Druslugöngunni hefur verið frestað um óákveðin tíma vegna ástandsins í þjóðfélaginu sökum mikilla Covid-19 smita. Það kemur fram á Facebook síðu Druslugöngunar.
Þar segir: „Við í skipulagsteymi Druslugöngunnar höfum tekið þá sáru ákvörðun að fresta göngunni um óákveðinn tíma vegna nýjustu frétta um aðgerðir í ljósi fjölgunar á covid19 smitum í samfélaginu. Þrátt fyrir að takmarkanirnar taki ekki gildi fyrr en annað kvöld finnst okkur mikilvægt að fylgja fyrirmælum stjórnvalda og sýna þá samfélagslegu ábyrgð að gera það sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir áframhaldandi útbreiðslu smita. Viðburður eins og Druslugangan sjálf er gífurlega mikilvægur fyrir þolendur ofbeldis og munum við halda áfram að vekja athygli á málstaðnum á meðan þörf er á.
Líkt og covid19 hefur ofbeldi gífurleg áhrif á allt samfélagið en þá sérstaklega viðkvæmustu hópa samfélagsins og við getum því ekki með góðri samvisku boðið upp á hópmyndun, eins og Druslugangan er, á meðan staðan er eins og hún er.
Við erum að vinna að því að koma varningnum okkar í netsölu þannig að Druslur landsins geti breytt út boðskapinn klæddar Drusluhjörtum og stuðningsyfirlýsingum með þolendum ofbeldis. Við hvetjum ykkur til að halda upp á daginn á morgun með því að hlúa að ykkur sjálfum og ykkar nánustu, halda áfram að styðja við þolendur ofbeldis og halda umræðunni á lofti
“.
Vonandi lagast ástandið á Íslandi fljótt og örugglega svo hægt verði að fara gönguna von bráðar.




















Athugasemdir