„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Baráttukonan Sólveig Anna Jónsdóttir: „Skólaganga gerði ekkert nema valda mér kvíða“

Baráttukonan Sólveig Anna Jónsdóttir: „Skólaganga gerði ekkert nema valda mér kvíða“
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd: Róbert Reynisson

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, seg­ist hafa verið sér­lundað barn. Skólinn heill­aði hana ekki sem barn og ung­ling. Hún vildi fara sínar eigin leiðir og seg­ist hafa verið jað­ar­típa og sýndi það með útliti sínu og atferli. Hún flosn­aði úr námi eftir að hafa farið í þrjá fram­halds­skóla, fór út á vinnu­mark­að­inn, varð móðir 21 árs og flutti örfárum árum síðar með ást­inni í lífi sínu og tveimur börnum til Banda­ríkj­anna þar sem þau bjuggu í átta ár. Þau komu heim rétt fyrir hrun og tók Sólveig Anna virkan þátt í bús­á­halda­bylt­ing­unni. Hjónin upp­lifðu miklar fjár­hags­á­hyggjur í nokkur ár og aktí­víst­inn, sem vann á leik­skóla í um ára­tug, bauð sig fram árið 2018 til for­manns Eflingar og sigr­aði. Sólveig Anna vill láta laga kjör lág­launa­fólks og verka­fólks og er í 4. sæti fyrir Sós­í­alista fyrir alþing­is­kosn­inganrar í haust.

Sólveig Anna Jóns­dóttir er dóttir Ragn­heiðar Ástu Pét­urs­dóttur og Jóns Múla Árna­sonar sem bæði eru látin en stór hluti Íslend­inga man eftir röddum þeirra í útvarpi lands­manna. Hún er eina barnið sem þau eign­uð­ust saman en á hálf­systk­ini og seg­ist því aldrei hafa upp­lifað sig sem einka­barn. „Ég er alltaf partur af mjög stórri fjöl­skyldu og ég upp­lifði hálf­systk­ini mín aldrei sem hálf­systk­ini heldur sem systk­ini mín.“

Hún seg­ist hafa verið sér­lundað barn. „Mamma mín sagði oft að ég væri mjög óráð­þægin; það var hennar góða og blíða leið til að segja að ég væri óhlýðin. Þegar ég var búin að læra að lesa þá vildi ég nú helst bara fá að gera það í friði en mér fannst líka vera gaman að fara út að leika mér og ærsl­ast. Ég hafði aldrei neinn áhuga á að vera í skipu­lögðu starfi svo sem skipu­lögðum íþróttum. For­eldrar mínir voru ekki hrifnir af fyr­ir­bærum eins og skát­unum svo dæmi sé tekið af því að þau voru nátt­úr­lega komm­ún­istar og litu á skát­ana með mik­illi tor­tryggni; að þar væri verið að kenna börnum borg­ara­leg gildi eins og hlýða og hugsa um guð og Jesú. Þannig að það var ekki mjög vin­sælt; ekki þó að ég hafi sóst sér­stak­lega eftir því. Bernska mín var ánægju­leg en þegar ég varð ung­lingur þá tók við nýr kafli í lífi mínu. Mér fannst ekki vera gaman í skól­anum og ég fún­ker­aði ekki vel inni í skóla­kerf­inu sem var svo­lítið eins­leitt á þessum tíma og ekki mikið pláss fyrir ein­hverja sköpun eða ein­hverja „alt­erna­tíva“ sýn á lífið og til­ver­una sem ég var þá orðin dálítið upp­tekin af. Sem ung­lingur upp­lifði ég mig dálitla jað­ar­típu en mér fannst það vera mjög töff og eft­ir­sókn­ar­vert og ég vildi með útliti mínu og atferli sýna það og sanna fyrir öllum að ég væri sann­ar­lega jað­ar­típan sem mig dreymdi um að vera. Þessu fylgdu engir hræði­legir erf­ið­leikar eða mjög mikið upp­nám. Ég bar mikla virð­ingu fyrir for­eldrum mínum þannig að ég reyndi alltaf að láta vita af mér og koma heim og vera að ein­hverju leyti góð stúlka. En auð­vitað hélt ég leyndu fyrir þeim mjög stórum parti af minni frekar hömlu­lausu ung­linga­til­veru.“

Sem ung­lingur upp­lifði ég mig dálitla jað­ar­típu

„Gothy look“

Sólveig Anna fór í þrjá fram­halds­skóla á þremur árum og flosn­aði upp úr námi áður en að stúd­ents­prófi kom.

„Þegar kom að því að fara í fram­halds­skóla var ég orðin svo rosa­lega afhuga skóla­göngu og skóla­kerf­inu svo að til­hugs­unin um að fara í nám var ekki lengur raun­veru­legur val­kostur fyrir mér. Ég var samt ekki með neitt annað plan í stað­inn. Ég var eig­in­lega búin að lesa of mikið af skáld­sögum þannig að ég var með mjög ríku­legar hug­myndir um eitt­hvað rosa­lega inni­halds­ríkt ævin­týra­líf sem hlyti að vera ein­hvers staðar í boði. Og mér fannst allir skól­arnir vera jafn ógeðs­lega leið­in­legir. Skóla­ganga gerði ekk­ert nema valda mér kvíða og leið­indum. Ég reyndi ekki einu sinni að leggja mig fram. Ég gat ekki fún­kerað inni í fram­halds­skóla­kerf­inu.“

Hún fór að sækj­ast í partí og að skemmta sér.

„Mér fannst bara allt fólk sem var eitt­hvað öðru­vísi og ekki partur af ein­hverri smá­borg­ar­legri til­veru vera mest töff fólkið. Og ég vildi ein­hvern veg­inn „signal­era“ til sam­fé­lags­ins að ég sann­ar­lega ætl­aði að vera ein af þeim þannig að það var mark­visst verk­efni hjá mér að klæða mig og líta svo­leiðis út. Það mátti eng­inn vafi leika á því að ég væri ekki ein­hver hvers­dags­leg stelpa úr Foss­vog­inum heldur svaka­lega töff.“

Hún seg­ist hafa litað hárið á sér svart og lagt áherslu á að vera með mjög hvíta húð.

„Ég var bara mjög „experimental“ í útliti. Þegar ég var ung­lingur þá var hug­takið „goth“ ekki komið til Íslands eða alla­vega náði það ekki til mín en auð­vitað var þetta mjög „gothy look“ án þess þó að ég hafi nokkurn tím­ann skil­greint mig sem „goth“ af því að ég vissi ein­fald­lega ekki hvað það var.“

Hvernig var fata­stíll­inn?

„Blanda af pönk-upp­reisn­ar­til­rauna­mennsku með goth-ívafi með það mjög ein­beitta mark­mið að vera eins ein­stök í útliti og hægt var að hugsa sér. Þessi þörf fyrir að skera mig úr sem jað­ar­típa var vænt­an­lega sökum bæði per­sónu­leika míns og fjöl­skyldu­að­stæðna. Ég átti pabba sem var miklu eldri en mamma mín, ég átti for­eldra sem voru eldri en for­eldrar vina minna, for­eldra sem voru yfir­lýstir komm­ún­istar og fólk vissi hverjir þau voru þannig að þetta var allt saman svo­lítið öðru­vísi. Ég hef kannski tekið þá ákvörðun að þá væri bara alveg jafn­gott að vera bara alls ekki á neinn hátt að reyna að sam­lag­ast, heldur þvert á móti taka þetta bara skref­inu lengra.

Ég var mjög sólgin í að lenda í því sem ég upp­lifði sem ævin­týri. Og ung­lingur sem er sólg­inn í að lenda í ævin­týrum hefur nátt­úr­lega eina mjög auð­velda leið til þess. Og það er að kom­ast í partí og gera svo­leiðis spenn­andi hluti. Mér fannst það vera mjög skemmti­legt og það var stór partur af ung­linga­lífi mínu.“

Var drukkið of mikið?

„Ég djamm­aði mjög mark­visst. Ég var mjög upp­tekin af því. Þar upp­lifði ég vissa útrás fyrir ýmsa hegðun sem mig lang­aði til þess að ástunda. Og eins og þau sem hafa djammað vita þá leyf­ist ýmis hegðun og ýmsir hlutir sem leyfast ekki í hvers­dags­legri til­veru.“

Ég djamm­aði mjög mark­visst.

Rasisminn og stéttaskiptingin

16 ára gömul byrj­aði Sólveig Anna með stráki, Magnúsi Sveini Helga­syni.

„Hann var líka áhuga­maður um öðru­vísi útlit. Mér fannst hann bara vera ógeðs­lega töff og sætur. Það var mjög ein­falt. Mér fannst hann vera rosa­lega smart, í ógeðs­lega flottum fötum og með geggjað töff hár. Þetta er mjög yfir­borðs­kennt og útlits­miðað.“

Hún hlær.

„Þetta var storma­samt ung­linga­sam­band. Við hættum að vera saman þegar ég var 18 eða 19 ára og svo byrj­uðum við aftur saman þegar ég var búin að eign­ast son minn, Jón Múla, þegar ég var 21 árs. Hann var þá alveg nýfæddur. Ég er mjög þakk­lát fyrir að hafa eign­ast son minn svona ung vegna þess að það gaf mér þetta „stabílitet“ og jarð­teng­ingu sem ég sann­ar­lega þurfti mjög mikið á að halda. Og það að hafa svona stórt verk­efni sem var bara mitt og sem ég gat ekki dömpað á ein­hvern annan og hafði engan áhuga á að losa mig undan gerði mér á end­anum fært að stíga inn í raun­veru­lega full­orð­ins­til­veru sem var mjög gott og tíma­bært.“

Sólveig Anna fór út á vinnu­mark­að­inn þegar hún hætti í þriðja fram­halds­skól­anum 19 ára og fór að vinna á skrif­stofu. Hún og Magnús eign­uðst svo dóttur, Guðnýju Margréti, þegar Jón Múli var þriggja ára og fluttu þau svo til Banda­ríkj­anna árið 2000 og bjuggu þar í átta ár en þar var Magnús í námi.

„Það var mjög áhuga­verður tími og ótrú­lega mikið mót­andi. Við bjuggum í Minnesota sem er fylki sem er mjög upp­tekið af sínum skand­in­av­íska arfi þannig að við sem Íslend­ingar upp­lifðum í raun það besta sem þetta sam­fé­lag getur boðið upp á. Við vorum með tvö lítil börn og tími minn fór fyrstu árin mikið í að sinna þeim og eftir nokkur ár fór ég í hluta­starf í verslun. Banda­ríkin eru sam­fé­lag sem er oft mjög upp­tekið af hefð­bundnum gildum og ég próf­aði að gera það sem mæður barna á skóla­aldri eiga helst að gera sem er að stunda sjálf­boða­liða­störf innan skóla­kerf­is­ins. Þetta var mjög góður tími per­sónu­lega fyrir mig. Ég hafði mikla unun af að vera með börn­unum mínum og það var líka mjög gott fyrir mig að fá mik­inn tíma til þess að kynn­ast sjálfri mér. Þannig að per­sónu­lega var þetta að mörgu leyti mjög jákvæður og mót­andi tími.“

Hún segir að þetta hafi líka verið mót­andi tími út frá póli­tísku sjón­ar­horni.

„Ég sá með eigin augum ras­is­mann, stétta­skipt­ing­una og blóð­þorst­ann í stríðsæs­inga­fólk­inu en Banda­ríkin stóðu í sínum glæp­sam­legu inn­rás­ar­stríðum í Afganistan og Írak. Ég heyrði Banda­ríkja­menn tala um að Banda­ríkin væru ein­hvern veg­inn æðsta yfir­vald allrar ver­ald­ar­innar; ég lærði mikið um þetta rasíska og kap­ít­al­íska sam­fé­lag. Ég sá hvað kerf­is­lægur sad­ismi er inn­byggður í þennan brú­tal kap­ít­al­isma og hversu þetta kerfi þarf algjör­lega á kúgun og ofbeldi að halda til að virka. Hversu mikið þetta kerfi byggir á lygum, mark­vissum lygum, algjör­lega hömlu­lausum. Og svo sá ég algert skeyt­ing­ar­leysi gagn­vart hags­munum vinn­andi fólks þar sem fátækt verka­fólk virt­ist vera bók­stak­lega einskis virði og sem hægt var að koma fram við eins og eitt­hvað rusl. Mann­eskja sem hefur farið inn í þetta kerfi, séð það og upp­lifað og lagt sig fram um að skilja það kemur ekki óbreytt út úr því. Mér fannst ég líka bera ríka sið­ferð­is­lega skyldu til að reyna að skilja þetta sam­fé­lag, fræð­ast um það og vera ekki bara þarna sem ein­hver hvít afætu­kona á þessu brú­tal, rasíska arð­ráns­kerfi bara komin til að njóta alls þess besta. Ég tók þetta verk­efni mjög alvar­lega, eyddi tíma og orku í að fræð­ast og fylgj­ast með fréttum og smám saman sá ég hvernig alþýða fólks átti bók­stak­lega engan séns og hvernig allt var gert til að halda henni niðri. Og á sama tíma voru óend­an­lega miklir fjár­munir settir í að myrða með sprengjum sak­laust fólk í fjar­lægum löndum. Þetta lét mig held ég end­an­lega full­orðn­ast.“

Ég er mjög þakk­lát fyrir að hafa eign­ast son minn svona ung .

Ógeðslega ömurlegt ástand

Allt var á suðu­punkti árið 2008 og flutti fjöl­skyldan heim nokkrum mán­uðum áður en Geir H. Haarde bað Guð um að blessa Ísland.

Hrunið var stað­reynd.

Magnús fékk vinnu sem blaða­maður og Sólveig Anna hóf störf í leik­skóla. Svo missti Magnús vinn­una og miklir fjár­hags­erf­ið­leikar tóku við eins og hjá svo mörgum á þessum tíma. Sólveig Anna tók virkan þátt í bús­á­halda­bylt­ing­unni þar sem fólk sló á potta og pönnur.

„Ég lifði mig mikið inn í og tók þátt í þess­ari alþýðu­upp­reisn sem hefur verið kölluð bús­á­halda­bylt­ingin. Það hafði að sjálf­sögðu mikil áhrif. Og þar hófst næsti partur lífs míns þar sem ég fékk ann­ars vegar á eigin skinni að reyna alveg rosa­lega fjár­hags­erf­ið­leika og hins vegar lærði ég að vera aktí­visti. Ég var að upp­lifa þá sorg sem fylgir því að reyna að sjá fyrir tveimur börnum undir mjög miklu fjár­hags­legu álagi. Það er mikil þrekraun eins og þau vita sem það hafa reynt. Maður vill veita börn­unum það sem manni finnst þau eiga rétt á en þarf svo ein­hvern veg­inn að lifa hverja ein­ustu stund með þennan skugga fjár­hags­á­hyggj­anna hang­andi yfir. Það grefur auð­vitað undan geð­heilsu og lífs­ham­ingju fólks sem er sett í þá stöðu. Og á sama tíma var ég svo að upp­lifa ótrú­lega skemmti­lega, merki­lega, ævin­týra­lega og magn­aða hluti með því að taka þátt í bús­á­halda­bylt­ing­unni; með því að taka þátt í alls konar aðgerðum, með því að kynn­ast fólki og með því að sjá að fólk var fært um alls konar merki­lega hluti, fólk sem var hug­rakkt, rót­tækt og djarft. Þetta var mjög skrýt­inn tími, bæði mjög erf­iður og sorg­legur en jafn­framt sjúk­lega skemmti­legur og spenn­andi.

Ég leit­aði kannski svo­lítið skjóls í aktí­vism­anum en það skipti mig svo miklu máli að kom­ast burt frá þessu erf­iða amstri hvers­dags­leik­ans þar sem ég var að vinna vinnu sem mér sann­ar­lega þótti vænt um en sem var líka and­lega og lík­am­lega lýj­andi og erfið. Og svo var ég bara undir þessum skugga fjár­hags­erf­ið­leik­anna og þess vegna sótti ég mjög mark­visst í aktí­vis­mann. Hann varð kannski mín núvit­und­ar­til­raun. Inni í aktí­vism­anum getur maður kom­ist inn í raun­veru­legt núvit­und­ar­mó­ment. Á svo­leiðis tíma­punkti skilur maður ein­hvern veg­inn allt hitt eftir og fær að lifa um stund frjáls undan því sem ann­ars hefur öll tök á til­ver­unni. Ég er alla­vega mjög ánægð með að ég hafði þennan stað til þess að fara á og ég gat fengið útrás og umbun fyrir að vera eitt­hvað meira en bara mann­eskja sem átti ekki krónu með gati og var alltaf með áhyggjur.“

Og svo var ég bara undir þessum skugga fjár­hags­erf­ið­leik­anna .

Og ég var ofsalega reið

Árin liðu. Lífið gekk sinn vana­gang. Sólveig Anna sinnti starfi sínu á leik­skól­anum, vann um tíma jafn­framt í verslun til að auka tekj­urnar og sinnti ýmsum aktí­visma meðal ann­ars með Attac á Íslandi, No Borders og Róttæka sum­ar­há­skól­anum. „Það var í gegnum aktí­visma sem þekk­ing byggð­ist upp hjá mér, reynsla og auð­vitað alltaf meiri og meiri löngun til þess að breyta þessu sam­fé­lagi sem ég upp­lifði og upp­lifi sem kúg­un­ar­sam­fé­lag byggt á ógeðs­lega brú­tal stig­veldi.

Ég varð fyrir vissri hug­ljómun þegar ég var búin að vinna í nokkur ár á leik­skól­anum. Ég vona að þetta hljómi ekki ótrú­verð­ugt af því að þetta er sann­leik­ur­inn en ég átt­aði mig á því að ég væri raun­veru­lega við­fang rosa­lega ógeðs­legs kven­fyr­ir­litn­ing­ar­kerfis sem samt var algjör grund­völlur þessa mikla kven­frelsis sem Íslend­ingar eru mjög stoltir af; þess­arar miklu atvinnu­þátt­töku kvenna til jafns við karla. Ég sá að leik­skól­arnir voru und­ir­staðan en engu að síður voru þar lægst laun­uð­ustu hópar sam­fé­lags­ins að störfum. Ég fór mikið að pæla í stöðu lág­launa­kvenna í kap­ít­al­ísku sam­fé­lagi sem byggir mark­visst á gildum kvenna­kúg­un­ar­innar; hefð­bundin kvenna­störf við umönnun barna og gam­als fólks eru svo lít­ils virði að ekki aðeins eru þau svo illa launuð að það getur verið þrekraun að kom­ast af á þeim heldur erum við jafn­framt með öllu ósýni­legar þrátt fyrir að halda öllu gang­andi. Það er eng­inn sem virðir okkur við­lits, við erum aldrei ávarp­aðar og það er eng­inn sem spyr okkur hvernig við höfum það. Við aug­ljós­lega fáum aldrei neitt þakk­læti. Við erum bara alger­lega á botn­inum. Og ég fyllt­ist alveg rosa­lega miklu ógeði og andúð á þess­ari tryll­ings­legu sam­fé­lags­legu hræsni sem ég upp­lifði þarna mjög sterkt. Ég vann með konum alls staðar að úr heim­inum, frá­bærum mann­eskjum sem stóðu sína plikt með alla sína reynslu, kunn­áttu og þekk­ingu. Þær voru alger­lega ómissandi í þessu gang­verki og ég sá sjálfa mig sem alger­lega ómissandi en ég sá líka að eng­inn hafði áhuga á okkur. Og ég varð alveg ofsa­lega reið. Þessi sjálfs­upp­hafn­ing um Ísland sem ein­hverja bestu kvennaparadís­ina í öllum heim­inum fyllti mig andúð og ég hugs­aði um að þessu þyrfti að breyta. Ég var samt ekki með mark­vissar hug­myndir um hvernig ætti að gera það en ég fór að velta þessu mikið fyrir mér og fór að reyna að greina þetta ástand og skilja. Þetta ofurarð­rán á vinnu­afl­inu sem end­ur­fram­leiðir sam­fé­lagið varð mið­punkt­ur­inn í analísu minni á kap­ít­al­ísku sam­fé­lagi. Ég fór að skoða marxískar kenn­ingar um félags­lega end­ur­fram­leiðslu. Ég sá þennan sann­leika með svo ótrú­lega skýrum hætti. Og ég upp­lifði að sam­fé­lag sem lætur ofurarð­rán við­gang­ast á þessu ómissandi vinnu­afli er sam­fé­lag sem verður sjálfu sér til hábor­innar skammar.“

Og Sólveig Anna Jóns­dóttir ákvað að bjóða sig fram til for­manns Eflingar árið 2018. Og hún sigr­aði.

Og ég fyllt­ist alveg rosa­lega miklu ógeði og andúð á þess­ari tryll­ings­legu sam­fé­lags­legu hræsni.

Íslendingar um helmingur félagsmanna

Sólveig Anna seg­ist vera stolt af því sem hún og stjórn Eflingar hafa áorkað.

„Við höfum ekki aðeins sýnt og sannað að verka­fólk er til­búið til þess að beita verk­falls­vopn­inu með mjög árang­urs­ríkum hætti heldur höfum við gert þetta öfl­ug­asta vopn vinnu­aflsins að ein­hverju sem allir skilja núna að raun­veru­lega virkar. Verkföll félags­fólks Eflingar skil­uðu lífs­kjara­samn­ingnum. Og ef Efl­inga­konur í umönnu­ar­störfum hefðu ekki sýnt þetta ótrú­lega hug­rekki og þessa dirfsku í verk­föll­unum hjá Reykja­vík­ur­borg og hjá sveit­ar­fé­lögum þá hefðum við aldrei náð þar í gegn leið­rétt­ing­unni á sögu­lega van­metnum kvenna­störfum. Og með því að gera allt þetta lærðum við og kenndum okkur sjálfum svo ótrú­lega margt sem hafði verið látið gleym­ast í íslenskri verka­lýðs­bar­áttu. En við höfum líka breytt því hvernig Efling þjón­ustar sitt félags­fólk. Á skrif­stofum félags­ins eru nú töluð sex tungu­mál. Heima­síðan og „mínar síður“ eru á íslensku, ensku og pólsku. Ég fyll­yrði að við erum komin algjör­lega í fremstu röð á Íslandi í að veita þeim sem eiga rétt á þjón­ustu félags­ins aðgang að henni á þeirra for­sendum. Við túlkum einnig alla fundi sem við höldum, ýmist á ensku eða íslensku, eftir þörfum. Og við höfum unnið magnað frum­kvöðla­starf í íslenskri verka­lýðs­hreyf­ingu með því að sýna og sanna að verka­fólk sem er fætt á Íslandi og aðflutt verka­fólk getur og á að starfa saman hlið við hlið í bar­átt­unni fyrir efna­hags­legu rétt­læti.“

Sólveig Anna segir að nú séu um 26.000 félags­menn í Eflingu en þeim fækk­aði vegna heims­far­ald­urs­ins. Kynja­skipt­ingin er nokkuð jöfn og eru Íslend­ingar um helm­ingur félags­manna. Pól­verjar eru fjöl­menn­asti hópur útlend­inga í félag­inu. Sólveig Anna segir að grunn­laun fyrir verka­fólk sé um það bil 362.000 krónur. „Almennt starfs­fólk á hót­elum er með 1939 krónur á tím­ann í dag­vinnu. Mann­eskja sem vinnur í eld­húsi er með 331.735  á mán­uði. Það sama gildir um iðn­verka­fólk.“

Kynja­skipt­ingin er nokkuð jöfn og eru Íslend­ingar um helm­ingur félags­manna.

Í 4. sæti

Sólveig Anna er í 4. sæti á lista Sós­í­alista í Reykja­vík Norður fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar í haust.

„Ég hef verið í Sós­í­alista­flokknum frá upp­hafi. Og þegar félagar mínir í flokknum leit­uðu til mín og spurðu hvort ég væri til­búin til að gefa kost á mér þá sagði ég að sjálf­sögðu svo vera. Ég trúi því að það sé algert lyk­il­at­riði að til verði stjórn­mála­hreyf­ing sem er fær um að berj­ast fyrir því sem ég hef hér verið að fara yfir. Vinnu­aflið þarf að eiga full­trúa og við þurfum að hafa aðgang að völdum alls staðar í sam­fé­lag­inu. Það er á end­anum lyk­ill­inn að því að við getum kom­ist út úr þessu fárán­lega ástandi sem hér hefur verið látið við­gang­ast. Ég vona af öllu hjarta að Sós­í­alista­flokk­ur­inn nái góðri kosn­ingu og ég hef fulla trú á því. Þegar ég skoða þá lista sem birtir hafa verið þá tel ég að flokk­ur­inn hafi stigið það mik­il­væga skref að geta sýnt og sannað að hann eigi fullt erindi.“

Sólveig Anna ætlar að halda áfram sem for­maður Eflingar enda seg­ist hún ekki eiga von á því að fara á þing þar sem hún er í 4. sæti. „Ég mun þó auð­vitað taka þátt í kosn­inga­bar­átt­unni með því að halda áfram að tala máli verka­fólks og halda áfram að draga upp skýra og sanna mynd af aðstæðum vinn­andi fólks á Íslandi. Það er hlut­verk mitt í þess­ari kosn­inga­bar­áttu og ég vona að ég geti sinnt því af heið­ar­leika og með mark­vissum hætti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætluðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfsmenn“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætl­uðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfs­menn“

„Við vorum búnir að pæla í því í ein­hvern tíma hvernig hægt væri að koma með eitt­hvað nýtt inn á mat­vöru­mark­að­inn og við lágum yfir þessu á eld­hús­borð­inu. Pabbi hafði verið með snefil af ódýrum vörum í Aust­ur­veri; það var svona „afslátt­ar­þurr­vöru­mark­aður“ og við lögðum upp með þennan ein­fald­leika,“ segir Jón Ásgeir um það hvernig Bónus varð til en rætt...
Aníta Briem: „Krakkarnir, voru að fela sig í runnunum þegar hann kom og sótti mig“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Aníta Briem: „Krakk­arnir, voru að fela sig í runn­unum þegar hann kom og sótti mig“

„Ég var svo ótrú­lega heppin að ég fékk að spreyta mig svo­lítið í Þjóð­leik­hús­inu frá því að ég var níu ára gömul. Þá var ég fyrst í Emil í Katt­holti og lék þar Idu og var svo alveg í fjórum leik­sýn­ingum í Þjóð­leik­hús­inu, þannig að ég var ótrú­lega lánsöm að ég ein­hvern veg­inn fékk svo­lítið að kanna hvað leik­listin væri...
Tony var sakaður um mansal: „Íslendingar tóku mjög vel á móti mér, en ríkisstjórnin ekki“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Tony var sak­aður um man­sal: „Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki“

„Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki,“ segir Tony Omos í við­tali í nýju helg­ar­blaði Mannlífs. Tony Omos er nafn sem flestir Íslend­ingar kann­ast við. Tony er níger­íski hæl­is­leit­and­inn sem felldi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur úr stóli dóms­mála­ráð­herra árið 2014 vegna „Leka­máls­ins“ svo­kall­aða. Málið hafði gríð­ar­leg áhrif á Tony Omos og hans fjöl­skyldu enda var hann sak­laus sak­aður...
Ragnar Erling Hermannsson vill milljarð til að kaupa hús fyrir fíkla
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Ragnar Erling Her­manns­son vill millj­arð til að kaupa hús fyrir fíkla

Ragnar Erling Her­manns­son, Raggi Turner, talar í við­tali við Hörpu Mjöll Reyn­is­dóttur meðal ann­ars um hvers vegna hann fór út í neyslu, gisti­skýlið úti á Granda þar sem hann sefur á næt­urna, hann minn­ist á for­dómana í sam­fé­lag­inu, reynslu sinni af geð­deild og draum­inn um stórt hús jafn­vel fyrir utan Reykja­vík þar sem hægt væri að búa til sam­fé­lag. Og...
Margréti Esther misþyrmt með hestasvipum og naglaspýtum: „Skólasystir mín var stungin 18 sinnum“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Margréti Esther mis­þyrmt með hesta­svipum og nagla­spýtum: „Skóla­systir mín var stungin 18 sinnum“

Margrét Esther Erlu­dóttir fata­hönn­uður átti erf­iða æsku. Óregla var á heim­ilnu og frá unga aldri flakk­aði hún á milli fóst­ur­heim­ila. Hún segir að á einu þeirra, sveitabæ norður í landi, hafi tveir nauðgað sér auk þess sem hún hafi meðal ann­ars verið barin. „Þarna var ég algjör­lega eyðilögð. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Eins og stendur í...
Hanna Rún lamaðist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Hanna Rún lam­að­ist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina, tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu. „Það breytti öllu að verða móðir.“ Og parið dans­aði saman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu