„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gísli Marteinn hughreystir Auð og Ingó: „Ég sé þetta ekki sem eitthvað svakalegt vandamál“

Gísli Marteinn hughreystir Auð og Ingó: „Ég sé þetta ekki sem eitthvað svakalegt vandamál“

Gísli Marteinn var gestur í hlað­varps­þætt­inum Eigin Konur hjá þeim Eddu Falak og Fjólu Sig­urð­ar­dóttur. Þáttinn sem kom út í gær 19. júlí má finna hér.

Margt mál­efnið bar á góma í þætt­inum svo sem stjórn­mál, sam­göngur, matar­æði, umhverf­is­vernd, fjöl­miðla og tján­ing­ar­frelsi þeirra. Edda Falak kall­aði Gísla hinn full­komna mann meðal ann­ars því hann væri jákvæður, hugsar um umhverfið og á ekki bíl. Sjálfur sagð­ist Gísli vera hálf­gerður Reynir Pétur því nú gengi hann allra sinna ferða. Áður kvaðst hann hafa hjólað allra sinna ferða en hjólið hans hafi ryðgað í sundur og hann væri ekki búinn að finna slíkt hjól hér á landi aftur, því gengur Gísli allra sinna ferða.

Slaufunarmenning

Í kjöl­far umræð­unnar um tján­ing­ar­frelsi fjöl­miðla fóru þau að ræða slauf­un­ar­menn­in­ingu. Edda innti Gísla Martein eftir svari við því hvað honum þætti um fyr­ir­bærið. Gísli Marteinn svar­aði því til að honum þætti hug­takið slauf­un­ar­menn­ing ef til vill og gild­is­hlaðið. Gísli sagði að senni­lega upp­lifðu margir að tón­list­ar­mönn­unum Auði og Ingó hefði verið slaufað en ef horft væri á málin án þess að ein­blína á mál þeirra sem eru ný og í gangi um þessar mundir, „Hefur ein­hverjum verið cancelað á Íslandi ?“. Hann minnt­ist þess alls ekki að það hefði nokkrum eða nokkrum verkum lista­manna né ann­arra verið slaufað á Íslandi. Enn fremur sagði Gísli að fyr­ir­bærið væri ekk­ert nýtt og hann hrein­lega skildi ekki af hverju mörgum virt­ist þetta svona mikið vanda­mál.

Hver var tekinn af lífi ?

Gísli fór líka inn á það sem er mikið notað í umræðum sem þessum, það að verið sé að taka fólk af lífi: „Ég sé þetta ekki sem eitt­hvað svaka­legt vanda­mál, eða að það sé verið að taka fólk af lífi“ sagði Gísli Marteinn og varp­aði fram annarri spurn­ingu „Hver hefur verið tek­inn að lífi og ekki átt aft­ur­kvæmt ?“.

Valdaminna

Gísli Marteinn var greini­lega með sterkar skoð­anir á slauf­un­ar­menn­ingu og öllu því umtali sem hefur verið í kringum öll þau fjöl­mörgu meintu kyn­ferð­is­brot sem upp hafa komið upp á síðkastið. Gísli sagði „Ég veit um fullt af strákum sem enn þá eru í umræð­unni út af kyn­ferð­is­of­beldi en lifa flottu lífi“ og þær Edda og Fjóla tóku undir það hjá kapp­anum. Gísli sagði að valda­m­inna fólki væri oft slaufað af þeim sem valda­meiri væru í sam­fé­lag­inu en breyt­ingin sé að með til­komu sam­fé­lags­miðla sé valda­m­inna fólkið að fá rödd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins