„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Starfsmaður leikskóla sakaður um ofbeldi: „Mestu máli skiptir að börnin séu örugg“

Starfsmaður leikskóla sakaður um ofbeldi: „Mestu máli skiptir að börnin séu örugg“

Starfs­maður á leik­skól­anum Sælukoti í Reykja­vík hefur verið sak­aður um ofbeldi í garð barns við skól­ann. María Ösp Ómars­dóttir, leik­skóla­stjóri Sælukots, segir að umrætt atvik hafi átt sér stað áður en hún tók við skóla­stjóra­stöð­unni um síð­ustu mán­aða­mót.

Leik­skól­inn Sælukot er rek­inn af Ananda Marga sam­tök­unum.

Í tölvu­pósti Maríu til for­eldra barna í leik­skól­anum kemur fram að við­kom­andi starfs­maður hafi verið sendur í leyfi; á meðan rann­sókn stendur yfir; þá séu skóla­stjórn­endur í sam­skiptum við Barna­vernd og Reykja­vík­ur­borg vegna máls­ins:

„Það sem skiptir mestu máli er að börnin ykkar séu örugg og ham­ingju­söm hér í Sælukoti og við munum gera allt sem við getum til að leysa málið eins hratt og hægt er,“ segir í áður­nefndum pósti.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs er málið ekki á borði lög­reglu, enn sem komið er, en sam­kvæmt sömu heim­ildum er það ein­ungis tíma­spurs­mál hvenær málið ratar á það borð.

Eðlilega er öllum sem að Sælukoti standa og koma brugðið vegna frétt­ar­innar, en áréttað skal fram að umræddur starfs­maður er til rann­sóknar og með stöðu grun­aðs manns; hann hefur ekki verið sak­felldur.

Leik­skól­inn Sælukot hefur verið starf­ræktur frá árinu 1978 og dag­skrá hans byggir á nýhúmanískri hug­mynda­fræði, en leik­skól­inn er fræðslu­verk­efni Ananda Marga sam­tak­anna (WWD), sem voru stofnuð 1955 af P.R.Sarkar – 1921-1990 – heim­spek­ingi og kenn­ara.

Starf­semin er marg­þætt; þetta er alþjóð­leg stofnun ekki er rekin í hagn­að­ar­skyni.

Umfangs­mikið starf Ananda Marga end­ur­spegl­ast í mörgum ólíkum greinum sem til­einkuð eru þróun mann­kyns í gegnum menntun, hjálp­ar­starf, vel­ferð, listir, vist­fræði, vits­muna­lega end­ur­reisn, frelsi kvenna og húmanískt hag­kerfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins