sá aug­lýs­ingu frá Marriot hót­el­keðj­unni, alþjóð­legri keðju hót­ela sem hefur á sér ákaf­lega gott orð. Ég sótti um stöðu veit­inga­stjóra og var boðuð í við­tal næsta dag. Ég fór í gegnum flókið ráðn­ing­ar­ferli og fékk hæstu mögu­legu nið­ur­stöðu og var sagt að það væri bók­staf­lega eng­inn annar á Íslandi sem myndi valda stöð­unni”.  Hún segir að vænt­an­legur yfir­maður væri erlendur aðili með mikla reynslu af því að opna hótel víða um heim, hún fékk að ráða sér aðstoð­ar­mann og allt leit afar vel út.

Vildu ekki útlendan starfsmann

Wictoriu var brugðið þegar hún fékk drög að samn­ingnum frá íslenska mannauðs­stjór­anum, föst laun og enga greidda yfir­vinnu, þrátt fyrir að hafa dregið veru­lega í land með launa­kröfur. Þegar hún sagð­ist ekki geta skrifað undir að óbreyttu var henni sagt að íslenski mannauðs­stjór­inn væri „ekki ánægður með fram­komu hennar”. Hún ræddi við  vænt­an­legan yfir­mann sinn sem sagði að atvinnu­til­boðið væri dregið til baka þar sem mat­reiðslu­menn­irnir og mannauðs­stjór­inn vildu EKKI ÚTLENDAN STARFSMANN!“

Wictoria var þá búin að segja upp starfi sínu til að taka við nýju stöð­unni. „Ég hef gefið Íslandi 14 bestu ár lífs míns. Ég hef aðlag­ast land­inu full­kom­lega, lært tungu­málið og unnið við að koma íslenski nátt­úru og menn­ingu á kortið. Ég hef verið virk í atvinnu­líf­inu og starfað í þágu íslenskra stjórn­mála. Ég á vini hérna, gifti mig hérna og eign­að­ist tvö ynd­is­leg börn hér á landi.

En ég er ekki inn­fædd og ber ekki íslenskt nafn. Ég á ekki skilið að vera aðili á íslenskum vinnu­mark­aði því ég á ekki íslenskt vega­bréf. Allt sem af mér er ætl­ast er að þrífa heima hjá fólki sem margt hvert ekki hefur sömu menntun og getu á vinnu­mark­aði og ég hef. Ég hef farið fram á íslenskan rík­is­borg­ara­rétt sem ég fæ ekki því það eru gerðar kröfur um ákveðna fjár­hags­lega stöðu sem ég get ekki sýnt fram á, meðal ann­ars vegna ástands­ins í kjöl­far Covid“.

Í þokka­bót segr hún Útlend­inga­stofnun hafa týnt öllum hennar papp­írum og aldrei svarað tölvu­pósti.

Ísland hefur barið mig niður

Wictoria segir Ísland hafa barið sig niður og hún hafi engan kraft til að berj­ast á móti lengur. Hún hafi gefið sig alla í að vera virkur með­limur í sam­fé­lag­inu en sann­leik­ur­inn sé sá að sama hvað maður reyni, sama hvað maður afreki, sama hvaða færni og hæfi­leika maður hafi, verði það aldrei nógu gott ef þú sért ekki inn­fæddur.

„Þú verður alltaf utan­veltu, inn­flytj­andi, útlend­ingur. Íslend­ingar segja sig eiga fram­sýnt sam­fé­lag, byggt á jafn­ræði sem taki vel á móti öllum. Það er langt frá því að vera rétt.  Ekki þykj­ast og sýnið vel­sæmi. Ég hef ekki meira að segja,“ segir Wictoria.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins