Göngukona lést í Fljótsdal á Austurlandi í dag, af völdum áverka sem hún varð fyrir er hún slasaðist í fjallgöngu. Frá þessu greinir lögreglan á Austurlandi sem veitir engar frekari upplýsingar að svo stöddu:„Banaslys í Fljótsdal á AusturlandiUm klukkan 14 í dag barst tilkynning til lögreglu um slys í suðurdal Fljótsdals á Austurlandi.Kona í fjallgöngu hafði slasast og lést af völdum áverka sem hún varð fyrir.Unnið er að rannsókn málsins og ekki verða frekari upplýsingar veittar að svo stöddu.“




















Athugasemdir