„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Rekstaraðili tjaldsvæðisins Lónsá stígur fram: „Gátuð þið ekki bara græjað þetta sjálfir“

Rekstaraðili tjaldsvæðisins Lónsá stígur fram: „Gátuð þið ekki bara græjað þetta sjálfir“

Eins og Mannlíf greindi frá fyrr í dag er ástandið á tjald­svæð­inu Lónsá í námunda við Akureyri búið að vera skelfi­legt. Ruslamál í ólestri, engin varsla á svæð­inu, kló­sett stífluð og óhrein og svæðið eitt mold­ar­flag. Kvartað hefur verið undan því að ekki hefur náðst í umsjón­ar­menn svæð­is­ins þó ítrekað hafi fólk reynt að gera svo. Nú hefur fyr­ir­tækið Landa­merki ehf.  sem hefur umsjón með tjald­svæð­inu stigið fram á Facebook hópnum Tjald­svæði – umræðu­vett­vangur. Úti­legu­kortið hefur ekk­ert með rekstur tjald­svæð­is­ins að gera eins og kom fram í fyrri frétt. Sífellt fleiri hafa verið að tjá sig um tjald­svæðið í hópnum og birta myndir af ástand­inu.

Allt rusl er yfir­fullt á tjald­svæð­inu á Lónsá og lyktin örugg­lega ekki góð í hit­anum sem hefur verið á þessum slóðum upp á síðkastið.

Landamerki afsaka ástandið

Í til­kynn­ingu þeirra segir Sreten Karimanovic: „Við hjá Landa­merki ehf. erum rekstr­ar­að­ili tjald­svæð­is­ins við Lónsá á Akureyri sum­arið 2021 biðjum ykkur inni­legrar afsök­unar á aðstöðu tjald­svæð­is­ins. Starfs­menn sem ráðnir voru til að sjá um tjald­svæðið hættu störfum fyr­ir­vara­laust. Við höfum lagt alla okkar orku í að finna nýjan starfs­mann til að sjá um tjald­svæðið s.l daga og það tókst að lokum. Nýi starfs­mað­ur­inn okkar byrjar í næstu viku og þá verður von­andi allt eins og það á að vera“.

Fólk er þó ekki par­hrifið. Magga skrifar athuga­semd sem fær tals­verðan stuðn­ing „Hefði þá ekki verið skyn­sam­legt að loka þessa daga“. Sig­ur­björg segir: „En hvers vegna var ekki einu sinni hægt að hafa upp á ykkur?“. Sigþór nokkur kemur með ágætis punkt: „Gátuð þið ekki bara græjað þetta sjálfir?“.

Sal­ern­is­að­taðan á svæð­inu er fremur ógeð­feld og auk þess er sal­ernið stíflað.

Kristján skrifar ummæli sem útskýra ástandið: „Ástæðan fyrir því að umsjón­ar­menn hættu, var sú að þeir voru búnir að fá nóg af rugl­inu. Ekki var hægt að fá pípar­ann á svæðið þar sem hann hafði ekki fengið greitt fyrir síð­asta reikn­ing og greini­legt að eitt­hvað var fleira í ólagi. Vinnan sem þeir áttu að inna af hendi var klukku­tími í hádeg­inu og klukku­tíma um kvöld­mat. Þetta var bara mikið meiri vinna heldur en sagt var, og eig­endur virt­ust ekki hafa neinn áhuga á því að bæta úr hlut­unum, eins og þetta mold­ar­flag sem er þarna“.

Ljóst er að eitt­hvað veru­lega mikið vantar upp á hjá Landa­merki ehf. er snýr að rekstri tjald­svæð­is­ins Lónsá, ástandið er að minnsta kosti ekki eðli­legt svo mikið er víst.

Ruslagám­arnir eru líka yfir­fullir á tjald­svæð­inu.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins