„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ógvænleg reynsla Sigrúnar í trylltum strákahóp í miðborg:„Líf mitt var í hættu og allir litu undan“

Ógvænleg reynsla Sigrúnar í trylltum strákahóp í miðborg:„Líf mitt var í hættu og allir litu undan“

Sigrún Huld, segir frá mjög svo ógn­væn­legri reynslu á síðu sinni á Facebook, sem hún varð fyrir niðri í miðbæ innan um fullt af fólki. Lenti hún í hópi stráka sem bók­staf­lega fóru með hana eins og dúkku gegn hennar vilja og það virt­ust allir sem í kringum þau voru virt­ust renna blindu auga til þess sem var að eiga sér stað.

Sigrún Huld varð fyrir mjög ógn­væn­legri reynslu

Talaði fyrir mig eins og búktalari

Sigrún segir að fyrir 20 árum, þá í kringum tví­tugt sjálf, hafi hún orðið fyrir sínu stærsta sam­fé­lags­sjokki. Hún segir að þá hafi hún skilið það 100 pró­sent að hún gæti ekki treyst sam­fé­lag­inu. Hún var á gangi niður Banka­stræti klukkan 21 á síð­su­m­ar­kvöldi og mikið af fólki var í bænum, bæði gang­andi og akandi. „Ég mætti hóp af strákum í miklu stuði. Ég hugs­aði hvort ég ætti að fara yfir göt­una. Þeir voru háværir. En allir bílar voru á rauðu ljósi og pakkað í bænum. Ég taldi mig örugga. Ég labb­aði í gegnum hóp­inn hratt, en einn þeirra náði taki á mér. Þeir voru mjög ölv­aðir. Hann vildi draga mig með þeim áfram í partý. Hann hélt fast í hand­legg­inn á mér. Það greip mig ofsa­hræðsla og ég barð­ist um, en hann var stór og sterkur þannig að mér tókst ekki að losa mig. Ég horfði í kringum mig og reyndi að ná ein­hverjum augna­ráðum en ég kom ekki upp orði. Eins og að geta ekki öskrað á hjálp í martröð. Þau vildu ekki líta í átt­ina til mín. Gangandi veg­far­endur og bílar. Það var svo mikið af fólki þarna… Þeir höfðu gaman að mér að berj­ast um. Stóri sterki kom aftan að mér, greip fast um brjóstin mín og lyfti mér upp, eins og dúkku. Talaði fyrir mig eins og búktal­ari og dúaði lík­am­anum mínum í takt við orðin. Allt um hvað ég væri desperate í dick og þannig ógeð. Þeir voru mjög háværir og ómögu­legt að leiða þetta hjá sér sem veg­far­andi. Mitt sjálf­bjargar við­bragð fór úr Fight í Freeze. Eina sem ég gat gert“.

Allir litu undan

Sigrún segir að líf sitt hafi verið í hættu en það litu allir undan. Strák­arnir misstu loks­ins áhug­ann á henni og þeim sterka fannst orðið erfitt að dúa líf­lausum lík­ama hennar og sleppti henni að lokum. Þeir sögðu hana hressa stelpu og spurðu hana hvort hún vildi ekki koma með þeim í partý. Sigrún seg­ist hafa vandað sig við það að vera kurt­eis og afþakk­aði boð strák­anna, hana lang­aði þó mest af öllu að klóra úr honum augun.

„Þetta atvik hafði djúp­stæð var­an­leg áhrif á mig. Þarna missti ég alveg þennan hluta af örygg­is­til­finn­ing­unni. Að ég byggi í öruggu og rétt­látu sam­fé­lagi. Sem mann­eskja með fullt af tráma þá má setja það sem svo að mitt stærsta tráma, sem ég kalla: Þú ert ekki til, hafi þarna lent í ‘slysi’ og laskast all­veru­lega ofan á meiðslið sem fyrir var. Þannig að til­finn­ingin að ég sé ósýni­leg eða ómerki­leg eða óvið­eig­andi fór þarna að taka gríð­ar­legt pláss og gerir oft enn í dag“.

Sigrún endar á því að segja: „Í hvert skipti sem ég sé og tekst á við ger­enda­með­virkni ýfist upp þetta tráma. Í hvert skipti sem ég tjái mig um þessi mál set ég græð­andi smyrsli á þetta tráma. Í hvert skipti sem ég sé aðra berj­ast gegn ofbeldi og ger­enda­með­virkni þá fæ ég græð­andi smyrsl á sári“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins