„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Forstjóri Domino’s á Íslandi sigraðist á krabbameini: „Lífið er oft soðin ýsa og skúringar“

Forstjóri Domino’s á Íslandi sigraðist á krabbameini: „Lífið er oft soðin ýsa og skúringar“

For­stjóri Domino’s á Íslandi, Magnús Haf­liða­son, byrj­aði að hlaupa utan vega eftir að hafa greinst og barist við krabba­mein í eitlum.

Metn­að­ar­fullur og bar­átt­uglaður for­stjór­inn stefnir á hálft Reykja­víkur­mara­þon og mun þar hlaupa fyrir Kraft, stuðn­ings­fé­lagið fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabba­mein.

Magnús segir að hann „sé nýfrels­aður til utan­vega­hlaupa. Ég byrj­aði að hlaupa í októ­ber og hef bara eig­in­lega ekki hætt síðan.“

Hann segir einnig að hann sé „alger­lega hel­sjúkur af hlaupa­bakt­er­í­unni,“ en hann fer út að hlaupa allt að fjórum sinnum í viku og leggur í kringum hund­rað kíló­metra að baki á mán­uði.

Bætir við:

„Fyrir mér er bara ein­stakt að vera ein­hvers staðar úti í nátt­úr­unni. Ég er minna fyrir götu­hlaupin og finnst lang­best að vera ein­hvers staðar úti í sveit, helst einn með sjálfum mér. Það er eitt­hvað alveg sér­stakt við það. Mér finnst líka eitt­hvað svo fal­legt við ein­fald­leik­ann í hlaup­unum. Þú getur bara reimað á þig skóna og hlaupið út. Ég reyndar bý svo vel uppi í Graf­ar­holti og er bara með Hólms­heið­ina í bak­garð­inum. Rauða­vatn og það allt saman, þannig að maður bindur bara á sig skóna og hleypur af stað.“

Magnús mun taka þátt í Reykja­vík­ur­mara­þoni Íslands­banka, laug­ar­dag­inn 21. ágúst, en seg­ist ekki vera „til­bú­inn í heilt strax og ætla að taka hálft mara­þon; ég ræð við það,“ segir hann og mun hlaupa fyrir Kraft, stuðn­ings­fé­lag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabba­mein og aðstand­endur.

Sem for­stjóri Domino´s stefnir Maggnús á að „reyna að ná saman hund­rað starfs­mönnum hjá Domino’s til að hlaupa fyrir Kraft og setja markið hátt. Ég er að von­ast til þess að okkur tak­ist að búa til alvöru stemn­ingu og alvöru pen­ing fyrir Kraft. Það starfa um sex hund­ruð manns hjá okkur, þannig að ég held að það sé alveg mögu­legt að ná hund­rað og setja smá kraft í þetta.“

Magnús seg­ist hafa verið slappur og veikur í nokkra mán­uði áður en hann greind­ist með eitlakrabba­meinið fyrir fimm árum síðan:

„Þá var ég 35 ára og bjó í Noregi þar sem við vorum að stand­setja Domino’s. Ég fór bara í þessa hefð­bundnu með­ferð með öllu sem því fylgir. Sex lyfja­með­ferðir og sex sinnum í geisla­með­ferð.“

Hann nefnir varð­andi Kraft og krabba­mein að „þetta stendur manni dálítið nærri vegna þess að maður veit alveg hversu mikil áskorum þetta getur verið og reynir kannski dálítið öðru­vísi á yngra fólk,“ segir hann og bendir á að þegar ungt fólk grein­ist er það oft á vinnu­mark­aði; jafn­vel að byggja upp feril; eign­ast börn og þar fram eftir göt­unum.

„Þú átt að minnsta kosti aldrei von á þessu og í þessum aðstæðum kemur þetta manni ein­hvern veg­inn meira á óvart. En þú ert bara með eitt mark­mið; að klára þetta og bless­un­ar­lega gengur það nú yfir­leitt upp þótt það gangi á ýmsu hjá fólki í gegnum þetta.“

Magnús segir að lokum að á meðan á með­ferð stendur verði til hug­myndir um lífið að með­ferð lok­inni:

„Þegar ég er búinn með þetta þá ætla ég sko að gera þetta og hitt og allt saman og lifa líf­inu alveg í botn allan tím­ann og rúm­lega það. Síðan getur manni bara reynst dálítið erfitt og flókið að þurfa svo að átta sig á því að lífið er svo oftar en ekki soðin ýsa á mánu­degi, bleyju­skipt­ingar og skúr­ingar. Það er ekki alveg myndin sem maður hefur í huga sér.“

Heimild: Frétta­blaðið

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins