„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

SÖFNUN – Sigríður er 31 árs einstæð tveggja barna móðir með fjórða stigs krabbamein

SÖFNUN – Sigríður er 31 árs einstæð tveggja barna móðir með fjórða stigs krabbamein

Sigríður Ragna Árna­dóttir er 31 árs ein­stæð tveggja barna móðir tveggja dætra, ell­efu og átta ára gamlar. Mikið hefur verið lagt á Sigríði und­an­farið ár og er hún það veik að hún á erfitt með að segja sína erf­iðu sögu en vinir hennar hafa lagt henni lið. Í sam­tali við Mannlíf sagði Sigríður þó að jafn­vel þetta hafi verið erfitt væri manns­hug­ur­inn þess eðlis að hún væri róleg þrátt fyrir þessi erf­iðu veik­indi.

Móðir og dóttir með krabbamein

Yngri dóttir Sigríðar var greind með nýrna­krabba­mein og ein­hverfu sem kall­aði á mikla umönnun af hendi Sigríðar, enda þurfti litla telpan að ganga í gegnum erf­iða krabba­meins­með­ferð. Á sama tíma greind­ist Sigríður sjálf með leg­hálskrabba­mein og þurfti að fara í horm­óna­með­ferð í kjöl­farið. Með­ferð­irnar gengu vel og voru þær báðar á bata­vegi þegar skell­ur­inn kom. Sem betur fer hefur telpan öðl­ast bata en er að sjálf­sögðu undir áfram­hald­andi eft­ir­lit.

Síð­ast­liðið sumar byrj­aði Sigríður að sjá miklar breyt­ingar á hægra brjósti. Í fyrstu mynd­uð­ust blæð­ingar og sær­indi á geir­vörtu sem ekki vildu gróa þrátt fyrir að læknar skrif­uðu upp á allar mögu­legar teg­undir af kremur og sterum. Það gekk aldrei að fá þá til að skoða þetta nánar.

Alvarlegur hjartagalli

Að því kom að Sigríður fór að taka eftir miklum bjúg sem læknar fundu enga ástæðu fyrir og var ekk­ert gert í mál­inu. Að lokum fékk hún loks grein­ingu á brjóstakrabba­meini en var sú veg­ferð bæði löng og ströng auk þess að vera lituð mis­tökum af hálfu heil­brigð­is­kerf­is­ins.

Í jan­úar þessa árs fékk Sigríður nýrna­steina, sem hún náði að losa á spít­al­anum og meðan hún var þar voru teknar myndir af mag­anum og sást ekk­ert óvenju­legt á þeim myndum fyrir utan nýrna­stein­anna.

Mánuði síðar tekur læknir Sigríðar eftir því að hún er komin með afar háan blóð­þrýst­ing og telur að um galla í hjarta­loku sé að ræða, sem mögu­lega kalli á aðgerð. Hún er send til hjarta­læknis og finnst mik­ill vökvi í goll­ur­hús­inu og grind með alvar­legan hjarta­galla. Skrifað var upp á fjórar teg­undir stera til að reyna að losna við vökvann en á þeim fjórum mán­uðum sem Sigríður var í með­ferð­inni bar hún lít­inn sem eng­ann árangur.

Þriðja og svo fjórða stigs krabbamein

Þrauta­ganga Sigríðar hélt áfram því í maí síð­ast­liðin byrjar brjóst hennar að aflag­ast og leitar hún þá til ann­ars læknis sem sem sá strax að eitt­hvað alvar­legt væri að. Við brjósta­mynda­töku þann 31. maí síð­ast­liðin grein­ist Sigríður með þriðja stigs brjóstakrabba­mein. Sýna­tökur, blóð­rann­sóknir og fleiri mynda­töku sýndu að krabba­meinið var búið að dreifa sér í lifr­ina.

Fyrri mynda­tökur og skann­anir höfðu allar misst af krabba­mein­inu sem reynd­ist vera á fjórða, og alvar­leg­asta stigi krabba­meins.

Læknateymið hóf rann­sóknir til að ákvarða nákvæma teg­und krabba­meins­ins og núna í júní kom í ljós að Sigríður hefur arf­gengt gen sem kall­ast p53. Um er að ræða afar sjald­gæft gen og mega þeir sem það bera ekki undir neinum kring­um­stæðum fara í geisla­með­ferð þar sem hún er þeim lífs­hættu­leg. Aftur á móti verður hún að gang­ast undir mjög árás­ar­gjarna lyfja­með­ferð til að vinna þennan bar­daga.

Gríðarlegur kostnaður

Vinir Sigríðar segja að kostn­að­ur­inn sem lagst hafi á Sigríði vegna lækna- og lyfja­kostn­aðar þennan stutta tíma hafi reynst henni gríð­ar­lega mik­ill, sem eitt og sér taki afar mikið á í þessum erf­iðu aðstæðum. Hún sér fram á mik­inn kostnað við áfram­hald­andi með­ferðir og taka sjúkra­trygg­ingar aðeins hluta af þeim.

Þeir sem vilja leggja Sigríði lið á þessum erf­iðu tímum er bent á söfnun sem vinir hennar hafa hafið og er að finna hér

Einnig er hægt að leggja beint inn á Sigríði í gengum eft­ir­far­andi ban­ka­upp­lýs­ingar.

Sigríður Ragna Árna­dóttir, kt. 240290-3249, reikn­is­númer: 0115-05-066583.

Eða eins og vin­kona hennar skrifar á söfn­un­ar­síð­una: „Munum að allt smátt gerir gagn og safn­ast saman hratt“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins