„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Silja Björk fær hugsanlega sjötta kröfubréfið frá Villa Vill lögmanni Ingós veðurguðs

Silja Björk fær hugsanlega sjötta kröfubréfið frá Villa Vill lögmanni Ingós veðurguðs

Samkvæmt  heim­ildum Mannlífs er Silja Björk rit­höf­undur, femínisti og stofn­andi hlað­varps­ins Kona er nefnd, lík­lega sú sem á von á sjötta kröfu­bréf­inu sem sent hefur verið út, til við­bótar við þau fimm sem áður hafa verið send. Það voru þessir aðilar sem fengu bréfin fimm: Edda Falak, fjár­mála­fræð­ingur, Crossfit þjálf­ari, Þátta­stjórn­andi, Stofn­andi og Eigandi hlað­varps­ins Eigin Konur, Erla Dóra Magn­ús­dóttir, blaða­maður, Ólöf Tara Harð­ar­dóttir, einka­þjálf­ari, nær­ing­ar­ráð­gjafi og með­limur aðgerða­hóps­ins Öfga, Sindri Þór Hilmars- og Sig­ríð­ar­son mark­aðs­stjóri og Kristlín Dís Ingi­lín­ar­dóttir, blaða­maður.

Silja Björk gæti átt von á kröfu­bréfi. Facebook

Silja Björk tísti þessu þegar fyrri kröfu­bréf höfðu verið send út og er talið að þetta séu þau ummæli sem sjötta kröfu­bréfið snú­ist um: „Ókei mér finnst geggjað að Halli bjóð­ist til að aðstoða þessa kven­skör­unga fjár­hags­lega en….erum við samt ekki ÖLL sam­mála því að við erum ekki að fara að moka pen­ingum í barn­a­níð­ing og nauð­gara???“.

Tíst Silju Bjarkar Skjáskot Twitter

Frétta­blaðið greinir frá því að Silja Björk sé enn ekki búin að fá bréf frá lög­fræð­ingi Ingólfs Þór­ar­ins­sonar, Ingó veð­urguðs. „ Silja hafði þetta um málið að segja þegar blaðið hafði sam­band við hana: „Þetta er sett fram á mjög hlut­lausan hátt og eng­inn er nefndur á nafn nema Halli. Þetta er almennt yfir­lýs­ing um ástandið í þjóð­fé­lag­inu og í dóms­kerf­inu frekar en eitt­hvað annað. Ef ein­hver aðili hefur tekið þetta til sín per­sónu­lega þá verður sá sami að eiga það við sjálfan sig“.

Þá kemur einnig fram að Vil­hjálmur Vil­hjálms­son lög­maður Ingólfs hafi sagt að ein­ungis væru send út kröfu­bréf í tengslum við alvar­leg­ustu ásak­an­irnar á hendur hans skjól­stæð­ings. „Það að hópur fólks hafi ákveðið að beita fyrir sig slag­krafti sam­fé­lags­miðla og ráð­ast á umbjóð­anda minn með nafn­lausum ósönnum ásök­unum um alvar­leg kyn­ferð­is­brot gegn börnum og nauðg­anir, er ekki bara gróf aðför að frið­helgi einka­lífs og æru umbjóð­anda míns, heldur líka rétt­ar­rík­inu. Því ef þessi aðferð er sam­þykkt getur hver sem er fyr­ir­hafn­ar­laust rústað mann­orði hvers sem er í skjóli nafn­leyndar“.

Nú er bara að bíða og sjá hvort Silju Björk eigi eftir að ber­ast kröfu­bréf eður ei.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins