„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Barn drap barn fyrir utan Villta Tryllta Villa – Eina morðmál Íslands með skilorðbundnum dómi

Barn drap barn fyrir utan Villta Tryllta Villa – Eina morðmál Íslands með skilorðbundnum dómi

Aðeins einu sinni í rétt­ar­sögu Íslands hefur dómur í mann­dráps­máli fallið svo að ger­andi hafi fengið all­ann sinn dóm skil­orðs­bundin. Það gerð­ist þegar að 16 ára piltur var stung­inn til bana fyrir utan skemmti­stað­inn Villta Tryllta Villa árið 1985 en stað­ur­inn var vin­sæll sam­komu­staður ung­menna á níunda ára­tugnum.

Dreng­ur­inn var stung­inn til bana af öðrum dreng sem aðeins var fimmtán ára gam­all. Vegna ungs ald­urs þol­anda og ger­anda hafa nöfn þeirra aldrei verið gefin upp.

Uppnefni og slagsmál

Munu máls­at­vik hafa verið þau að eldri dreng­ur­inn hóf að gera grín að hinum yngri sem mun hafa glímt við and­lega erf­ið­leika og orðið fyrir miklu ein­elti í gegnum tíð­ina. Greip sá eldri húfu af honum, kleip í öxl hans og hóf að gera grín að sjúk­dómi sem hrjáði dreng­inn og var vel sýni­legur. Eftir upp­nefni, spörk og hnipp­ingar gekk eldri dreng­ur­inn á end­anum á brott en sá yngri elti hann, aug­ljós­lega í miklu upp­námi og spark­aði í bak hans með þeim afleið­ingum að sá eldri varð afar reiður. Yngri dreng­ur­inn var­aði þann eldri við að áreita sig framar en sá eldri tók ekki mark á því og hófust slags­mál í kjöl­farið.

Enduðu þau á að yngri dreng­ur­inn dró fram vasa­hníf og stakk þann eldri í hjarta­stað. Að verkn­aði loknum gaf hann sig strax fram við lög­reglu. Eldri dreng­ur­inn var í snar­hasti fluttur á sjúkra­hús en lést að völdum áverk­anna.

Einstök ákvörðun Hæstaréttar

Þegar málið var dóm­tekið tók Hæsti­réttur þá ákvörðun að fara niður fyrir lág­mark tíma­bund­innar fang­els­is­refs­ingar mann­dráps­á­kvæða íslenskra laga og dæmdi dreng­inn í fjög­urra ára skil­orðs­bundið fang­elsi.

Var litið til ungs ald­urs ger­anda auk þess sem hann hafði strax gefið sig fram við lög­reglu. Enn­fremur var litið til þess að verkn­að­ur­inn hafði verið fram­inn í mik­illi geðs­hrær­ingu auk þess sem dreng­ur­inn barð­ist við erf­iðan sjúk­dóm. Var álitið að fang­els­is­vist væri ekki við hæfi í mál­inu.

Slíkur dómur hefur aldrei fyrr né síðar verið felldur í Hæsta­rétti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Baksýnisspegillinn

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Íslend­ingur kom upp um rúss­neska njó­sn­ara: „Tveir af njósn­urum erlends stór­veldis stóðu afhjúpaðir“

Styrmir Gunn­ars­son heit­inn er ekki eini njósn­ari Íslands­sög­unnar. Á meðan Styrmir njósn­aði um vinstri­s­inn­aða Íslend­inga fyrir Banda­ríkin og Sjálf­stæð­is­flokk­inn, reyndu Soví­et­menn að fá Ragnar nokkurn Gunn­ars­son til lags við sig. Árið 1962 hafði Ragnar sam­band við lög­regl­una og tjáði þeim frá því að Soví­et­menn væru að biðja hann um að ger­ast njósn­ari í þeirra þágu. Við tók reyfara­kennd atburða­rás sem...
Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Glitfaxi – flug­vélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hug­hvarf“

Þann 31. jan­úar 1951 lagði Dagota flug­vél Flug­fé­lags Íslands að nafni Glitfaxi af stað í áætl­un­ar­flug frá Vest­manna­eyjum til Reykja­víkur. Um borð var þriggja manna áhöfn og sautján far­þegar. Veðrið var vafa­samt en hríða­bylur var úti og ekki hafði verið flogið til eða frá Eyjum í þrjá daga vegna veð­urs­ins. Rétt fyrir fimm var Glitfaxi staddur yfir stefnu­vita Reykja­vík­ur­flug­vallar á...
Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Frækileg björgun Víkverja er Sig­ur­björg strand­aði – Aðstæður erf­iðar vegna roks og sand­byls

Föstu­dag­inn 7. mars árið 1981 strand­aði bát­ur­inn Sig­ur­bára VE-249, á Skóg­ar­sandi. Sjö menn voru í áhöfn báts­ins en tókst að bjarga þeim öllum. Vest­manna­eyja­radíó til­kynnti björg­un­ar­sveit­inni Víkverja frá Vík í Mýrdal klukkan 10:50 föstu­dags­morg­un­inn 7. mars 1981, að Vest­manna­eyja­bát­ur­inn Sig­ur­bára VE-249 hefði strandað á Skóg­ar­sandi. Björg­un­ar­sveitin, sem var þaul­vön álíka björg­unum, var ekki í miklum vand­ræðum með að bjarga öllum...
Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyja­firði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrek­aðir

Fimm ungir skátar frá Akureyri lögðu af stað í leið­angur í Eyja­firði annan í jólum 1980. Aðeins þrír þeirra komu lif­andi úr ferð­inni. Fimm manna skáta­hópur lentu í skelfi­legu óveðri, sem eng­inn hafði búist við, þegar þeir tjöld­uðu í Finna­staða­dal annan í jólum 1980. Í óveðr­inu fauk ofan af þeim annað tjald þeirra af tveimur. Ákváðu þeir því að ganga...
Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Hópur afbrotaung­linga napp­aður á Sauð­ár­króki – Innbrot, búðar- og jóla­skraut­s­þjófn­aður

Hópur afbrotaung­linga var hand­samaður á Sauð­ár­króki í des­em­ber árið 1980 en höfðu þeir þá stolið úr versl­unum í bænum fyrir hátt á fjórðu milljón króna. Í ein­hvern tíma á seinni­hluta árs­ins 1980, hafði stór hópur afbrotaung­linga á Sauð­ár­króki gert það sem „starfs­heiti“ þeirra ber með sér, framið afbrot víðs­vegar um bæinn. Ekki höfðu þeir ein­ungis brot­ist inn í versl­anir í...
Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Íslend­ingur yfir­bug­aði banka­ræn­ingja í Kaup­manna­höfn: „Hann er spennu­fík­ill“

Ungur íslenskur spennu­fík­ill komst í frétt­irnar í Danmörku þegar hann yfir­bug­aði banka­ræn­ingja. Brynjar Jökull Elíasson, þá 27 ára, var staddur á mót­or­hjóli sínu á rauðu ljósi í Kaup­manna­höfn fimmtu­dag­inn 29. apríl árið 1999, þegar hann verð var við fimm hettu­klædda menn koma hlaup­andi út úr banka og stökkva upp á skell­inöðrur. Beið hann ekki boð­anna heldur hent­ist strax af stað...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins