„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ógnvænlegt ástand farsóttahúsa: „Það er náttúrulega komin þreyta í mannskapinn“

Ógnvænlegt ástand farsóttahúsa: „Það er náttúrulega komin þreyta í mannskapinn“
Gylfi Þór Þor­steins­son

Gylfi Þór Þor­steins­son segir að ástandið sé mjög erfitt en far­sótta­húsin tvö eru orðin full en það er illa hægt að opna það þriðja vegna skorts á starfs­fólki. Opna átti þriðja húsið í dag. Rúv greindi fyrst frá.

Sárvantar fólk í vinnu

Í ein­angrun eru nú 130 manns sem dreifast á far­sótta­húsin tvö. Opna á það þriðja þar sem Hótel Barón er til húsa. Gylfi Þór segir að staðan sé veru­lega þung vegna mann­eklu en þau eru með allar klær úti að reyna að ná í starfs­fólk og er aug­lýst meðal ann­ars á Alfreð eftir fólki til starfa. Gylfi segir að farið sé að hökta í kerf­unum hjá þeim vegna gríð­ar­legs álags og það eina sem hægt er að við­hafa í stöð­unni sem upp er komin er að reyna að hugsa eins vel og þeim er unnt um fólkið sem nú þegar dvelur í far­sótta­hús­unum tveimur.

Hrikalegt ástand

Gylfi segir að róð­ur­inn eigi bara eftir að þyngj­ast næstu daga en ástandið hér á landi er veru­lega svart og smitum fjölgar ört dag frá degi. Hann segir að þau séu í raun og veru ein­ungis sjö sem starfa við að sinna 130 manns. „Það er nátt­úru­lega komin þreyta í mann­skap­inn. Þetta er búið að taka okkur núna á annað ár, að berj­ast við þetta“ segir Gylfi í sam­tali við RÚV.

Eru stjórnvöld steinsofandi ?

Ljóst er að ekki hefur verið hugað að mik­il­væg­ustu starf­sem­inni á land­inu sem á að taka við öllu fólki í ein­angrun, þegar rík­is­stjórnin tók ákvörðun um hvað skildi gera, vegna þess svarta ástands sem nú er komið upp í Íslandi. Það er gjör­sam­lega út í hött að ekki hafi verið hugað að því hvernig far­sótta­hús væru í stakk búin til þess að taka við öllum þeim smit­uðu sem hrúg­ast inn dag eftir dag. Að sjö manns séu um það að sinna 130 manns er firra. Starfs­fólkið er orðið mjög þreytt enda verið að berj­ast eins og Gylfi Þór segir í á annað ár og álagið gríð­ar­legt.

Mannlíf hvetur fólk sem vantar vinnu eða vill leggja Gylfa Þór og hans fólki lið að sækja um hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins