„Ekki eru fallegar fréttir sem maður les um af tjaldstæði Mosfellinga. Ekki sturta, ekki þvottavél, ekki þurrkari, varla borð með vaski fyrir þá sem skyldu nú vera í gamaldags tjaldi – til að vaska upp leirtauið sitt – Og svo eru fréttir um að þetta tjaldsvæði sé með þeim dýrustu á landinu“. Á þessum orðum hefst innlegg Auðar sem hún setur inn á hópinn Íbúar í Mosfellsbæ.
Hún spyr svo hvernig það væri nú að Mosfellingar myndu setja metnað sinn í að vera eitt af bestu tjaldsvæðunum á landinu. Auður kemur með hugmyndir „Til dæmis að þeir sem borga á tjaldstæðið fái frítt í sund. Þannig er það í siðmenntuðum samfélögum þar sem ég hef ferðast um landið“. Hún bætir svo um betur og setur fram fram lista í fjórum liðum og segir að það sé krafa varðandi það að það verði sett upp fyrsta flokks aðstaða fyrir ýmis konar þrif.
Auður líkur pistli sínum á þessum orðum:
„Það kostar sveitarfélagið smáaura að laga svona en gæti gert alla ferðalanga ánægðari- og gæti orðið til þess að fólk utan af landi vildi koma aftur – en eins og staðan er í dag er það alls ekki inni í myndinni.
Það gengur ekki að rukka fyrir ekki neitt, það græðir enginn nokkurn skapaðan hlut á því að heimta bara peninga ÁN NOKKURRAR ÞJÓNUSTU !“.
Mosfellingar svara
Mosfellingar láta ekki standa á sér og svara Auði.
„3900 í þrjár nætur með rafmagni telst varla mikið. Ferðast mikið og kannast ekki við að það sé frítt í sund nema á Ólafsfirði“
segir Hrafnhildur. Hekla segir
„Það mætti klárlega bæta við uppvöskunaraðstöðu og ruslafötu en sturtur eru ekki nauðsynlegar finnst mér þegar stutt er í sundlaug. Alls ekki svoleiðis aðstaða alls staðar og alls ekki oft frítt í sund“
. Elísa leggur svar í púkkið
„Ég fór hringferð um landið í júní með hjólhýsi – að Vestfjörðum meðtöldum og gistum við á mörgum stöðum – hvergi nokkurs staðar var frítt í sund af því að við vorum á tjaldstæðinu. Fórum reyndar ekki á Ólafsfjörð… Ekki alls staðar sturtur enda óþarfi, þannig lagað, ef það er sundlaug nálægt. Verðin sem við vorum að borga fyrir 2 fullorðna með rafmagni var yfirleitt í kringum 5.000 pr. nótt og svo kostar yfirleitt 900-1000 í sund“.




















Athugasemdir