„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kristján læknir lést í Svíþjóð: „Ég elska þig að eilífu og mun alltaf sakna þín“

Kristján læknir lést í Svíþjóð: „Ég elska þig að eilífu og mun alltaf sakna þín“

Kristján Þór Guð­munds­son læknir er lát­inn 53 ára að aldri. Kristján fædd­ist í Reykja­vík 15. júlí 1968. Hann lést á heim­ili sínu þann 24. júní í Malmö, Svíþjóð. For­eldrar Krist­jáns voru þau Hanna Sig­urð­ar­dóttir, lög­fræð­ingur og Guð­mundur Helgi J. Elíasson. Kristján var elstur fjög­urra systk­ina, Sigurðar Freys, Bjarn­dísar Hrannar og Tanyu Kristrúnar, sam­mæðra. Þá lætur Kristján eftir sig sam­feðra systur í Kanada, Michelle Arnarson.

Kristján flutt­ist ungur með móður sinni til Kanada og bjó þar fyrstu þrjú ár ævi sinnar. Eftir að heim til Íslands var komið stund­aði hann nám í Reykja­vík. Hann útskrif­að­ist sem stúd­ent frá Fjöl­brauta­skól­anum í Breið­holti 1988. Þá lagði hann stund á nám í lækna­deild Háskóla Íslands Kristján og útskrif­að­ist þaðan 1997. Síðustu árin starf­aði hann röntg­en­sér­fræð­ingur á sjúkra­húsi í Kongs­vin­ger í Nor­egi.

„Það lék allt í hönd­um þér og það sem þú snert­ir varð að gulli, ég öf­und­aði oft hæfi­leika þína og gáf­ur. Þú varst góður í öllu, hvort sem það var kara­te, söng­ur, spila á hljóð­færi, taka mynd­ir, vinna þær og vera sjálf­ur mód­elið. Sagðir oft við mig að það væri ekki þín sök að mynd­irn­ar af mér væru ekki góðar held­ur væri það hæfi­leiki minn að sitja fyr­ir sem skemmdi mynd­irn­ar. Þú komst skoð­unum þínum alltaf skemmti­lega á fram­færi án þess að meiða ein­hvern. Minn­ing þín mun aldrei deyja. Ég elska þig að ei­lífu og mun alltaf sakna þín. Set hér smá texta úr lagi sem við hl­ust­uðum oft á“.

Þín syst­ir

Bjarn­dís Hrönn Hönnu­dótt­ir.

„Elsku Kristján minn ég vona af öllu hjarta að þú sért sátt­ur þar sem þú ert í dag og að þú hald­ir utan um alla þá sem þér þykir vænt um í sum­ar­land­inu, og ég ef­ast ekki um að það sé alltaf skandi­nav­ískt veður þar. Ég ætla að enda þetta á nokkr­um orðum úr lagi sem minn­ir mig alltaf á þig, og við tók­um svo fal­lega úti í garði í sól­inni og þú glamr­andi á gít­ar, elsku brói og ynd­is­lega sál.

Hey litli her­maður

Viltu leika við mig?

Meðan kúl­ur fljúga um loft­in blá

við gæt­um leikið frið.

Ég skal vera kær­leik­ur­inn

þú get­ur verið skyn­sem­in.

Gleym­um fölln­um fé­lög­um

byrj­um upp á nýtt.

(Bubbi Mort­hens)

Ég elska þig alltaf,“

þín syst­ir Tanya.

Mannlíf vottar aðstand­endum inni­lega samúð. Blessuð sé minn­ing Krist­jáns Þórs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins