„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Prófessorinn hlaut þrisvar dóm – Huldumaður bjargaði Hannesi Hólmsteini

Prófessorinn hlaut þrisvar dóm – Huldumaður bjargaði Hannesi Hólmsteini

Nokkru áður en útvarps­rekstur var gef­inn frjáls í land­inu urðu hörku­á­tök þegar þeir Kjartan Gunn­ars­son, Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son og Eiríkur Ing­ólfs­son, stóðu að rekstri útvarps­stöðvar undir merki Frjáls útvarps. Þetta gerð­ist á níunda ára­tugnum í verk­falli BSRB. Rík­is­út­varpið var lamað og engar útsend­ingar þar. Aðstand­endur útvarps­stöðv­ar­innar voru allir tals­menn frelsis og hug­sjóna­menn á því sviði og braut­ryðj­endur. Þeir héldu stöð­inni úti um tíma en afleið­ing­arnar urðu þær að frum­herjar frels­is­ins voru ákærðir fyrir lög­brot og loks dæmdir til greiðslu 20 þús­und króna sektar eða fang­elsis í 15 daga að öðrum kosti.

„Við höfum ákveðið að áfrýja dómnum til Hæsta­réttar. Ég hef ekki trú á að Hæsti­réttur kveði upp sama dóm. Ég mun ekki greiða sekt­ina verði ég dæmdur í Hæsta­rétti. Frekar mun ég sitja inni til að mót­mæla dómnum,“ sagði Hannes Hólm­steinn í við­tali við DV í febr­úar 1986.

„Dómurinn kom mér ákaf­lega mikið á óvart því að við höfðum tekið fram sterkar rök­semdir fyrir rétt­mæti og lög­mæti frjálsu útvarps­stöðv­anna. Ákæru­vald­inu er beitt í póli­tískum til­gangi. Við erum ákærðir fyrir rekstur frétta­út­varps á sama tíma og margar útvarps- og sjón­varps­stöðvar víða um land eru látnar óátaldar. Þess má t.d. geta að sjón­varps­stöð á Ólafs­firði er nú starf­rækt. Stöðin greiðir sölu­skatt til fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. Þetta er furðu­legt,“ sagði Hannes Hólm­steinn.

Málið fór á þann veg, Hannesi til undr­unar, að Hæsti­réttur stað­festi dóm­inn yfir for­svars­mönnum útvarps­stöðv­ar­innar.

Stundin hafði sam­band við Hannes Hólm­stein, sem í dag er pró­fessor við Háskóla Íslands. Hann upp­lýsti að huldu­maður greiddi sekt hans. Hannes Hólm­steinn sat því aldrei í fang­elsi vegna máls­ins en lýsir mál­inu í skrif­legu svari.

„Ég skrif­aði heilan kafla um það í bók­ina mína Fjöl­miðlar nútím­ans. Það er líka kafli um málið í bók Jóns Steinars Gunn­laugs­sonar, Deilt á dóm­ar­ana. Ræða mín fyrir dómi er birt í bók­inni Frjáls­hyggjan er mann­úð­ar­stefna. Við vorum dæmdir í sekt í hér­aðs­dómi, og dóm­ur­inn var stað­festur í Hæsta­rétti. Ég ætl­aði ekki að greiða sekt­ina og sitja hana frekar af mér (mig minnir, að það hafi verið tólf dagar), enda hefði það verið lífs­reynsla að sitja í fang­elsi. En ein­hvern tím­ann, þegar ég hafði verið lengi í útlöndum, hafði ein­hver greitt sekt­ina. Mig grun­aði Kjartan Gunn­ars­son, en hann bar það af sér“.

Hannes Hólm­steinn slapp sem sagt við fanga­vist á þessum tíma. Seinna fékk hann dóm vegna umm­mæla um auð­mann­inn Jón Ólafsson, Jón Bæjó. Hannes sagði á nor­ræna blaða­manna í Reyk­holti í októ­ber 1999 að Jón hefði auðg­ast á vafa­saman hátt. Úrdráttur úr erindi hans var birtur á ensku heima­síðu Hannesar. Jón stefndi Hannesi fyrir enskum dóm­stólum og krafð­ist 11 milljón króna. Dóm­stól­inn féllst á kröfu Jóns og dæmdi Hannes til að greiða 11 millj­ónier króna. Það var talið lyk­il­atriði í mála­ferl­unum að út­drátt­ur úr er­ind­inu var birt­ur á ensku á heima­síðu Hann­es­ar Hólm­steins. Af þeim sök­um hefði mynd­ast grund­völl­ur fyr­ir mála­ferl­um í Englandi.

Greip ekki til varna

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son sagði í sam­tali við Morg­un­blaðið að sér hefði fund­ist frá­leitt að hægt væri að draga hann fyrir dóm í Englandi fyrir ummæli sem hann lét falla hér­lendis. Hannes Hólm­steinn sagði að hann hefði, að ráði lög­fræð­inga sinna ákveðið að grípa ekki til varna  vegna þess að því fylgdi gríð­ar­legur kostn­aður að eiga í mála­ferlum í Englandi. Kveðinn var upp úti­vist­ar­dómur og Jón inn­heimti bæt­urnar af hörku. Hannes lenti í miklum vand­ræðum og end­aði með því að selja Kjartani Gunn­ars­syni húsið sitt. Enn kom huldu­maður til hjálpar.

Frétt DV um vand­ræði Hannesar vegna dóms­ins í Bret­landi

Útdrátt­ur­inn úr er­ind­inu var á heima­síðu Hann­es­ar Hólm­steins frá 1999 til 2004 þegar hann lok­aði heima­síð­unni „til að losna við þetta stríð við Jón Ólafs­son“. Hann­es Hólm­steinn kvaðst eng­an tíma hafa haft til að sinna mál­inu enda á kafi í rit­störf­um á þess­um tíma auk þess sem hann lagð­ist á sjúkra­hús vegna veik­inda stuttu eft­ir að málið var höfðað. Þetta eru að lík­indum hæstu bætur sem Íslend­ingi hefur verið gert að greiða landa sínum. Hannes lenti í fjár­hags­erf­ið­leikum vegna þessa en tókst með góðri hjálp að vinna sig út úr þeim.

Stolið frá Nóbelsskáldi

Þriðja málið sem olli Hannesi erf­ið­leikum var þegar hann skrif­aði ævi­sögu Nóbels­skálds­ins Halldórs Kiljans Laxneness og tók þá ófrjálsri hendi texta skálds­ins án þess að geta heim­ilda. Auður Laxness, ekkja Halldórs Kiljans, lög­sótti Hannes sem var dæmdur fyrir rit­stuld og gert að greiða bætur.

Mála­vextir eru að árið 2003 kom út bókin Halldór 1902-1932, ævi­saga Halldórs Kiljans Laxness, eftir Hannes H. Giss­ur­ar­son. Auður taldi að Hannes hefði við ritun bókar sinnar nýtt sér í miklum mæli texta Laxness og með því framið umfangs­mikil brot á höf­unda­rétti. Taldi hún í bók­inni mætti finna 120 til­vik þar sem Hannes hefði brotið gegn höf­und­ar­lögum.  Hæsti­réttur féllst á sjón­ar­mið ekkj­unnar og kvapð upp dóm í mars 2008. Hannes þurfti að greiða 1,5 milljón króna fyrir brot á höf­unda­rétti, auk þess sem hann var dæmdur til að greiða 1,6 millj­ónir í máls­kostnað. Hannes hafði verið sýkn­aður í Hér­aðs­dómi vegna máls­ins en Hæsti­réttur snéri dómnum.

Þrátt fyrir dóm­inn hélt Hannes starfi sínu sem pró­fessor við Háskóla Íslands. Málið hafði engar afleið­ingar fyrir hann og fékk hann ekki einu sinni áminn­ingu.

Hluti grein­ar­innar birt­ist áður í Stund­inni en höf­undur er sá sami og nú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins