„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hilmar Örn allsherjargoði: „Var litið á okkur sem brandara og að okkur væri ekki alvara“

Hilmar Örn allsherjargoði: „Var litið á okkur sem brandara og að okkur væri ekki alvara“
Hilmar Örn Hilm­ars­son, tón­skáld og alls­herj­ar­goði. (Mynd: Frið­þjófur Helgason.)

Hilmar Örn Hilm­ars­son. Marg­verð­launað tónskáld. Alls­herj­ar­goði Ása­trú­arfélags­ins. Hann talar hér meðal ann­ars um æsku­árin þegar hann heillaðist af ása­trúnni, hvernig ása­trúin skil­greinir hann sem mann­eskju, kristn­ina, tónlist­ina, hinn hreina tón, tónlist­ina í draumunum, lífið og dauð­ann. Hann talar þó fyrst um hof ása­trú­ar­manna sem komin er mynd á í Öskju­hlíð.

„Það er dásam­legt að vera kom­inn hingað og styrkir allt starfið,“ segir Hilmar Örn Hilm­ars­son, alls­herj­ar­goði Ása­trú­ar­fé­lags­ins, þar sem hann situr á skrif­stofu sinni í glæ­nýju hús­næði félags­ins, hofi, í Öskju­hlíð. Und­an­farin ár hefur starf­semin farið að mestu leyti fram í hús­næði við Síðumúla en fyrsta skóflustunga hofs­ins var tekin eftir almyrkva á sól í mars árið 2015 og flutti félagið úr hús­næð­inu við Síðumúla í vor. Félags­starfið hefst þar í haust en bygg­ingu hofs­ins miðar hægt en vel.

„Þetta verður mjög góð aðstaða og það er mik­ill munur að vera kom­inn hingað.

Okkur dreymdi alltaf um að byggja hof og það eru meira að segja til áform frá árinu 1972 um að reisa hof,“ segir Hilmar Örn en á sum­ar­dag­inn fyrsta það ár komu 11 manns að stofnun félags­ins. Það varð svo lög­gilt trú­fé­lag ári síðar.

„Við sáum ekki fram á að það gæti gengið fyrr en fyrir 15 árum síðan og svo gekk þetta fram og til baka. Það var skipt um borg­ar­stjóra átta sinnum á stuttum tíma þannig að um leið og við höfðum náð ein­hverju sam­komu­lagi við ein­hvern þá var kom­inn nýr. Svo fengum við þessa lóð afhenta sem betur fer í borg­ar­stjóra­tíð Vil­hjálms Þór­mundar Vil­hjálms­sonar en það hefur ekki allt gengið þrauta­laust því það hafa orðið ýmsar hremm­ingar eins og banka­hrun og meira að segja hefur Covid haft áhrif á þetta af því að við ætl­uðum að fara í hóp­fjár­mögnun sem við höfum frestað. Við höfum þó náð að koma félags­starf­inu undir þak og á næsta ári byrjum við að und­ir­búa hvelf­ing­una sem ætti að geta verið til­búin tveimur árum síðar.“

Hilmar Örn segir að bygg­ing hofs­ins sýni fram á að ása­trúin sé komin til að vera.

„Þetta er fyrsta höf­uð­hof í Norður-Evrópu í þús­und ár. Mörgum hofum var eytt eða þeim breytt í kristna helgi­staði þannig að þetta er ótrú­lega stórt sál­rænt, tákn­rænt og trú­ar­lega.“

Um 5.100 manns eru skráðir í Ása­trú­ar­fé­lagið og segir Hilmar Örn að félögum fjölgi almennt um 5% milli ára.

„Það er alltaf veld­is­vöxtur í jákvæðu sam­hengi hjá okkur sem er mjög fínt.“

Hann er spurður um ástæðu þessa jákvæða veld­is­vaxtar.

„Fólk hefur komið og upp­lifað athafnir félags­ins sem utan­að­kom­andi og heill­ast af því hvað þær eru fal­legar og þær tala til þess. Ég held að það sé sterkasta dæmið.“

Fordómar

Hilmar Örn er Reyk­vík­ingur og gekk í Mela­skóla.

„Ég hafði mjög sterkt ímynd­un­ar­afl og mikla hneigð til lista. Ég hafði mikla hneigð til að stunda list af ein­hverju tagi.“

Hann seg­ist hafa alist upp í mjög kristnu umhverfi.

„Það má segja að ég hafi verið alinn upp á org­el­bekknum í Dóm­kirkj­unni því Páll Ísólfs­son var barnapían mín og ég fór alltaf með honum í Dóm­kirkj­una þegar hann var að æfa sig. Dóm­kirkju­prestar voru heim­il­is­vinir og höfðu gaman af að tala við skrýt­inn strák um trú­ar­brögð. Mér fannst kristni vera ágæt og mér finnst hún ennþá vera ágæt en hún heill­aði mig ekki. Ég fór þangað sem ég fann sam­hljóm. Ég skoð­aði aðra trú. Ég hef alltaf haft mikla trú­ar­þörf og það hefur alltaf verið mik­il­vægt fyrir mig að horfa á stærra sam­hengi. Þó mér sé ekki vel við Carl Gustav Jung sál­fræð­ing þá er ég samt mjög sam­mála honum að trú­ar­þörfin sé ekki síðri þörf en kyn­hvötin eða þörfin fyrir að kom­ast af. Það er stór þáttur í okkur að þurfa að finna ein­hvern far­veg fyrir þá til­finn­ingu að maður sé hluti af ein­hverju stærra sam­hengi.

Ég var heill­aður af sögum ása­trú­ar­innar fyrir stofnun Ása­trú­ar­fé­lags­ins.

Það var ekki síst  undir áhrifum frá Einari, syni Páls Ísólfs­sonar, fræði­manns og skóla­stjóra Mála­skól­ans Mímis, sem ég dáði mjög. Ég gerð­ist rót­ari hjá Einari og hélt á glærum þegar hann byrj­aði með fyr­ir­lestra um rætur íslenskrar menn­ingar í Norræna hús­inu 1968. Síðan var Ása­trú­ar­fé­lagið stofnað þegar ég var 14 ára gam­all en því miður gat ég ekki gengið í það strax og þurfti að bíða þangað til ég var orð­inn 16 ára. Þannig að ég mætti í Þjóðskrá á 16 ára afmæl­is­dag­inn minn og skráði mig í Ása­trú­ar­fé­lagið. Þá voru innan við 40 manns í félag­inu.“

Hilmar Örn við­ur­kennir að hafa orðið fyrir for­dómum eftir að hann gekk í félagið.

„Já, smá. Í byrjun. Það var talað dálítið illa um félagið og það var litið á það eins og þetta væri ein­hver brand­ari og að okkur væri ekki alvara. Ég var í Mennta­skól­anum við Tjörnina og þar var á mál­fundi um trú haldið fram að þetta væri félag sem hefði verið stofnað á veit­inga­staðnum Óðali og gengi út á sukk. Við höfum verið gagn­rýnd og gerð hlægi­leg á margan hátt í ára­tugi. En ég verð að segja að ég fann fyrir ofboðs­legum við­snún­ingi árið 2000 í kringum kristni­há­tíð­ina á Þing­völlum þar sem átti að úthýsa okkur og stöðva okkar hefð­bundna blót. Þá breytt­ist þetta og fólk sá að okkur var alvara mitt í öllum far­s­anum þegar átti að úti­loka okkur frá kló­settum á Þing­völlum.“

Hvað heill­aði ungan strák við ása­trúna?

„Þetta eru ekki bara goð­sögur og tengsl við eitt­hvað sem maður veit að er ævafornt heldur líka sið­fræðin í Háva­málum.“

Á heima­síðu Ása­trú­ar­fé­lags­ins, asatru.is, stendur:

„Ásatrú, eða heið­inn siður, bygg­ist á umburð­ar­lyndi, heið­ar­leika, dreng­skap og virð­ingu fyrir fornum menn­ing­ar­arfi og nátt­úr­unni. Eitt meg­in­inn­tak sið­ar­ins er að hver maður sé ábyrgur fyrir sjálfum sér og gjörðum sínum.

Í Háva­málum er einkum að finna siða­reglur ása­trú­ar­manna.

Heims­mynd ása­trú­ar­manna er að finna í Völuspá. Þar er sköp­un­ar­sög­unni lýst, þróun heims­ins, enda­lokum hans og nýju upp­hafi.

Í trú­ar­legum efnum hafa ása­trú­ar­menn aðal­lega hlið­sjón af hinum fornu Eddum. Margir ása­trú­ar­menn líta frekar á ása­trú sem sið eða lífs­stíl heldur en bein trú­ar­brögð.

Að kalla sið­inn ása­trú er reyndar vill­andi þar sem átrún­aður er ekki ein­ungis bund­inn við æsi, heldur hvaða goð eða vætti sem er að finna innan nor­rænnar goða­fræði og þjóð­trúar, svo sem land­vætti, álfa, dísir, vani, jötna, dverga og aðrar mátt­ugar verur eða for­feður.

Ása­trú­ar­menn iðka trú sína á hvern þann hátt sem hverjum og einum hentar svo fram­ar­lega sem iðkunin brýtur ekki á bága við lands­lög.“

Hilmar Örn Hilm­ars­son.

Prívat menntaður í tónsmíðum

Jú, Hilmar Örn fór að sækja athafnir Ása­trú­ar­fé­lags­ins en það er annað sem átti líka hug hans. Tón­listin. Hann lærði á blokk­flautu og síðar fiðlu og píanó og var í tón­list­ar­námi fram á ung­lingsár. Og hann samdi tón­list.

„Tón­listin var hluti af upp­eldi mínu. Ég var alltaf að reyna að hætta að gera tón­list og reyndi það með ýmsum ráðum og mér mistókst hrapal­lega. Svo ákvað ég að vera sá sem ég er sem er mjög fínt og hefur reynst far­sælt.“

Hver er Hilmar Örn Hilm­ars­son?

„Maður sem lifir fyrir tón­list og harm­oníu. Það er bara þannig.

Ég man ekki eftir mér nema að hafa verið algjör­lega hel­tek­inn af tón­list.

Alveg frá upp­hafi. Hvað sem er. Nema að ég gat ekki hlustað á ómstríða tón­list fyrr en ég var ung­lingur. Ég var alinn upp í ákveð­inni spenni­treyju vest­rænnar tón­listar og popptón­list hljóm­aði mjög falskt fyrir mér. Ég fékk gæsa­húð og mér leið illa ef ég heyrði Kinks og ákveðnar hljóm­sveitir sem mér fannst hanga í tón­inum. Svo get ég líkt því við trú­ar­upp­lifun þegar ég allt í einu fatt­aði Bítlana. Ég fatt­aði allt í einu Led Zeppelin og ég fatt­aði Trúbrot. Ég gerð­ist mjög hand­geng­inn The Rolling Stones.“

Hann seg­ist hafa „haldið tón­list­ar­nám­inu út“ til 15 ára ald­urs.

„Svo tók rokk­djöf­ull­inn við. Ég var í rokk­hljóm­sveitum. Sú fyrsta sem hafði nafn hét Fatima.“ Hann var trommu­leik­ari í hljóm­sveit­inni Fatimu á árunum 1972-1975. Hann var trommu­leik­ari hljóm­sveit­ar­innar Felli­byl­ur­inn Þórarinn frá árinu 1979 og síðan var það Frostrósir sem spil­aði aðal­lega diskótón­list. Hljóm­sveitin fékk svo nafnið Þeyr og gaf út plöt­una Þagað í hel í lok árs 1980. Hilmar Örn samdi suma text­ana.

Aðrar hljóm­sveitir tóku við og má þar síð­ast nefna MÖK Trio sem kom meðal ann­ars fram á Galdra­há­tíð­inni á Ströndum árið 2001.

Kvik­mynda­tón­listin sem hann semur er ævin­týra­lega fal­leg og má þar nefna tón­list í kvik­mynd­unum Bennu-Njáls­sögu, Skytt­unum, Börnum nátt­úr­unnar, Bíódögum, Djöfla­eyj­unni, Englum alheims­ins og Fálkum.

Hann samdi og samdi og samdi. Og hann kynnt­ist dulúð ása­trú­ar­innar æ meira.

„Ég var jafn­framt mjög hrif­inn af gyð­ing­legri dul­speki og hebr­eska er lyk­ill­inn að henni,“ segir tón­skáldið og alls­herj­ar­goð­inn sem seg­ist hafa endað á því að tipla á tánum í kringum stúd­ents­prófið og hafi verið met­inn inn í Háskóla Íslands þar sem hann lærði hebr­esku í eitt ár.

„Ég ætl­aði svo í nám sem kall­ast „Music information techonology“ en þá var mér farið að ganga svo vel í tón­smíðum að ég þurfti að slaufa því.

Ég er prí­vat mennt­aður í tón­smíðum. Ég lærði kontra­puntk og er á ein­hvern hátt sjálf­lærður.“

Evrópsku kvik­mynda­verð­launin

Snemma beyg­ist krók­ur­inn. Örlögin réð­ust við tjörn­ina í Reykja­vík þar sem kyn­slóðir hafa rennt sér á skautum þegar hún er ísi lögð og ungir og aldnir hafa á sól­ríkum sum­ar­dögum hent brauð­molum til fugl­anna. Þar réð­ust svo­lítið örlög alls­herj­ar­goð­ans á tón­list­ar­svið­inu.

„Ég og Friðrik Þór Frið­riks­son kvik­mynda­gerð­ar­maður kynnt­umst í Mennta­skól­anum við Tjörnina þegar ég var 16 ára og hann var að verða tví­tugur. Hann var með Fjala­kött­inn, kvik­mynda­klúbb mennta­skól­anna.

Við fundum að okkur var ætlað að starfa saman og við gerðum sam­komu­lag um að hann gerði bíó­myndir og ég gerði músík við þær. Það hefur stað­ist. Ég hef samið tón­list við næstum því allar kvik­myndir hans.“

Sam­starfið hefur sann­ar­lega verið far­sælt. Börn nátt­úr­unnar var til dæmis til­nefnd til Ósk­arsverð­laun­anna og Hilmar Örn fékk árið 1991 Evrópsku kvik­mynda­verð­launin fyrir tón­list sína í kvik­mynd­inni.

„Það hafði mjög sterk áhrif á líf mitt því að þá var ég allt í einu kom­inn í alþjóð­legt sam­hengi og kynnt­ist fólki frá öðrum löndum. Ég hef síðan unnið með erlendum leik­stjórum þannig að þetta hafði mjög góð áhrif á feril minn.

Ég fékk síð­ast til­nefn­ingu til Grammy-verð­launa árið 2015 fyrir tón­list­ina í finnsku kvik­mynd­inni The Grump eða Nöld­ur­segg­ur­inn.

Ég hef fengið þó nokkuð af verð­launum og ansi mikið af til­nefn­ingum í gegnum tíð­ina.“

Hilmar Örn er rólegur. Hlé­drægur. Lít­il­látur. Það er ein­hver ró yfir alls­herj­ar­goð­anum. Tón­skáld­inu. Þegar leitað er upp­lýs­inga á net­inu þá er fer­il­skráin löng. Hér skal stiklað á stóru:

Hann ruddi braut­ina hér á landi þegar kom að því að nota tölvur við tón­smíðar sem og þegar kom að nýjum hug­myndum varð­andi upp­tökur. Hann hefur unnið meðal ann­ars að til­rauna­verk­efnum með ýmsum tón­list­ar­mönnum svo sem Sigur Rós, Stein­dóri Andersen og Eivør Páls­dóttur.

Á Wikipedíu má finna þetta meðal ann­ars; og þetta eru ekki allar kvik­mynd­irnar sem hann hefur unnið við:

Soundtracks

1981 – Brennu-Njáls­saga (Íslenska kvik­mynda­sam­steypan), directed by Friðrik Þór Frið­riks­son.

1987 – Skytt­urnar (Icelandic Film Corporation), directed by F. Þ. Frið­riks­son.

1991 – Börn Nátt­úr­unnar (Icelandic Film Corporation), directed by F. Þ. Frið­riks­son.

1992 – Svo á Jörðu Sem á Himni directed by Kristinn Jóhann­es­dóttir.

1992 – Ævintýri á Okkar Tímum, directed by Inga Lísa Midd­leton.

1993 – Hin Helgu Vé, directed by Hrafn Gunn­laugs­son.

1995 – Bíódagar (Icelandic Film Corporation), directed by F. Þ. Frið­riks­son.

1995 – Á köldum klaka /Cold Fever (Icelandic Film Corporation), directed by F. Þ.                 Frið­riks­son.

1996 – Anton (Jutlandia Film), directed by Aage Rais-Nor­dentoft.

1996 – Djöfla­eyjan (Icelandic Film Corporation), directed by F. Þ. Frið­riks­son.

1997 – Sekten, directed by Susanne Bier.

1998 – Vildspor directed by Simon Staho.

1999 – I Tigerens Øje, directed by Ulla Boje Rasmus­sen.

1999 – Bye Bye Blue Bird (Danish Film Institute), directed by Katrin Ott­ars­dóttir.

1999 – Ungfrúin góða og húsið, directed by Guðný Hall­dórs­dóttir.

2000 – Englar alheims­ins (Icelandic Film Corporation), directed by F. Þ. Frið­riks­son.

2000 – På Fremmed Mark (???), directed by Aage Rais-Nor­dentoft.

2002 – Fálkar (Icelandic Film Corporation), film directed by F. Þ. Frið­riks­son.

2005 – Beowulf & Grendel, film directed by Sturla Gunn­ars­son.

Dreymir tónlist

Tón­skáldið og alls­herj­ar­goð­inn er spurður á hvað hann leggi áherslu í tón­smíðum sínum.

„Það sama og hvernig ég haga lífi mínu. Það er til­finn­ingin. Að fylgja alltaf til­finn­ingu og inn­sæi og leita að ein­hverri innri lógík. Ég er ekki á neinn hátt næmur – ég hef aldrei séð álf, huldu­konu eða draug þótt mig dauð­langi til þess – en ég get samt alltaf tengt mig við eitt­hvað með minni lélegu og göt­óttu lógík. Ég veit ekki hvað það er og ég þori ekki einu sinni að skil­greina það. Ég leita í eitt­hvað sem er stærra en ég er. Það er raun­veru­lega þannig.“

Nóbels­skáldið skrif­aði um hinn hreina tón. Er Hilmar Örn búinn að finna þann tón?

„Ég er mik­ill aðdá­andi Halldórs,“ segir hann og nefnir tón heims­ins sem Taóistar kalla Huang Chung. „Jörðin hefur sína eigin tíðni sem er kennd við vís­inda­mann­inn Winfried Schumann og menn hafa verið að elt­ast við þann tón.“

Hann dreymir stundum tón­list.

„Stöðugt.

Mig hefur oft dreymt heilu tón­verkin og ég hef stokkið til og skrifað þau niður um leið og ég vakna.

Þetta er mjög algengt. Það sem er verra er að ég er stundum að hljóð­blanda í draumum og er að stilla alls konar græjur. Það er miklu verra. Það er óþægi­legt. En að dreyma hreina tón­list er dásam­legt.“

Hilmar Örn er spurður hvort hann haldi að ein­hver hinum megin sé að senda honum hug­myndir í gegnum drauma.

„Ég vildi geta sagt það en ég held að aug­ljós­asta skýr­ingin teng­ist dul­vit­und minni af því að þetta teng­ist þekk­ingu minni og áherslum. Ég held að við séum í sífelldri end­ur­vinnslu á því sem við tökum inn.“

Óumdeildur

Tón­listin. Ásatrúin. Hvað á þessi tvennd, þessi dúett í lífi Hilmars Arnar, sam­eig­in­legt?

„Það er harm­onía. Þetta er allt þessi harm­onía.“

Hilmar Örn var virkur í starfi Ása­trú­ar­fé­lags­ins árum saman jafn­hliða því sem hann samdi hvert lista­verkið á fætur öðru. Hann segir að þáver­andi alls­herj­ar­goði, Svein­björn Bein­teins­son, hafi notað sig mikið sem túlk þegar komu erlendir gestir og hann seg­ist hafa borið ómælda virð­ingu fyrir for­vera sínum því hann hafi verið svo sér­stakur.

„Þetta, ása­trúin, var ein­hvern veg­inn sam­gróið honum. Og hann var aldrei með nein láta­læti sem heill­aði mig líka.“

Tíminn leið. Árin liðu.

„Ég reyndi að vinna eins mikið með félag­inu og ég gat. Þetta var alltaf kjöl­festa í lífi mínu. Það að skipta um trú­fé­lag 16 ára gam­all var fyrsta stóra ákvörð­unin sem ég tók sem ungur maður. Þetta var engin smá ákvörðun fyrir mig sem var ákaf­lega trú­ar­þurfi. Þetta var upp á líf og dauða þannig séð. Þetta er eitt­hvað sem maður vill standa við. Þetta skil­greinir mig sem mann­eskju í sið­rænu og trú­ar­legu sam­hengi og teng­ist líka gildum mínum í líf­inu. Þetta er ekki létt­vægt.“

Hilmar Örn varð svo alls­herj­ar­goði árið 2003.

„Það var lík­lega vegna þess að ég var óum­deildur. Það er kannski það. Ég er svo venju­legur,“ segir hann og kímir. „Það hefur verið það sem hefur hjálpað mér. Það bjóst eng­inn við því að ég gerði eitt­hvað skrýtið. Það skiptir mig miklu máli að vera alls­herj­ar­goði og ég tek þessu mjög alvar­lega. Ég lít á þetta sem mikla ábyrgð sem ég þarf að standa við.“

Hilmar Örn er spurður í hverju starf hans sem alls­herj­ar­goði felist.„Það er allt frá því að vera rót­ari og yfir í það að vera með fólki á stórum stundum í lífi þess. Það að gefa barni nafn finnst mér vera skemmti­leg­ast af öllu sem og að gifta fólk en svo eru erf­iðar stundir eins og and­lát og útfarir sem er líka mik­il­vægur hluti. Maður er í öllu þessu ferli. Þetta er eitt­hvað sem gefur mér mikið. Stækkar mann.

Þetta hefur breytt mér að því leyti að mér finnst ég þurfa að finna í mér ein­hvern kjarna. Ég er betri mann­eskja.“

Þetta segir mað­ur­inn sem seg­ist hafa næstum því alist upp á org­el­bekknum í Dóm­kirkj­unni og svo voru dóm­kirkju­prestar heim­il­is­vinir á æsku­heim­il­inu.

Línuleg hugsun

Hann er spurður út í kristna trú.

„Ég gagn­rýni ekki lengur kristna trú en ég gerði mikið af því þegar ég var tán­ingur. Mér finnst hún á margan hátt vera fal­leg og góð en hún hefur stundum farið út af spor­inu. Ég hef enga þörf fyrir guð­fræði­met­ing. Ég held þó stundum að það hefði verið betra ef Páll post­uli hefði haft minni áhrif í sam­bandi við hvernig kristin trú þró­að­ist. Það er bara mín skoðun og er meira til­finn­inga­legt heldur en rök­rænt.

Mér finnst að kirkjan sé mikið að reyna að leið­rétta sig og ég held að vanda­málið við ein­gyð­is­trú – sama hvort verið sé að tala um kristni, gyð­ing­dóm eða islam – sé að þetta er opin­ber­aður sann­leikur sem er klapp­aður í stein og óum­breyt­an­legur. Þetta er mjög línu­leg hugsun og í vest­rænni heims­mynd byrjar tím­inn í Fyrstu Mósebók og endar í 22. kafla Opin­ber­un­ar­bók­ar­innar. Ég held að líf okkar sé miklu meiri hringrás heldur en lína. Og við eigum að hugsa í hringrás og við erum hluti af henni eins og sól­ar­hringnum, árinu og mannsæv­inni. Það er það sem skiptir máli.“

Hvað með ríg á milli fólks sem aðhyllist ólík trú­ar­brögð?

„Hann skilar engu. Ég hafði mikla þörf fyrir að gagn­rýna önnur trú­ar­brögð þegar ég var tán­ingur eins og ég sagði og háði mikla upp­reisn gegn því sem hægt var að gera gagn­vart trú­ar­brögðum en ég hef ekki fundið þörf fyrir það síð­ustu ára­tugi. Ég hef frekar fundið það sem sam­einar trú­ar­brögð og er þakk­látur fyrir sam­trú­ar­legar athafnir sem ég hef tekið þátt í svo sem brúð­kaup og nafn­gjafir og ekki síst útfarir þar sem ég hef verið gestur í kirkjum lands­ins en mér hefur verið sýndur sá sómi og heiður að fá að vera með athafnir í kirkjum sem er langt frá því að vera sjálf­sagt. Það hefur kennt mér mikið um umburð­ar­lyndi sem ég held að við verðum að rækta með okkur.“

Alls­herj­ar­goð­inn er spurður um skoðun hans varð­andi þörf fólks til að trúa á guð, vætti, goð eða annað.

„Ég held að við þurfum að spegla okkur og upp­lifa í stærra sam­hengi. Ég held að við byrjum að vinna í dramb­inu í okkur þegar við mælum okkur saman við eitt­hvað sem er stærra en við sjálf sem teng­ist trú­ar­brögðum. Við höfum séð hvernig við höfum skemmt nátt­úr­una og fund­ist við vera mik­il­væg­ari og merki­legri en hún og hugsum um eigið ævi­ferli eins og heim­ur­inn byrji og endi með manni sjálfum. Við eigum að hugsa eins og við höfum byrjað í gegnum ótal for­feður og for­mæður og eins og við séum að halda áfram að lifa í gegnum ótal afkom­endur og skila jörð­inni í betra ásig­komu­lagi til næstu kyn­slóðar en við fengum hana. Þetta sam­hengi og þessi hugsun held ég að gæti komið okkur til bjargar.“

Að deyja inn í fjall

Líf og dauði. Dauði og líf.

Hvað er lífið og hvað er dauð­inn?

„Þessi hringrás sem er grund­völl­ur­inn í ása­trúnni finnst mér vera mjög hjálp­leg hugsun. Líf kviknar. Það dafnar. Hnignar. Eyðist. Það er þessi heims­sýn sem mér finnst vera svo góð. Maður á að reyna að lifa eins inni­halds­ríku lífi og maður getur hérna megin grafar og vona svo og treysta að maður haldi áfram í ein­hverri mynd ann­að­hvort í gegnum líf­fræði­lega afkom­endur eða eitt­hvað sem maður getur gefið heim­inum eins og til dæmis tón­list. Það eru margir menn sem lifa í mér í gegnum þeirra skrif og þeirra tón­list. Ég á marga leið­toga í lífi mínu sem hafa komið til mín í gegnum list­ina og sem hafa stækkað mig og skil­greint mig. Mér finnst vera gott að geta lifað í svona verkum,“ segir tón­skáldið. Alls­herj­ar­goð­inn.

„Ég hef ákveðna trú á end­ur­holdgun. Ég er líka mjög hrif­inn af þeirri hug­mynd að menn lifi áfram í verkum sínum og þar getur maður nálg­ast lof­gjörð eft­ir­lif­anda og þakkað fyrir lífs­hlaup og lífs­verk sem hefur verið gert af góðum hug.“

Hilmar Örn segir að margar handa­vistir séu í bók­menntum ása­trú­ar­manna og að úr miklu sé að velja.

„Fólk getur dáið inn í fjall eins og fjallað er um í mörgum sögum. Eitt dæmi er Kráku-Hreiðar Ófeigs­son sem kaus að deyja inn í Mælifell og þetta er eitt af mörgum dæmum þar sem menn velja sér hand­an­vist í fjalli og eru þar með ætt­ingjum og vinum í eilífum fagn­aði. Menn geta dáið inn í steina og setið þar og kveðið eins og Gunnar á Hlíð­ar­enda. Hel er ekki slæmur staður þótt það hafi fengið á sig slæma mynd í gegnum kristni en menn hafa ruglað því saman við „hell“. Egill Skalla­gríms­son sagði í Son­ar­tor­reki að hann muni glaður og með góðum hug heljar bíða. Svo erum við með sal eins og Gimlé þar sem allt góða fólkið fer eins og segir í Völuspá. Sumir trúa því að þeir fari til Val­hallar eða húsa­kynna þess goð­magns sem þeir hafa áhuga á eins og Fensali hjá Frigg og Fólk­vangi Freyju. Þá er fjallað um end­ur­holdgun í Helga­kviðu Hund­ings­bana. Stærsta hug­myndin sem end­ur­spegl­ast í Háva­málum er að fólk lifi áfram í verkum sínum – á góðan eða slæman hátt. Ef menn hafa verið dólgar og lélegir þá eru þeir dæmdir af því fólki sem á eftir þeim kemur. “

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætluðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfsmenn“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætl­uðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfs­menn“

„Við vorum búnir að pæla í því í ein­hvern tíma hvernig hægt væri að koma með eitt­hvað nýtt inn á mat­vöru­mark­að­inn og við lágum yfir þessu á eld­hús­borð­inu. Pabbi hafði verið með snefil af ódýrum vörum í Aust­ur­veri; það var svona „afslátt­ar­þurr­vöru­mark­aður“ og við lögðum upp með þennan ein­fald­leika,“ segir Jón Ásgeir um það hvernig Bónus varð til en rætt...
Aníta Briem: „Krakkarnir, voru að fela sig í runnunum þegar hann kom og sótti mig“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Aníta Briem: „Krakk­arnir, voru að fela sig í runn­unum þegar hann kom og sótti mig“

„Ég var svo ótrú­lega heppin að ég fékk að spreyta mig svo­lítið í Þjóð­leik­hús­inu frá því að ég var níu ára gömul. Þá var ég fyrst í Emil í Katt­holti og lék þar Idu og var svo alveg í fjórum leik­sýn­ingum í Þjóð­leik­hús­inu, þannig að ég var ótrú­lega lánsöm að ég ein­hvern veg­inn fékk svo­lítið að kanna hvað leik­listin væri...
Tony var sakaður um mansal: „Íslendingar tóku mjög vel á móti mér, en ríkisstjórnin ekki“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Tony var sak­aður um man­sal: „Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki“

„Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki,“ segir Tony Omos í við­tali í nýju helg­ar­blaði Mannlífs. Tony Omos er nafn sem flestir Íslend­ingar kann­ast við. Tony er níger­íski hæl­is­leit­and­inn sem felldi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur úr stóli dóms­mála­ráð­herra árið 2014 vegna „Leka­máls­ins“ svo­kall­aða. Málið hafði gríð­ar­leg áhrif á Tony Omos og hans fjöl­skyldu enda var hann sak­laus sak­aður...
Ragnar Erling Hermannsson vill milljarð til að kaupa hús fyrir fíkla
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Ragnar Erling Her­manns­son vill millj­arð til að kaupa hús fyrir fíkla

Ragnar Erling Her­manns­son, Raggi Turner, talar í við­tali við Hörpu Mjöll Reyn­is­dóttur meðal ann­ars um hvers vegna hann fór út í neyslu, gisti­skýlið úti á Granda þar sem hann sefur á næt­urna, hann minn­ist á for­dómana í sam­fé­lag­inu, reynslu sinni af geð­deild og draum­inn um stórt hús jafn­vel fyrir utan Reykja­vík þar sem hægt væri að búa til sam­fé­lag. Og...
Margréti Esther misþyrmt með hestasvipum og naglaspýtum: „Skólasystir mín var stungin 18 sinnum“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Margréti Esther mis­þyrmt með hesta­svipum og nagla­spýtum: „Skóla­systir mín var stungin 18 sinnum“

Margrét Esther Erlu­dóttir fata­hönn­uður átti erf­iða æsku. Óregla var á heim­ilnu og frá unga aldri flakk­aði hún á milli fóst­ur­heim­ila. Hún segir að á einu þeirra, sveitabæ norður í landi, hafi tveir nauðgað sér auk þess sem hún hafi meðal ann­ars verið barin. „Þarna var ég algjör­lega eyðilögð. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Eins og stendur í...
Hanna Rún lamaðist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Hanna Rún lam­að­ist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina, tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu. „Það breytti öllu að verða móðir.“ Og parið dans­aði saman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu