„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Spurt hvenær kalla skuli til Barnavernd: „Barnið skítugt með ónýtan glerung og angar af fúkkalykt“

Spurt hvenær kalla skuli til Barnavernd: „Barnið skítugt með ónýtan glerung og angar af fúkkalykt“
Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint.

„Hvenær er ástæða til að hafa sam­band við Barna­vernd­ar­nefnd?“ spyr kona sem kýs ekki að koma fram undir nafni á Facebook síð­unni Mæðratips. Hún segir að barns­móðir manns hennar sendi barnið til þeirra í of litlum fötum, með skítugt hár, óhreinar og óklipptar neglur auk þess sem það angi af fúkka­lykt.

Hún segir enn­fremur tann­gler­ung vera að eyð­ast upp hjá barn­inu, það sé búið að vera í sömu skónum í tvö ár, sé með bauga, and­fúlt og allt út sárum.

Og að hún gæti hæg­lega til­tekið fleira, að eigin sögn.

Sjáum fötin aldrei aftur

Hún segir að þau hjón hafi boð­ist til að kaupa ný föt á barnið en svo virð­ist sem hún gleymi eða hundsi athuga­semdir. „Við höfum rætt um að senda föt á milli en hún harð­neitar því, og segir að hún kaupi föt á það og við kaupum svo föt sem við eigum að vera með hjá okkur á það. Það hefur ein­staka sinnum komið fyrir að það komi í fötum sem það passar í, en þá eru það mjög illa farin föt. Og við sendum það í nýjum fötum til­baka sem við sjáum aldrei aftur.“

Hún tekur fram að henni sé langt því frá að vera illa við móð­ur­ina, hún sé almenni­leg og kurt­eis, en lítið sem ekk­ert breyt­ist við sam­töl.

Mikill fjöldi kvenna hefur lagt orð í belg og komið með hug­myndir og til­lögur.

Hjördís bendir á að Barna­vernd sé engin Grýla. Þar fáist stuðn­ingur ef þörf er á, inn­grip í formi stuðn­ings og eft­ir­fylgdar ef þörf er á. „Barna­vernd er engin refs­ing fyrir að standa sig illa sem for­eldri. Það á sam­kvæmt lögum að til­kynna ef grunur er að barn búi ekki við nægi­lega gott atlæti á heim­ili. Ef við til­kynnum ekki um slíkan grun okkar erum við sak­hæf ef upp um það kemst“.

„Að til­kynna á ekki að vera ávísun á sam­visku­bit“

„Það á að vera léttir að vita af fag­fólki sem mun kanna aðstæður og gera það sem þarf, ef þess er þörf“. Karen tekur undir og segir barnið ávallt eiga að njóta vafans, það sé ekk­ert það því að leita til fag­að­ila og láta þau meta hvort grípa þurfi inní.

Sigga bendir á að móð­irin gæti hugs­an­lega farið í hart. „Þess vegna var mitt ráð að láta það þá frekar koma frá ömm­unni eða vin­konu pars­ins eða ein­hvers sem þau þekkja sem er til­bú­inn að taka á sig reiði móður“.

Þrif hafa ekkert með fátækt að gera

Stella segir það van­rækslu að tann­bursta ekki barn, þrífa og þvo á því hárið. Það hafi ekk­ert með fátækt að gera. Og Bryn­hildur bendir á að ef til væri best að leita til barna­læknis og tann­læknis þar sem gler­ungseyð­ing gæti verið ómeð­höndlað bak­flæði og and­fýla tengd of stórum háls­kirtlum.

Aðrar benda á að fúkka­lykt gæti tengsl myglu í húsi sem orsakað geti veik­indi.

Margir spyrja kon­una hvort þau kaupi ekki önnur föt til að eiga hjá sér og hvort þau hafi ein­fald­lega sest niður til að finna sam­eig­in­lega nið­ur­stöður sem verði til þess að barnið upp­lifi besta mögu­lega umhverfi.

Það sé best að gera áður en leitað sé til yfir­valda. Það sé alltaf betra að reyna að leysa hlut­ina á góðu nót­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins