„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lilja tók við systkinum sínum 15 ára eftir andlát móður: „Ég bara var að passa þessi börn“

Lilja tók við systkinum sínum 15 ára eftir andlát móður: „Ég bara var að passa þessi börn“
Lilja Hafdís Óla­dóttir sér um þjón­ustu fyrir ferða­menn í Sænauta­seli.

Það er svo­lítið ævin­týra­legt að aka frá þjóð­veg­inum og svo í átt­ina að Sænauta­seli á Jök­ul­dals­heiði. Við tekur nokk­urra mín­útna akstur á mal­ar­vegi. Bærinn birt­ist svo við vatnið. Sænauta­vatn.

Sænauta­sel á Jök­ul­dals­heiði.

Þögnin. Kyrrðin. Náttúran. Fugla­söng­ur­inn. Vind­ur­inn. Örfáir regn­dropar. Svo fer sólin að skína.

Gengið er yfir brú til að kom­ast yfir ána Kíl sem rennur í vatnið og með fram bænum.

Uppgert fjár­húsið með torf­þak­inu er nú orðið að veit­inga­skála. Tvö lömb koma gang­andi. Horfa for­vitnum augum á gest­inn nýkomna sem fer síðan inn í skál­ann.

Heyrist ekki bofs í þeim. Ekkert meee.

Lömb við Sænauta­sel. Heyrist ekki bofs í þeim. Ekkert meee. (Mynd: Svava.)
Þetta er svo­lítið eins og að fara aftur í tíma.

Hlaðnir veggir.

Fortíðin sjálf.

Lilja Hafdís Óla­dóttir hefur í tæpa þrjá ára­tugi dvalið þarna á sumrin en hún sér um þjón­ustu við ferða­menn ásamt sam­býl­is­manni sínum, Birni Halli Gunn­ars­syni.

„Ég fædd­ist á bænum Merki þar sem ég bý enn og hef meira og minna verið bóndi,“ segir Lilja þar sem hún situr í eld­hús­inu sem er í timb­ur­húsi áföstu veit­inga­skál­anum.

Hún er elst fimm systk­ina. Dreymdi um að fara í garð­yrkju­skóla og voru nem­endur teknir inn annað hvert ár.

„Þetta er kannski drama­saga en þannig var það að móðir mín dó og ég eig­in­lega tók við öllum systk­inum mínum þegar ég var 15 ára. Litlum og stórum; bróðir minn er tveimur árum yngri en ég og svo eru önnur sem eru mikið yngri og það yngsta var þriggja ára. Og þá fest­ist ég þarna. Ég bara var að passa þessi börn og það gekk ekki upp að fara í skól­ann.

Svo óx þetta úr grasi og þau fóru að heiman þessi blessuðu börn. Þegar þau voru upp­komin þá sótti ég snögg­lega um að kom­ast inn í Bæna­da­skól­ann á Hvann­eyri 32 ára og var þar í tvo vetur. Það var gott og skemmti­legt.

Ég hef síðan unnið víða um land við hitt og þetta en í stuttan tíma í einu. Ég vann til dæmis við elda­mennsku í 10 sumur við virkj­un­ina á Fljóts­dals­heið­inni sem end­aði svo sem Kára­hnjúka­virkjun auk þess sem ég vann við mæl­ingar og var meira að segja á jarð­bor.“

Bænda­störfin á Merki hafa þó verið hennar aðal­starf og svo rekst­ur­inn í Sænaut­seli.

Og við gáfum öllum kaffi

Sænauta­sel er eitt af heið­ar­býl­unum á Jök­ul­dals­heiði og er það eina sem hefur verið gert upp en það er áhuga­vert að dvelja þar jafn­vel í nokkra daga og ganga svo á milli rústa hinna og kynn­ast sögu þeirra sem og nátt­úr­unni á svæð­inu.

Það er áhuga­vert að dvelja í Sænauta­seli jafn­vel í nokkra daga og ganga svo á milli rústa hinna og kynn­ast sögu þeirra sem og nátt­úr­unni á svæð­inu. (Mynd: Svava.)
Heið­ar­býlin eru í 5-600 metra hæð yfir sjáv­ar­máli.

Auðun H. Ein­ars­son kenn­ari hafði mik­inn áhuga á sínum tíma að Sænauta­sel yrði byggt upp og lagði hann sitt af mörkum til að svo mætti verða og sá hann um tré­smíð­ina og fleiri komu svo að verk­inu. Lilja var ráðs­kona á staðnum á meðan verið var að end­ur­byggja bæinn sum­arið 1992.

„Ég eld­aði ofan í 24 manns. 20 ung­linga og fjóra full­orðna. Það var byrjað 1. júlí að end­ur­byggja gamla bæinn og 20. júlí var hann orð­inn fok­heldur og þá var þetta í raun­inni búið það sum­arið. Næsta sumar var verið meðal ann­ars að klára að þilja bað­stof­una auk þess sem það var verið að byggja sal­ern­is­að­stöðu og brú.“

Lilja segir að Ævar Kjart­ans­son hafi gert mynd um Sænauta­sel sem sýnd var á RÚV vet­ur­inn 1993 og sum­arið eftir hafi gestir farið að koma.

„Við Auðun sögðum „það eru bara komnir átta til 10 manns í dag“ og við gáfum öllum kaffi. Ég sagð­ist hafa keypt kaffi fyrir 20.000 krónur fyrir sum­arið og að ég ætl­aði að selja kaffi sum­arið á eftir ef ég gæti fengið Sænauta­sel leigt. Þetta þótti vera ægi­lega góð hug­mynd og svona byrj­aði það,“ segir Lilja sem leigir Sænauta­sel af sveita­fé­lag­inu Múla­þingi. Fjár­húsið, þar sem veit­inga­skál­inn er, var end­ur­byggt árið 2002 og tekið í notkun árið 2004 og svo er við­bygg­ing úr timbri þar sem er eld­hús og svefn­loft fyrir starfs­fólk.

Þangað til þetta sprakk

Ævin­týrið á heið­inni var hafið.

„Mér fannst vera asna­legt að vera bara með kaffi en þó byrj­aði það reyndar þannig. Svo fékk ég þá hug­mynd að það væri ekk­ert mál að eiga lummu­deig en það er hægt að gera það nokkurn veg­inn jafn­óðum. Það end­ist kannski í fjóra til fimm tíma. Ég var nátt­úr­lega ekki með ísskáp þá en maður varð að hugsa í lausnum. Það þurfti bara að gera nógu lítið og það sem passar. Ég var þá með kú við Sænauta­sel og mjólk­aði og gerði osta og allt mögu­legt svo sem að skilja og gera rjóma. Og fólk hafði líka gaman af að sjá það.“ Svo var sil­ungur veiddur í Sænauta­vatni og hann reyktur. Og það er reyndar gert enn.

„11 sumur var ég að berj­ast í þessu þangað til þetta sprakk.

Allt í einu komu rútur með útlend­ingum, kannski 28 manna rútur. Það þurfti að taka þetta inn í tveimur hollum og ég sagði að nú gæti ég þetta ekki lengur.“

Fólk ýtti á Lilju að halda veit­inga­rekstr­inum áfram og það varð úr. Hún ákvað að vera ekki lengur með skepnur við Sænauta­sel enda var vinnan tengd ferða­mönn­unum orðin það mikil.

„Nú erum við bara með hunda, lömb og stundum ketti.“

Lilja segir að í dag komi að með­al­tali 50-60 manns á dag í Sænau­at­sel, alla­vega í júlí. Sumir staldra stutt við og fá sér kaffi eða heitt kakó og lummur. Aðrir tjalda á svæð­inu þar sem er sal­ern­is­að­staða. Lilja segir að þegar veður sé gott eins og búið er að vera í sumar séu jafn­vel 10-15 tjöld á tjald­stæð­inu. „Svo koma „venju­leg sumur“ og þá eru kannski bara örfáir útlend­ingar á tjald­stæð­inu sem harka af sér að tjalda í kulda, norð­aust­an­átt og rign­ingu.“

Jú, það er boðið upp á kaffi, heitt kakó og lummur allan dag­inn í Sænauta­seli og það nýta gestir sér.

„Það er alltaf jafn­vin­sælt. Það er svo ótrú­legt; ein­hvern tím­ann var sagt við mig að ég ætti kannski líka að bjóða upp á flat­brauð með sil­ungi og hangi­kjöti og ég próf­aði það. En fólk sagð­ist þá bara vilja fá lummur. Hitt var ekki að virka. Þetta kemur beint af pönn­unni og bakað brauð er gott á meðan það er alveg nýtt.“

Kaffi og heitt kakó er drukkið úr postu­líns­bollum sem til­heyra meðal ann­ars máva­stell­inu fræga.

Máva­stells­bolli. (Mynd: Svava.)

Það er vissu­lega nota­legt að sitja með postu­líns­bolla með heitu kakói og þeyttum rjóma í veit­inga­skál­anum. Þar er ekk­ert raf­magn og lýsa kerta­ljós og kerta­ljósakróna skreytt lauf­blöðum rýmið þegar dimma tekur. Eldur logar í ofni. Lilja vill ekki raf­magn.

„Það er hægt að setja raf­magn hérna og gera alla vinnu ein­fald­ari svo sem að vera þá með upp­vösk­un­ar­vél og kaffi­könnu en ég ætla ekki að vinna svo­leiðis. Þá er ég hætt.“

Lilja er svo­lítið eins og far­fugl­arnir. Hún kemur á Sænauta­sel á vorin og fer heim til sín á haustin en þess ber þó að geta að þau hjónin og fleiri fjöl­skyldu­með­limir skipt­ast á að dvelja á nótt­unni í Sænauta­seli og Merki yfir sum­ar­mán­uð­ina. Bróðir hennar er bóndi á Merki og þegar hún er ekki á sumrin í Sænaut­seli hjálpar hún honum við bústörfin. Hallur er á sjónum hluta árs­ins þegar hann er ekki á heið­ar­býl­inu upp­gerða og svo keyrir hann flutn­inga­bíl til að flytja slát­ur­lömb í slát­ur­hús á haustin.

„Þetta er tarna­vinna allt saman.“

Gjarnan litið niður á vinnufólk

Bærinn í Sænaut­seli var byggður árið 1843 og voru bæjar- og gripa­hús byggð að mestu úr torfi og grjóti. Það timbur sem var notað var flutt á hestum frá Vopna­firði. Talið er að bær­inn sem var byggður hafi verið svip­aður að stærð og gerð og end­ur­gerði torf­bær­inn. Sænaut­sel lagð­ist í eyði árið 1875 vegna eld­goss með miklu ösku­falli sem varð í Dyngju­fjöllum snemma það ár. Það sama er að segja um önnur býli á heið­inni. Búskapur hófst svo aftur í Sænaut­seli árið 1880. Stað­ur­inn fór svo í eyði árið 1943.

„Fólk byggði sér bæi svona langt inni í landi meðal ann­ars til að þurfa ekki að vera vinnu­fólk. Það var oft erfitt að vera vinnu­maður og það var gjarnan litið niður á það fólk í þá daga og svo var það nátt­úr­lega kjörin leið til að verða sjálf­stæður að vera með eigin bæ. Það er ríkt í okkur Íslend­ingum að vera sjálf­stæð.“

Andinn er góður í skál­anum og Lilja tekur undir það.

„Það er eins og fólk sem kemur hingað verði rólegra. Maður sér það alveg. Sér­stak­lega ef það er hérna inni í skál­anum.“

Það gefur henni mikið að dvelja á sumrin í Sænaut­seli.

„Þetta gefur manni eitt­hvað og það er alltaf gott að koma hingað á vorin.“

Hún talar um fugla­söng­inn. Tófuna sem gaggar klukkan 12.

Hún talar um gróð­ur­inn. Grá­víð­inn.

„Það er allt að vaxa upp af því að veður fer hlýn­andi. Ég man eftir mjög köldum sumrum á 10. ára­tugnum þegar snjó­aði í hverjum mán­uði. Líka í júlí og ágúst. Það komu skaflar og kom féð að bænum og vildi inn. Núna er búinn að vera um 18 stiga hiti í þrjár vikur.“

Lopa­peysur hanga á herða­trjám á hlöðnum veggj­unum í skál­anum. Þær eru til sölu. Konur úr sveit­inni prjón­uðu þær. Lilja prjón­aði hins vegar rönd­óttan kjól sem hangir líka á herða­tré. Hana dreymdi eina nótt­ina fær­eysku söng­kon­una Eivør Páls­dóttur í svona kjól. Hún var ber­fætt og með háls­festi með grænum steini. Þegar Lilja vakn­aði morg­un­inn eftir mundi hún hvernig drauma­kjóll­inn leit út og teikn­aði hann upp og prjón­aði hann síðan.

„Eivør fær kjól­inn. Hann er ekki til sölu.“

Jú, það er ævin­týra­legt að dvelja nokkra daga í Sænaut­seli. Heim­sækja heið­ar­býlin á svæð­inu. Ganga nokkra tugi kíló­metra í allt. Drekka kakó með þeyttum rjóma úr máva­stell­spostu­líns­bolla með morg­un­matnum í skál­anum. Drekka í sig sög­una. Nátt­úr­una. Og þegar dimma fer á kvöldin skap­ast nota­legt and­rúms­loft meðal ann­ars vegna log­andi kert­anna.

Raun­veru­leik­inn og draumar renna þarna ein­hvern veg­inn saman.

Sænauta­sel þetta sum­arið. (Mynd: Svava.)
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kvöldviðtal Mannlífs

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síðasta skipti: „Ég er að berjast í þessu“
Menning

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síð­asta skipti: „Ég er að berj­ast í þessu“

Geir Ólafsson heldur á næst­unni sjö­unda árið í röð stór­sýn­ing­una Las Vegas Christmas Show í Gamla bíói og fer hann sem endranær á kostum ásamt hljóm­sveit Don Randi og gesta­stjörnum. Randi, sem mætir með sitt „big­band“, hefur starfað með ýmsum banda­rískum stjór­stjörnum og má þar nefna Elvis Presley, Frank Sinatra, Phil Spector, The Beach Boys, Nancy Sinatra og Michael Jackson....
Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geðræn vandamál“
InnlentKvöldviðtal Mannlífs

Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál“

„Ég var alveg svo­lítið erf­iður ung­lingur“ segir Diljá Pét­urs­dóttir söng­kona og þátt­tak­andi fyrir Íslands hönd í Eurovision 2023. „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál,“ svarar hún, í við­tali hjá Reyni Trausta­syni, aðspurð hvort hún sé trúuð og segir það helstu ástæðu þess að hún hafi hald­ist svo lengi innan kirkj­unar. Diljá byrj­aði ung að syngja í kirkjukór...
Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jólaflóðinu: „Mér finnst gaman á jólum“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jóla­flóð­inu: „Mér finnst gaman á jólum“

Feðginin Illugi Jök­uls­son og Vera Ill­uga­dóttir eru dýrkuð og dáð sem dag­skrár­gerð­ar­fólk í útvarpi. Þau eru þó að sýsla ýmis­legt annað og nú fyrir jólin er Illugi með tvö spil og þrjár bækur í jóla­bóka­flóð­inu. Eina þeirra, bók­ina Dýrin, skrif­uðu þau feðginin saman. „Við Vera tókum saman og skrif­uðum bók­ina um dýrin, ein­fald­lega af því dýr eru svo skemmti­leg og...
Trausti með tvö skemmtileg jólaspil í verslunum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Trausti með tvö skemmti­leg jóla­spil í versl­unum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“

„Hvað er ég eig­in­lega búinn að koma mér út í?“ spyr Trausti Haf­steins­son spila­út­gef­andi sig reglu­lega þessa dag­ana en hann gefur ekki bara út eitt heldur tvö íslensk borð­spil fyrir þessi jól. Spilin tvö eru Gettu betur spurn­inga­spilið og skemmtispiliið Hræri­grautur. Gettu betur og Hræri­grautur eru komin í versl­anir í tak­mörk­uðu upp­lagi. Íslensk spil hafa einmitt verið valin jóla­gjöf árs­ins...
Móðir heimilislauss manns stígur fram og krefst breytinga: „Við höfum verið með lögregluvernd“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Móðir heim­il­is­lauss manns stígur fram og krefst breyt­inga: „Við höfum verið með lög­reglu­vernd“

Á Íslandi er tals­verður fjöldi heim­il­is­lausra og lítið um úrræði fyrir þennan hóp. Fólk á öllum aldri leita í athvörf og gisti­skýli sem ætluð eru heim­il­is­lausum. Mannlíf ræddi við móður 25 ára manns sem neyð­ist til að leita í gisti­skýlið á Lind­ar­götu en þar er aðstaða fyrir 25 karl­menn. „Ég hef ekk­ert sam­band við hann nema ein­staka sinnum þegar hann...
Samúel er að gera frábæra hluti í tónlistinni: „Tónlist með mikinn persónuleika höfðar til mín“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Samúel er að gera frá­bæra hluti í tón­list­inni: „Tónlist með mik­inn per­sónu­leika höfðar til mín“

Samúel Reyn­is­son er ungur og efni­legur tón­list­ar­maður frá Hafn­ar­firði, mennt­aður píanó­leik­ari sem spilar einnig á fjölda ann­arra hljóð­færa. Mannlíf sett­ist niður með Samúel og frædd­ist um líf hans og list, en hann seg­ist njóta matar- og kok­teil­gerðar í botn og er alveg að ná tökum á inn­an­húss garð­yrkju. Samúel, segðu mér aðeins frá því hvaðan þú kemur, frá æsk­unni, námi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu