„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Helga Möller var svikin en fann lausnina: „Hann byrjaði með annarri konu“

Helga Möller var svikin en fann lausnina: „Hann byrjaði með annarri konu“
Helga Möller sá ljósið eftir að hafa rifjað upp gam­alt ein­elt­is­mál. Mynd: Act Alone

„Ekki alls fyrir löngu skildi ég við mann­inn sem ég hef verið með í þrjú ár en hann byrj­aði með ann­ari konu, án þess að klára sam­bandið við mig. Ég veit vel að þetta ger­ist oft en það braut mig í mörg þús­und mola og ég upp­lifði mig van­mátt­uga og að mér hafi verið hafnað. Það er vond til­finn­ing,“ skrifar Helga Möller, söng­kona og flug­freyja, á Facebook-síðu sína. Helga lýsir af ein­lægni því áfalli sem hún varð fyrir eftir svik manns­ins. Hún hætti á sam­fé­lags­miðlum.

„Ég grét, vor­kenndi mér mikið og dró mig í hlé,“ skrifar hún.

En  svo varð breyt­ing og hún náði áttum. Hún átti leið í verslun í Hafn­ar­firði. Afgreiðslu­konan þekkti hana.

„Það var frá­bær kona sem tók á móti mér og afgreiddi mig og sagð­ist vilja bera mér kveðju frá bróður sínum sem var með mér í 7 ára bekk í Lauga­lækj­ar­skóla og bar mér svo vel sög­una. Hún sagði að hann hefði verið lagður í ein­elti af strák­unum í bekknum og sú eina sem stóð upp fyrir honum og varði hann var ég, 7 ára kríli,“ skrifar Helga.

Þessi upp­rifjun varð henni sem vakn­ing. Þarna var komin lausnin á þeim erf­ið­leikum sem hún glímdi við eftir svikin.

„Ég leit­aði mér aðstoðar hjá ynd­is­legri konu sem hjálp­aði mér mikið en eitt kvöldið þegar ég var lögst á kodd­ann kom sagan um litla vin minn upp í koll­inn á mér og ég hugs­aði „Auðvitað” af hverju var ég ekki búin að átta mig á þessu?” Af hverju stend ég ekki með mér eins og þegar ég var lítil”.

Þessi upp­götvun breytti bata­ferli hennar.

„Í dag stend ég sterk gegn þess­ari reynslu og þakka Guði fyrir að ég er enn sterk gegn svona órétt­læti og laus úr þessu sam­bandi“.

Færsla Helgu í heild sinni:

Ég ákvað að draga mig frá sam­fé­lags­miðlum til að ná mér af áfalli sem ég varð fyrir ekki alls fyrir löngu og langar til að deila með ykkur ásamt sögu sem opn­aði augu mín hvernig ég gæti hjálpað mér í gegnum þetta.

Ég fór í verslun í Hafn­ar­firði sem selur und­ir­föt og nátt­föt og keypti mér nátt­föt. Það var frá­bær kona sem tók á móti mér og afgreiddi mig og sagð­ist vilja bera mér kveðju frá bróður sínum sem var með mér í 7 ára bekk í Lauga­lækj­ar­skóla og bar mér svo vel sög­una.

Hún sagði að hann hefði verið lagður í ein­elti af strák­unum í bekknum og sú eina sem stóð upp fyrir honum og varði hann var ég, 7 ára kríli. Ég man vel eftir honum og sé mig alveg í anda með hendur á mjöðmum að segja þeim að svona komi maður ekki fram við fólk.

Ég stóð með honum og ég stóð með mér.

Síðan hefst lífið og maður verður fyrir áföllum á leið sinni til full­orð­ins­ár­anna og sjálfið breyt­ist, sem það gerði hjá mér án þess að ég ætli nánar út í það.

En rétt­læt­is­kenndin hefur aldrei breytst.

Ekki alls fyrir löngu skildi ég við mann­inn sem ég hef verið með í þrjú ár en hann byrj­aði með ann­ari konu, án þess að klára sam­bandið við mig.

Ég veit vel að þetta ger­ist oft en það braut mig í mörg þús­und mola og ég upp­lifði mig van­mátt­uga og að mér hafi verið hafnað.

Það er vond til­finn­ing.

Ég grét, vor­kenndi mér mikið og dró mig í hlé. Ég leit­aði mér aðstoðar hjá ynd­is­legri konu sem hjálp­aði mér mikið en eitt kvöldið þegar ég var lögst á kodd­ann kom sagan um litla vin minn upp í koll­inn á mér og ég hugs­aði “Auðvitað” “af hverju var ég ekki búin að átta mig á þessu?” Af hverju stend ég ekki með mér eins og þegar ég var lítil”

Ég var 7 ára og stóð upp í hár­inu á öllum strák­unum í bekknum og stóð með vini mínum en ég get ekki staðið með mér núna, full­orðin, gegn einum óheiða­legum manni sem fór illa með mig. Þessi upp­götvun breytti öllu bata­ferli mínum gegn þessum svikum og í dag stend ég sterk gegn þess­ari reynslu og þakka Guði fyrir að ég er enn sterk gegn svona órétt­læti og laus úr þessu sam­bandi.

Ég vona að þessi orð mín geti styrkt ein­hvern sem hefur lent í svip­uðu og litli vinur minn og ég og hjálpi þeim að skilja að við erum öll nóg og eigum fullan rétt á að komið sé fram við okkur af virð­ingu.

Áfram litla ég! Áfram litli 7 ára vinur minn! Áfram Helga

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins