„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Bubbi: „Normið er orðið það að það megi ráðast á homma og það megi ráðast á regnbogafólk“

Bubbi: „Normið er orðið það að það megi ráðast á homma og það megi ráðast á regnbogafólk“

Bubbi Morthens er ekki bara vin­sæl­asti tón­list­ar­maður allra tíma hér á Íslandi, heldur hefur hann ávallt verið í far­ar­broddi þeirra sem berj­ast fyrir rétt­indum minni­hluta­hópa og gegn for­dómum í íslensku sam­fé­lagi.

Text­arnir hans margir hverjir hafa í gegnum tíð­ina sýnt það svart á hvítu; Bubbi er bar­daga­maður sem ekk­ert aumt má sjá; er alltaf til­bú­inn til að hjálpa þeim sem minna mega sín og hefur aldrei hikað við að tjá skoð­anir sínar þótt þær hafi ekki alltaf talist vera „réttar.“

Á heima­síðu Bubba – bubbi.is eru nú til sölu texta­verk kappans úr lögum sem bæði telj­ast án efa til „mót­mæla­texta“ – „Regn­bog­ans stræti“ og „Strák­arnir á borg­inni“ – lög sem allir Íslend­ingar þekkja nán­ast út og inn.

„Ástæðan fyrir því að ég gerði þetta er sú að það eru að ber­ast fréttir til okkar úr heim­inum um að umræðan um rétt­indi sam­kyn­hneigðra sé alltaf að verða þrengri og þrengri,“ segir Bubbi og nefnir Rússland, Ung­verja­land og Pólland sem dæmi:

„Þetta getur gerst á meðan við sofum; við vöknum og normið er orðið það að það megi ráð­ast á homma; það megi ráð­ast á regn­boga­fólk; það megi ráð­ast á rauð­hærða og hitt og þetta. Það er kveikjan fyrir því að ég valdi „Strák­arnir á borg­inni“ og „Regn­bog­ans stræti“ fyrir þessi verk,“ segir Bubbi og við­ur­kennir fús­lega að hann þurfi líka aura eins og aðrir og þetta sé ágæt leið til að drýgja tekj­urnar og minna um leið á bar­átt­una gegn for­dómum og ofbeldi.

Þrjátíu og sjö ár eru liðin frá því að Bubbi gaf út plöt­una „Ný spor“ sem einmitt inni­hélt þennan risasmell, „Strák­arnir á borg­inni.“ Lagið „Regn­bog­ans stræti“ kom hins vegar út öllu síðar – á sam­nefndri plötu, árið 2019.

Textana fyrir þessi tvö áður­nefndu lög á Bubbi hand­skrif­aða.

Hann segir:

„Það er stutt í for­dóma, bæði hér áður fyrr og líka nú til dags, því miður; við höldum að við séum rosa­lega frjáls­lynd en fas­ism­inn er á sveimi í kringum okkur, bara við land­stein­ana.“

Hann segir söl­una ganga vel en til eru sextán ein­tök af hverju verki – sem eru núm­eruð, árituð og vottuð. Þá er ramm­inn ekk­ert slor; kemur frá Þýska­landi og eru verkin varin gegn útfjólu­bláum geislum og segir Bubbi „að fólk getur verið með verkin í sól­inni í hund­rað ár án þess að neitt ger­ist við þau.

Þess má til gam­ans geta að á opn­un­ar­há­tíð Hinsegin daga fyrir tveimur árum frum­flutti Bubbi lagið „Regn­bog­ans stræti“ og rifj­aði upp kynni sín af Magga í Bristol; homma sem varð honum inn­blástur að þessu lagi.

„Hug­myndin um lagið „Regn­bog­ans stræti“ kvikn­aði þegar ég sá regn­boga­mál­aða götu á Seyð­is­firði; regn­boga sem var mál­aður í skjóli myrk­urs eitt kvöldið. En inn­blást­ur­inn var ekki síður Maggi í Bristol,“ sem var maður sem Bubba var ungum sagt að forð­ast því hann væri hommi. Hommi var orð sem var svo dökkt og ljótt í með­ferð þeirra full­orðnu á þeim tíma. Bubbi lét sér þó ekki segj­ast og kynnt­ist Magga og urðu þeir perlu­vinir. En það fór þó ekki vel fyrir þessum vini Bubba sem á end­anum svipti sig lífi.

Heimild: dv.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Barátta samkynhneigðra

Dauðarefsing fyrir samkynhneigð: „Stjórnvöldum í Úganda er afstaða Íslands vel kunn“
Innlent

Dauða­refs­ing fyrir sam­kyn­hneigð: „Stjórn­völdum í Úganda er afstaða Íslands vel kunn“

Afstaða Íslands til nýrrar lög­gjafar í Úganda er snýr að rétt­indum sam­kyn­hneigra, er yfir­völdum í Afr­íku­rík­inu fullkunn. Engar upp­lýs­ingar til um íslensk trú­fé­lög í Úganda. Fjár­sterkir trú­ar­legir þrýsti­hópar í Banda­ríkj­unum hafa um ára­bil dælt millj­ónum doll­ara til að við­halda for­dómum gegn hinsegin sam­fé­lag­inu í fjöl­mörgum ríkjum Afríku, sér í lagi í Úganda en í sumar var dauða­refs­ingu komið á fyrir...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins