„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Stefán Hrafn: „Hlýnunin getur verið blessun“ – Grænlandsjökull hopaði um 100 metra á einu ári:

Stefán Hrafn: „Hlýnunin getur verið blessun“ – Grænlandsjökull hopaði um 100 metra á einu ári:
Stefán Hrafn Magn­ús­son hrein­dýra­bóndi í Isortoq á Græn­landi. Mynd: Reynir Traustason

„Jök­ull­inn hefur hopað um 100 metra á einu ári. Sam­bæri­leg þróun  hefur staðið í mörg ár,“ segir Stefán Hrafn  Magn­ús­son, hrein­dýra­bóndi í Isortoq á Suður-Græn­landi í sam­tali við Mannlíf. Hann var á ferð við jök­ul­sporð­inn í Ísafirði fyrir örfáum dögum og sá breyt­ing­una frá síð­asta ári. Nýtt land hefur birst undan jökl­inum.

Skrið­jök­ull­inn á Suður-Græn­landi hopar hratt.

„Þá var rúmt ár frá því ég kom hér síð­ast með hóp íslenskra ferða­manna. Það blasa við manni afleið­ingar hlýn­un­ar­innar, Eftir 5 til 10 ár verður hægt að ganga þurrum fótum fyrir botn fjarð­ar­ins þar sem áður var stór skrið­jök­ull sem náði langt í sjó fram“.

Það er ástæðu­laust að vera í panik

Stefán hefur um langt skeið fylgst með þeim breyt­ingum eru að eiga sér stað, sam­fara hlýnun jarðar. Margir hafa af þessu áhyggjur en Stefán er á þeirri skoðun að hlýn­unin sé til góðs að mörgu leyti. Hlýnun á Græn­landi geti fylgt bæði gull og grænir skógar.

„Það er ástæðu­laust að vera í panik. Þegar gróð­ur­inn eykst með hlýn­unni þá étur hann koltví­sýr­ing­inn. Þetta er allt hluti af þeirri hringrás sem átt hefur sér stað á heims­byggð­inni í gegnum jarð­sög­una. Þá kemur land undan jökl­inum sem gerir jarð­fræð­ingum létt­ara að finna gull og ger­semar. Á norð­ur­slóðum er þetta til góðs að mörgu leyti,“ segir Stefán Hrafn.

Frá Isortoq.

Hann segir Íslend­inga ekki síst njóta góðs af hlýnun jarðar.

„Hlýnunin getur verið blessun. Landið mun gróa upp og land­eyð­ing­unni á Íslandi lýkur. Við erum ekki einu sinni komin á það hlý­inda­skeið sem við upp­lifðum á vík­inga­öld. Fyrir nokkrum árum var óson­lag­inu kennt um hlýn­unia. Þá var ákveðið að skipta um kæli­m­iðla og óson­lagið fór að vaxa. Gróð­ur­saga plánet­unnar okkar segir að það voru áður meiri hlý­indi en nú.  Koltví­sýr­ing­ur­inn þá fór ofan í jörð­ina og varð að kolum og olíu. Þessi hringrás er enn í gangi“.

Stefán segir að þetta þýði þó alls ekki að fólk eigi að vera áhyggju­laust. Mann­kynið verði að taka ábyrgð á sínum eigin verkum.

„Við eigum ekki að vera áhyggju­laus. Við megum ekki hundsa verk manns­ins og eigum að vera á varð­bergi. Við eigum að læra að skilja plánet­una og efla vís­indin sem kenna okkur að umgang­ast ver­öld okkar. En það er ekki áhyggju­efni þótt haf­ís­inn og jökl­arnir hopi aðeins. Það gerir líf okkar bæri­legra“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins