„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gjafsóknarnefnd refsaði ungri einstæðri móður fyrir að tjá sig um ofbeldi sem hún varð fyrir

Gjafsóknarnefnd refsaði ungri einstæðri móður fyrir að tjá sig um ofbeldi sem hún varð fyrir

Ungri ein­stæðri móður var neitað um gjaf­sókn af gjaf­sókn­ar­nefnd er hún reyndi að grípa til varna gegn meið­yrða­kæru ofbeld­is­manns síns. Konan hafði tjáð sig um reynslu sína á Facebook síðu sinni og nefndin beitti hug­lægu mati og hafn­aði beiðni hennar. Nefndin sagði enn fremur að konan hefði komið sér í þessa stöðu sjálf með skrifum sínum. Afrit af bréf­inu sem konan fékk má sjá neðst í frétt­inni.

Huglægt mat sem ekki verður rökstutt í löngu máli

Í bréfi sem konan fékk er sagt að mat nefnd­ar­innar sé hug­lægt og það verði ekki rök­stutt í löngu máli. Af þessum orðum má draga þá ályktun að engin lög séu til sem banna nefnd­inni að veita kon­unni gjaf­sókn, heldur hafi með­limir nefnd­ar­innar ein­ungis beitt hug­lægu mati við ákvörðun sína. Þetta er í hæsta máta mjög und­ar­legt fyr­ir­komu­lag í ljósi þess að fram kom í gögnum máls­ins að konan hefði orðið fyrir and­legu og lík­am­legu ofbeldi og með þessu átti að gera henni jafn­vel ókleift að berj­ast á móti kærum ofbeld­is­manns síns.

Þú komst þér í þessa stöðu sjálf

Þá segir í bréf­inu: „Umsækj­andi kom sér í þá aðstöðu sem hún nú er í með skrifum sínum um stefn­anda“. Konan sótti um gjaf­sókn á öðrum grund­velli að auki þess er snýr að fjár­hag og stöðu hennar. Sá grund­völlur snýr að því að ágrein­ings­efnið skiptir veru­lega miklu máli fyrir félags­lega stöðu og einka­hagi hennar. Miklir hags­munir séu í húfi þar sem stefn­andi sé að krefj­ast bæði refs­ingar og miska­bóta.  Einnig er til­greint að vegið sé af tján­ing­ar­frelsi kon­unnar og því sé mik­il­vægt fyrir hana að geta gripið til varna í mál­inu.  Þessu neit­aði gjaf­sókn­ar­nefnd einnig „Að virtum öllum þeim gögnum sem hefur lagt fyrir gjaf­sókn­ar­nefnd fær nefndin ekki séð úrlausn meið­yrða­máls­ins muni hafa veru­leg áhrif á félags­lega stöðu og/eða einka­hagi umsækj­anda“.

Gjafsóknarnefnd refsaði konunni tvívegis

Nefndin refsar kon­unni ekki ein­göngu fyrir það að tjá sig um and­legt og lík­am­legt ofbeldi á sinni eigin Facebook síðu með því að hafna henni, heldur hafnar hún henni að öðru sinni á þeim for­sendum sem sagt var frá hér að ofan. Konan upp­fyllir skil­yrðið fjár­hags­lega sem þýðir að hún er ekki með miklar tekjur, hún er með börn á fram­færi sínu og situr undir meið­yrða­kæru frá mann­inum sem beitti hana ofbeldi og fær enga hjálp fjár­hags­lega til þess að grípa til varna. Konan tók einnig fram í umsókn sinni að ef hún fengi ekki gjaf­sókn gæti hún ekki gripið til varna. Þarna skilur gjaf­sókn­ar­nefnd ein­stæða móður sem borið hefur upp ásak­anir á hendur mann­inum sem er að kæra hana fyrir það eitt að tjá sig um reynslu sína á sinni Facebooksíðu, eftir varn­ar­lausa og að því er virð­ist refsar henni fyrir það að segja frá ofbeld­inu sem hún telur sig hafa orðið fyrir.

Hér að neðan er afrit af bréf­inu sem konan fékk frá gjaf­sókn­ar­nefnd­inni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins