„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sonur og móðir Evu dóu bæði fyrir tilstilli annarra: „Það er ofboðslega sárt að missa fólk“

Sonur og móðir Evu dóu bæði fyrir tilstilli annarra: „Það er ofboðslega sárt að missa fólk“
Eva Hauks­dóttir. Mynd: Róbert Reynisson

Eva Hauks­dóttir. Íslensku- og bók­mennta­fræð­ingur. Lögmaður. Aðgerðasinni sem kall­aði sig einu sinni norn. Móðir tveggja sona. Til ann­ars þeirra, Hauks, hefur ekki spurst í þrjú ár þar sem talið er að hann hafi fallið í Sýrlandi. Móðir hennar lést í hitti­fyrra eftir að hafa lagst inn í hvíld­ar­inn­lögn á stofnun en var sett á lífsloka­með­ferð án vit­neskju aðstand­enda. Málið var sent til land­læknis og er nú á borði lög­reglu.

Eva Hauks­dóttir var skírð Jóhanna Helga. Hún seg­ist hafa alist upp á nokkrum stöðum á land­inu en að sér finn­ist hún ekki vera tengd neinum stað nema Reykja­vík; Njarðvík. Akureyri. Hjalt­eyri. Hún gekk í níu grunn­skóla. Segist hafa verið nörd; orti ljóð, hafði allt annan tón­list­arsmekk en flestir jafn­aldrar hennar, hafði áhuga á sam­fé­lags­málum og trú­málum en hún fermd­ist ekki. Og hún fékk áhuga á göldrum. Svo varð hún ást­fangin, trú­laus stúlkan, á trú­ar­sam­komu hjá Bahá’í-sam­fé­lag­inu þar sem hún var virk um nokk­urra ára skeið. Hún varð ófrísk 18 ára, gifti sig og eign­að­ist eldri son sinn, Hauk, árið 1986. Sá yngri, Darri, fædd­ist tveimur árum síðar. Hjóna­bandið ent­ist í fjögur ár. Það var þessi fyrrum eig­in­maður hennar sem fór að kalla Jóhönnu Helgu Evu eftir að hún bál­skotin í honum gaf honum ávaxta­körfu með eldrauðu epli í áður en þau byrj­uðu að vera saman. Hún lét síðar breyta nafn­inu í Þjóðskrá. Eva. Eva eins og sú Eva sem rétti Adam epli.

„Ég ætl­aði  að verða lög­maður þegar ég var ung­lingur og sá þá fyrir mér að þetta yrði eins og í sjón­varps­þátt­unum um lög­mann­inn Matlock; ég sá fyrir mér að ég væri alltaf að gera eitt­hvað gott – bjarga ein­hverjum sem væri ásak­aður um morð en reynd­ist vera sak­laus. Það var ímyndin. Ég fór hins vegar ekki í lög­fræði fyrr en ég var orðin harð­full­orðin, 47 ára.“

Eva Hauks­dóttir kláraði BA-nám í íslensku, tók MA-próf í almennum bók­menntum frá háskól­anum í Leeds og hefur meðal ann­ars starfað við kennslu í grunn­skóla, blaða­mennsku og þýð­ingar.

Hún hefur skrifað bók. Bókin hennar „Ekki lita út fyrir – Sjálfs­hjálp­ar­bók handa sjálfri mér og öðrum ýlandi dræsum“ lýsir ein­semd manns­ins í heimi hræsni og blygð­un­ar­kenndar. Í bók­inni er fjöldi ljós­mynda svo sem nekt­ar­myndir af Evu.

Svo eru það jú galdr­a­rnir. Eva rak um ára­bil verslun. Norna­verslun. Nornabúð.

„Ég var áhuga­söm um manns­hug­ann og allt sem ég taldi vera yfir­nátt­úru­legt alveg frá því ég var krakki. Svo komst ég að þeirri nið­ur­stöðu þegar ég var mjög ung að það væri ekki til nein yfir­nátt­úra en ég taldi samt og tel enn að manns­hug­ur­inn sé gríð­ar­lega öfl­ugur og það sé hægt að hafa áhrif á veru­leik­ann með hugsun sinni að ákveðnu marki. Og það er það sem ég kalla galdur. Mér fannst þetta vera skemmti­legt tíma­bil þegar ég var með Norna­búð­ina. Ég var að selja alls konar vernd­ar­gripi og heilla­gripi og svo var ég með galdur í neyt­enda­pakkn­ingum. Þetta tíma­bil er búið. Ég hef í dag engan áhuga á því að vera að reyna að galdra fyrir fólk en ég fæ af og til ein­hverjar óskir um það. Ég er svo­lítið þannig að ég helli mér út í eitt­hvað og hef áhuga á því í nokkur ár og svo fer ég að gera eitt­hvað annað. Núna er ég bara í lög­fræð­inni.“

Mér fannst þetta vera skemmti­legt tíma­bil þegar ég var með Norna­búð­ina. Ég var að selja alls konar vernd­ar­gripi og heilla­gripi og svo var ég með galdur í neyt­enda­pakkn­ingum.

Aktívisti

Eva, áður Jóhanna Helga, er með sterkar skoð­anir á hlut­unum og sumir tengja hana við það að rífa kjaft opin­ber­lega svo sem á prenti. Hún er það sem kallað er aktí­vísti. Hún var virk í Saving Iceland og lét heyra í sér þar og svo var það hin svo­kall­aða bús­á­halda­bylt­ing. Á Wikipedia segir meðal ann­ars þegar Eva er gúggluð:

Aðgerðasinninn Eva

Eva Hauks­dóttir var mjög virk í mót­mælum bús­á­halda­bylt­ing­ar­innar frá miðjum nóv­em­ber 2008 og út jan­úar 2009 og var þar í hópi aðgerða­sinna (e. activist).

Aðgerðasinnar ganga harðar fram

Krafa Evu og ann­arra aðgerða­sinna/anar­kista var að reka rík­is­stjórn­ina í burtu og koma á beinu lýð­ræði í fram­hald­inu. Einnig gengu aðgerða­sinnar harðar fram í mót­mælum bús­á­halda­bylt­ing­ar­innar en aðrir mót­mæl­endur. T.d. með því að kveikja í Óslóar jóla­trénu sem stað­sett var á Aust­ur­velli. Þá ber að nefna áhlaupið á lög­reglu­stöð­ina við Hverf­is­götu 22. nóv­em­ber 2008.

Aðkoma Evu í áhlaupinu á lögreglustöðina 22. nóvember 2008

Sonur Evu, Haukur Hilm­ars­son, var hand­tek­inn 21. nóv­em­ber 2008 fyrir að draga Bón­us­fána að húni efst á þaki Alþingis í miðjum mót­mælum. Síðar kom í ljós að ástæða hand­tök­unnar var ekki vegna fána­at­viks­ins heldur vegna fang­els­is­dóms sem Haukur hafði hlotið en átti eftir að afplána. Hann hafði þó aldrei fengið boðun í afplánun og telja vinir hans og aðstand­endur að raun­veru­leg ástæða hand­tök­unnar hafi verið sú að lög­reglan hefði veður af mót­mæla­að­gerð sem var fyr­ir­huguð helg­ina eftir. Í kjöl­far hand­tök­unnar réðst fjöldi fólks í áhlaup á lög­reglu­stöð­ina við Hlemm.

Herská ræða Evu fyrir utan lögreglustöðina

Eva Hauks­dóttir hélt ræðu fyrir utan lög­reglu­stöð­ina hvar hún fór fram á frelsi sonar síns. Eftir að engin við­brögð feng­ust frá lög­reglu hófu mómæl­endur áhlaup inn í húsið í gegnum læstar aðal­dyr höf­uð­stöðvar lög­regl­unnar.

Eva og aðgerðasinnar verða fyrir piparúða lögreglu

Á meðan á mót­mæl­unum stóð beitti lög­reglan piparúða og þurftu nokkrir að leita aðhlynn­ingar á slysa­deild – meðal ann­ars Eva Hauks­dóttir sem þótti mót­mæla frið­sam­lega.

Ónefndur aðili greiðir sekt Hauks

Þegar allt var á suðu­punkti í mót­mæl­unum steig ónefndur aðili fram og greiddi sekt­ina hans Hauks sem þar með var sleppt úr haldi.

Þetta að framan er altso á Wikipedia.

Blaða­maður Mannlífs spyr Evu hvað standi upp úr hvað hana varðar þegar kemur að bús­á­halda­bylt­ing­unni.

„Það er sterk minn­ing þegar Haukur flagg­aði Bón­us­fán­anum og þessar aðgerðir sem ég tók sjálf þátt í; þessi stóru mót­mæli sem urðu til þess að rík­is­stjórnin fór frá. Það eru sterkar minn­ingar. En hvað stendur upp úr? Þetta var mjög skemmti­legur tími á margan hátt. Fólk fann svo­lítið til sín við að geta sett rík­is­stjórn stól­inn fyrir dyrnar. Og það er gaman. En þegar maður horfir til baka þá spyr maður sig hverju þetta skil­aði og ég er dálítið svekkt. Við fengum ekki einu sinni nýja stjórn­ar­skrá. Það breytt­ist í raun­inni ekki mikið. Þetta voru upp­þot. Ekki bylt­ing. Ég ætla samt ekki að gera lítið úr þessu því þetta skipti máli og vakti fólk auð­vitað til umhugs­unar um bylt­ingu, klíku­sam­fé­lagið og spill­ingu. En það hafa ekki orðið neinar kerf­is­breyt­ingar. Það hefur ekki neitt breyst rosa­lega mikið við þetta.“

Við fengum ekki einu sinni nýja stjórn­ar­skrá. Það breytt­ist í raun­inni ekki mikið. Þetta voru upp­þot. Ekki bylt­ing.

Þarf að opna landamærin

Málefni flótta­fólks og hæl­is­leit­enda hafa verið Evu hug­leikin. Hún fór til Palest­ínu árið 2008 til að styðja Palest­ínu­menn í bar­áttu þeirra með því að veita Palest­ínu­fólki vernd með nær­veru sinni eins og hún segir. „Ég var með alþjóð­legri sam­stöðu­hreyf­ingu. Við vorum til dæmis að fylgja fólki sem var að sækja ólífu­upp­skeru. Land­töku­fólk ræðst oft á Palest­ínu­menn með grjót­kasti og her­menn eiga það til að loka vegum án heim­ildar bara til að hindra fólk í að kom­ast leiðar sinnar. Bara það að ein­hver alþjóð­aliði sé á staðnum er vörn því þeir sem brjóta gegn mann­rétt­indum ann­arra vilja síður að það rati í vest­ræna fjöl­miðla. Þetta var mjög áhuga­vert, bæði skemmti­legt að kynn­ast ólíkri menn­ingu en líka átak­an­legt að verða vitni að kúgun.

Ég er aðgerðasinni í þeirri merk­ingu að ég er hlynnt beinum, frið­sam­legum aðgerðum en ég hef ekki verið mjög virk sjálf síð­ustu árin. Það hentar mér mjög vel að skrifa og ég fékk það hlut­verk bæði í Saving Iceland og bús­á­halda­bylt­ing­unni. Eins varð­andi flótta­fólk en þar hefur fram­lag mitt að miklu leyti falist í að taka þátt í sam­fé­lags­um­ræðu og skrifa pistla.

Haukur gekkst fyrir stofnun No borders á Íslandi og ég er því sam­mála að það þurfi að opna landa­mæri. Mörgum finnst það vera hræði­leg hug­mynd að allir geti farið allt sem þeir vilja og auð­vitað hafa slíkar breyt­ingar vanda­mál í för með sér. Það þýðir samt ekki að við eigum ekki að opna landa­mæli heldur skiptir máli hvernig staðið væri að því. Ég held ekki að það væri raun­hæft að Ísland eitt landa opni landa­mæri sín fyrir hverjum sem er fyrir klukkan 10 í fyrra­málið. En ég held að það eina raun­hæfa sem Evrópa og Vest­ur­lönd geti gert í sam­bandi við flótta­manna­straum­inn frá Afríku og Mið-Aust­ur­löndum sé að opna landa­mærin og hætta að setja fólki þær hömlur sem gilda í dag. Það er til dæmis vesen að fá atvinnu­leyfi og þegar fólk má ekki vinna er það áfram illa statt, bara á annan hátt en fyrr. Ég held að vest­ræn ríki verði bara að sam­ein­ast um það að opna landa­mærin smám saman en ef fólk ætlar að vera þátt­tak­andi í vest­rænu sam­fé­lagi þá finnst mér í lagi að það þurfi til dæmis að lýsa því yfir að það virði stjórn­ar­skrá lands­ins og mann­rétt­indi. Ég held til dæmis að það yrði rosa­legt vanda­mál ef við værum komin með tvö­falt laga­kerfi. Ég vil gjarnan taka á móti fullt af múslímum en ég vil samt ekki að þetta fari út í það sem hefur orðið í Bret­landi þar sem til eru sér­stakir fjöl­skyldu­dóm­stólar sem fylgja shar­ía­lögum. Ég er ekk­ert frá því að það þyrfti að grípa til ein­hverra ráða til þess að koma í veg fyrir að það yrði til eitt­hvað annað ríki í rík­inu.“

En ég held að það eina raun­hæfa sem Evrópa og Vest­ur­lönd geti gert í sam­bandi við flótta­manna­straum­inn frá Afríku og Mið-Aust­ur­löndum sé að opna landa­mærin og hætta að setja fólki þær hömlur sem gilda í dag.

Hvað með inn­við­ina ef landa­mærin yrðu opnuð?

„Við eigum að geta haldið uppi sæmi­legu vel­ferð­ar­sam­fé­lagi fyrir alla. Við getum til dæmis hækkað veiði­gjöld. Það eru til nógir sjóðir til að sækja í til að stofna fleiri sjúkra­hús og skóla en hluti vand­ans er sá að flótta­fólk fær ekki strax aðgang að atvinnu­mark­aði.“

Týndur

Haukur. Haukur kom í heim­inn á rign­ing­ar­degi í júlí.

„Haukur var ótrú­lega hlýðið barn. Hann var ofboðs­lega rólegur og hugs­andi og maður hafði ein­hvern veg­inn engar áhyggjur af því að hann myndi ein­hvern tím­ann fara sér að voða. Ekki fyrr en hann skreið á ung­lings­árin en þá hafði hann gaman af alls konar áhættu­hegðun; hann hafði meðal ann­ars gaman af flúða­sigl­ingum og að stökkva fram af brúm og klettum í ár. Hann lang­aði á tíma­bili til að verða áhættu­leik­ari. Hann fann hins vegar áhættu- og átaka­þörf sinni  arveg í póli­tík.“

Eva segir að Haukur hafi verið bóka­ormur sem barn þó hann hafi verið sein­læs og átt í sér­tækum lestr­ar­erf­ið­leikum sem hann tókst á við og var hann far­inn að lesa mikið sem ung­lingur. „Sem lít­ill krakki var hann sjaldan í fót­bolta með strák­unum þar sem hann vildi frekar vera heima að lesa og ræða heims­málin. Hann hafði sem ung­lingur kannski svo­lítið öðru­vísi áhuga­mál en vinir hans. Hann var félags­lyndur og var alls staðar vin­sæll. Hann var lítil þegar hann var far­inn að hafa áhuga á sam­fé­lags­málum og trú­ar­brögðum. Hann fermd­ist ekki og var það upp­lýst ákvörðun hjá honum. Hann ræddi held ég við þrjá presta og spurði þá út í hluti eins og til dæmis hvað ger­ist eftir dauð­ann og ýmis sið­ferði­leg vanda­mál og honum lík­uðu ekki svörin því hann var oft spurður hvað hann héldi sjálfur um þetta þegar hann var að spyrja um boðun kirkj­unnar. Hann sá að þetta var ekki fyrir sig. Hann var mjög sjálf­stæður og vel hugs­andi myndi ég segja frá unga aldri.“

Eva segir að Haukur hafi verið mjög utan við sig.

„Það getur vel verið að hann hafi verið með ein­hvern athygl­is­brest en það var aldrei greint. Hann var sveim­hugi og gleymdi og týndi hlutum. Maður gat stundum verið rosa­lega þreyttur á því. En hann var alltaf ofboðs­lega skap­góður og það var auð­velt að eiga við hann sem barn.“

Eva segir að Haukur hafi haft áhuga á anar­k­isma og bylt­ingum frá unga aldri. Og hugur hans leit­aði út í heim. Hann hélt til Grikk­lands árið 2015 þar sem hann dvaldi að mestu í um tvö ár og segir Eva að hann hafi búið í komm­únum eða hús­töku­húsum. Svo frétti hún að hann væri kom­inn til Sýrlands.

„Hann fór án þess að láta okkur vita. Hann fór á bak við okkur. Við, ég og pabbi hans, vissum ekki betur en að hann væri í Grikk­landi. Svo leið langur tími án þess að hann hafði sam­band og við vorum orðin hrædd um hann. Við vorum farin að láta leita að honum í Aþenu og höfðum sam­band við fullt af vinum hans og þá fréttum við að hann hefði farið til Sýrlands. Ég varð ofboðs­lega reið. Ég hef aldrei verið eins reið við hann. Og ég var nátt­úr­lega hrædd því við vissum ekki hvar hann var eða hvað hann væri að gera. Okkur var sagt að hann hefði gengið til liðs við her­sveitir Kúrda en það gat þýtt margt; var hann í rústa­björgun, vopna­burði eða að hjálpa flótta­mönnum? Við vissum það ekki fyrr en löngu síðar. Þegar við loks­ins náðum tölvu­póst­sam­bandi við hann þá þorðum við lítið að pumpa hann vegna þess að hann hafði áhyggjur af tölvu­póst­njósnum og sím­hler­unum. Við vissum að hann myndi ekki svara okkur ef við töl­uðum um þetta beinum orðum.“

Við vorum farin að láta leita að honum í Aþenu og höfðum sam­band við fullt af vinum hans og þá fréttum við að hann hefði farið til Sýrlands.

Eva segir að hún og faðir Hauks hafi í raun lítið vitað um dvöl hans í Sýrlandi fyrr en þær hræði­legu fréttir bár­ust þeim að hans væri saknað eftir loft­árás Tyrkja á svæði þar sem hann hefði barist með her­sveitum Kúrda.

Þögn.

„Þetta var til­finn­inga­legur rús­sí­bani. Það fylgir því nátt­úr­lega ang­ist þegar maður er ofboðs­lega hræddur um það sem manni er kær­ast í líf­inu hvort sem það eru börnin manns eða aðrir nákomnir. Það er mis­jafnt hvernig fólk tekst á við svona áfall. Ég er mjög heppin að eiga góða að; fólk sem hefur virki­lega hjálpað mér og ég tel mig hafa jafnað mig á þessu eins og maður á annað borð jafnar sig á slíku. Það koma þó tíma­bil ennþá þegar mér finnst ég verða gagn­tekin af Hauki og get ein­hvern veg­inn ekki hugsað um neitt annað í nokkra daga. Svo koma önnur tíma­bil þar sem mér finnt óþægi­legt að rekast á mynd af honum eða sjá eitt­hvað sem hann skrif­aði. Það verður jafn­vel þannig að ég forð­ast það kannski í nokkra daga. Þetta hefur verið að ger­ast í kringum afmælið hans og í kringum mán­aða­mótin febr­úar og mars en þá fengum við þessar fréttir. Það eru svo margar vondar til­finn­ingar sem tengj­ast þessum tíma. Ég er samt ekk­ert ónýt mann­eskja eftir þetta. Ég held að aðrir aðstand­endur hans hafi flestir tekið sömu afstöðu og ég að við ætlum að reyna að minn­ast hans með gleði.“

Ég held að aðrir aðstand­endur hans hafi flestir tekið sömu afstöðu og ég að við ætlum að reyna að minn­ast hans með gleði

Leitar að Hauki í draumum

Lík Hauks fannst aldrei.

„Mér fannst það vera ofboðs­lega erfitt fyrst að það væri ekk­ert lík. Að fá ekki neina stað­fest­ingu. Ég hef sætt mig við það í þeim skiln­ingi að ég er ekki að velta mér upp úr þessu í dag. En ef ég myndi til dæmis frétta að fjölda­gröf hefði fund­ist á þessu svæði þá veit ég að ég myndi ekk­ert sofa næstu nótt. Ég veit að það yrði mjög aðkallandi hug­mynd að reyna að fara að garfa í þessu aftur; finna lík­ams­leifar. En þetta er bara veru­leiki sem ég get ekki stjórnað og ég hef tekið þá afstöðu að ég ætla ekki að láta þetta eyði­leggja líf mitt.“

Haldin var minn­ing­ar­at­höfn sum­arið 2019 og kom meðal ann­ars fjöldi vina frá útlöndum og þar á meðal fólk sem hafði kynnst Hauki í gegnum aktí­visma bæði hér og erlendis.

„Þetta var heil helgi og við vorum með alls konar við­burði. Við héldum mál­þing í minn­ingu Hauks en hann hefði haft miklu meira gaman af því sjálfur að hafa mál­þing heldur en hefð­bundna útför. Þannig að við létum þetta snú­ast meira um hug­sjónir hans og hug­myndir heldur en ein­hvern veg­inn um hann sem per­sónu. Svo vorum við með minn­ing­ar­dag­ská í Þjóð­leik­hús­skjall­ar­anum þar sem vinir hans komu fram og voru með tón­list­ar­at­riði og ljóða­lestur og sam­eig­in­legt borð­hald.“

Haukur klifraði fyrir rúmum ára­tug upp á þak Stjórn­ar­ráðs­ins og flagg­aði þar fána Jörundar hunda­daga­kon­ungs skreyttum þremur salt­fiskum. „Hann gerði það í minn­ingu eina bylt­ing­ar­manns­ins sem uppi hafði verið á Íslandi. Bróðir hans, Darri, fór svo upp á þak Stjórn­arr­ráðs­ins sum­arið 2018 og framdi gjörn­ing í minn­ingu bróður síns. Við vorum þá mjög reið út í bæði utan­rík­is­ráðu­neytið og for­sæt­is­ráðu­neytið þar sem okkur fannst ekki vera nógu mikið gert til að reyna að fá ein­hver svör um afdrif Hauks frá Tyrk­landi en við höfðum enga stað­fest­ingu á því að hann væri dáinn. Við töldum að þessi lin­kind stæði í sam­bandi við við­skipta­hags­muni en utan­rík­is­ráðu­neytið stóð þá í samn­inga­við­ræðum við Tyrki um skipa­kaup. Bróðir hans flagg­aði tyrk­neska fán­anum á þaki Stjórn­ar­ráðs­ins til að minna á þá afstöðu. Það var skemmti­leg aðgerð. Falleg aðgerð.“

Eva seg­ist halda að það hefði verið þung­bær­ara ef hún hefði misst Hauk á þann hátt að hann hefði snúið við henni baki og hætt að tala við hana.

„Ég á ein­göngu góðar minn­ingar um hann og það er mikil huggun. Ég hef lengi haft þá afstöðu að dauð­inn sé hluti af líf­inu. Það er sárt að missa fólk. Ofboðs­lega sárt. Maður gengur í gegnum djúpa sorg. En maður má ekki láta það eyði­leggja líf sitt af því að þetta eru hlutir sem við ráðum ekki. Við getum ekki stjórnað því hvort fólk lifir eða deyr. Og við getum ekki stjórnað börn­unum okkar þegar þau eru orðin full­orðin. Ég hefði ekki getað bannað Hauki að fara til Sýrlands; ég hefði reynt það ef ég hefði vitað að hann væri að fara – þess vegna sagði hann mér ekki frá því. Ég hefði reynt að stoppa hann með mik­illi frekju. En ég hefði ekki getað komið í veg fyrir það enda­laust. Og maður á heldur ekki að gera það. Maður getur ekki annað en reynt að taka þessu með æðru­leysi og svo gengur það mis­vel. Maður er ekk­ert æðru­laus dag­inn sem maður fær hræði­legar fréttir. Og maður er ekki mjög æðru­laus dag­inn sem maður fær „nei“ frá stjórn­völdum hvort sem það er utan­rík­is­ráðu­neytið eða lög­reglan. Þá verður maður svo­lítið brjál­aður í bili og ég gekk alveg í gegnum svo­lítið brjálað tíma­bil þar sem ég var brjáluð út í Erdogan, for­seta Tyrk­lands, vegna þess­arar inn­rásar. Ég leyfði mér að taka það út með því að skrifa eitt­hvað ljótt um hann. Ég tókst á við það þannig og ég er viss um að mörgum hafi fund­ist það vera mjög geð­veikis­legt. Og það er allt í lagi. Það er allt í lagi að maður verði svo­lítið geð­veikur þegar svona hlutir ger­ast. Það er hins vegar ekki í lagi að fest­ast í því. Það er ekki í lagi að láta það eyði­leggja líf sitt en það er allt í lagi að maður taki út svo­lítið brjál­æði og mikla sorg og sé svo­lítið leið­in­legur í dálít­inn tíma. Fólk verður bara að þola það.“

Eva er spurð hvort hana dreymi stundum Hauk.

„Ég man sjaldan drauma en þegar mig dreymir hann þá dreymir mig sjaldan atburði sem hann er þátt­tak­andi í. Draum­arnir snú­ast meðal ann­ars um að ég er að fara til Sýrlands að leita að honum.“

Það er ekki í lagi að láta það eyði­leggja líf sitt en það er allt í lagi að maður taki út svo­lítið brjál­æði og mikla sorg og sé svo­lítið leið­in­legur í dálít­inn tíma. Fólk verður bara að þola það.

Kært til lögreglu

Annað voveif­legt and­lát varð í fjöl­skyldu Evu þegar móðir hennar, Dana Kristín Jóhanns­dóttir, lést í októ­ber árið 2019.

„Hún var búin að vera sjúk­lingur í mörg ár og var búin að vera inn og út af spít­ölum. Hún fór í hvíld­ar­inn­lögn á Heil­brigðs­stofnun Suð­ur­nesja 1. ágúst árið 2019 og við komumst að því síðar að hún var sett á lífsloka­með­ferð án þess að neinar for­sendur væru fyrir því; hún var ekki með lífsógn­andi sjúk­dóma,“ segir Eva en á meðal þess sem hrjáði móður hennar var meðal ann­ars önd­un­ar­færa­sjúk­dómur og rétt­stöðu­blóð­þrýs­ings­fall sem olli því að það leið stundum yfir hana og var hún þess vegna mikið rúm­liggj­andi.

„Hún var á lífsloka­með­ferð í 11 vikur sem er alveg ótrú­legt; þetta er með­ferð sem stendur yfir­leitt yfir í örfáa daga eða nokkrar klukku­stundir en þá er ekk­ert gert nema að halda verkjum í skefjum.

Mamma gat alveg borðað og drukkið þegar hún lagð­ist inn. Svo var farið farið að gefa henni svo mikið af lyfjum að hún var mjög sljó heilu og hálfu dag­ana. Við þær aðstæður hættir fólk að bera sig eftir mat og vatni og hún var orðin grind­horuð þegar hún dó. Ég held að nær­ing­ar­skortur og ofþornun hafi átt stóran þátt í and­láti hennar.

Blessuð sé minn­ing hennar.
Mamma gat alveg borðað og drukkið þegar hún lagð­ist inn. Svo var farið farið að gefa henni svo mikið af lyfjum að hún var mjög sljó heilu og hálfu dag­ana.

Fjöl­skyldufundur var hald­inn 15. ágúst þar sem sagt var að hún væri deyj­andi. Ekki fékkst þó skýr­ing á ástæð­unni. Mamma fór svo að hress­ast en systir mín hafði fengið því fram­gengt að dregið yrði úr lyfja­gjöf­inni. Hún fór að fara meira fram í hjóla­stól og tjá sig meira. Þá var talað um að hún yrði sett á hjúkr­un­ar­heim­ili. Síðan var farið að gefa henni meiri lyf og við fengum ein­hvern veg­inn aldrei nein svör. Það end­aði með því að henni fór hratt aftur síð­ustu vik­urnar og við veltum því fyrir okkur hvort starfs­menn væru að gera ein­hverja vit­leysu; þetta gæti ekki verið eðli­legt. Við veltum því fyrir okkur hvort við ættum að taka hana með okkur en hvað ef hún dæi á leið­inni heim? Við gátum ekki gert það heldur ákváðum við að treysta læknum til þess að taka ákvörðun um hvað væri best að gera.“

Þegar við fórum að lesa sjúkra­skýrsl­una eftir and­látið sáum við að ýmis­legt hafði ekki verið í lagi. Það kom meðal ann­ars fram að mamma hafði reynt að losa sig við lyf en það var ekki virt. Hún spýtti út úr sér töflum, tal­aði um að hún vildi ekki lyfin, reif úr sér nálar og reif af sér lyfja­plástra. Þegar hún spýtti töflum út úr sér þá voru henni gefin lyf í æð. Og þegar hún reif af sér nálar þá voru settir á hana lyfja­plástrar. Og þegar hún reif þá af sér þá voru þeir settir þar sem hún náði ekki til þeirra.

Við lestur á sjúkra­skýrsl­unni kemur einnig fram að við höfum fengið rangar upp­lýs­ingar. Við vissum til dæmis ekk­ert almenni­lega um sjúk­dóms­grein­ingar og hvað var raun­veru­lega í gangi fyrr en við fórum að lesa hana. Mamma var ekki með neinn ban­vænan sjúk­dóm.“

Eva segir að systur sínar hafi farið fram á að lík móður þeirra yrði krufið en ekki varð úr því.

„Það var margt sem trufl­aði okkur. Okkur fannst margt vera ein­kenni­legt og svo mörgum spurn­ingum ósvarað svo við ákváðum að klaga þetta til land­læknis; kvarta undan þess­ari með­ferð og biðja um fag­legt álit á því hvort þetta væri í lagi. Þetta tók langan tíma en á end­anum kom þetta álit og það var mjög vandað og vel unnið og ég mæli með því ef fólk telur sig eða aðstand­endur sína hafa fengið ófull­nægj­andi þjón­ustu í heil­brigð­is­kerf­inu að til­kynna það til land­læknis.“

Álit land­læknis kom í febr­úar á þessu ári. „Það er umfangs­mikil grein­ar­gerð og fundið að mörgu en mik­il­væg­asta nið­ur­staðan er sú að mamma hafi verið sett á lífsloka­með­ferð án þess að fyrir því væru full­nægj­andi ástæður. Við kærðum þetta í kjöl­farið til lög­reglu þar sem við rök­studdum að þarna hefðu átt sér stað refsilaga­brot. Málið er í rann­sókn.“

Eva segir að nið­ur­staða land­læknis hafi aukið traust sitt á stjórn­sýsl­unni. Hún er að vonum áhyggju­full út af þeirri með­ferð sem móðir hennar fékk. Reið. „Ég er auð­vitað slegin yfir því að svona vinnu­brögð geti við­geng­ist á heil­brigð­is­stofnun. Það er líka ótrú­legt að mamma sé fyrsta eða eina mann­eskjan sem hefur lent í þessu. Maður hefur áhyggjur af því að það sé kannski hætta á því að ákveðnir hópar fólks séu í hættu á van­rækslu og jafn­vel refsi­verðri með­ferð í heil­brigð­is­kerf­inu. Fólk sem getur ekki gætt réttar síns, eins og aldr­aðir, úti­gangs­fólk og fleiri hópar. Ég vona að mál móður minnar verði til þess að heil­brigð­is­starfs­fólk og aðstand­endur sem finnst eitt­hvað athuga­vert við með­ferð sjúk­linga láti það í ljós. Almennt er áreið­an­lega hægt að treysta læknum en sér­fræð­ingar eru ekki full­komir frekar en við hin og ef læknir getur ekki gefið trú­verð­ugar skýr­ingar á ákvörð­unum sínum þá er kannski eitt­hvað athuga­vert við þær.“

Maður hefur áhyggjur af því að það sé kannski hætta á því að ákveðnir hópar fólks séu í hættu á van­rækslu og jafn­vel refsi­verðri með­ferð í heil­brigð­is­kerf­inu.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætluðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfsmenn“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætl­uðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfs­menn“

„Við vorum búnir að pæla í því í ein­hvern tíma hvernig hægt væri að koma með eitt­hvað nýtt inn á mat­vöru­mark­að­inn og við lágum yfir þessu á eld­hús­borð­inu. Pabbi hafði verið með snefil af ódýrum vörum í Aust­ur­veri; það var svona „afslátt­ar­þurr­vöru­mark­aður“ og við lögðum upp með þennan ein­fald­leika,“ segir Jón Ásgeir um það hvernig Bónus varð til en rætt...
Aníta Briem: „Krakkarnir, voru að fela sig í runnunum þegar hann kom og sótti mig“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Aníta Briem: „Krakk­arnir, voru að fela sig í runn­unum þegar hann kom og sótti mig“

„Ég var svo ótrú­lega heppin að ég fékk að spreyta mig svo­lítið í Þjóð­leik­hús­inu frá því að ég var níu ára gömul. Þá var ég fyrst í Emil í Katt­holti og lék þar Idu og var svo alveg í fjórum leik­sýn­ingum í Þjóð­leik­hús­inu, þannig að ég var ótrú­lega lánsöm að ég ein­hvern veg­inn fékk svo­lítið að kanna hvað leik­listin væri...
Tony var sakaður um mansal: „Íslendingar tóku mjög vel á móti mér, en ríkisstjórnin ekki“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Tony var sak­aður um man­sal: „Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki“

„Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki,“ segir Tony Omos í við­tali í nýju helg­ar­blaði Mannlífs. Tony Omos er nafn sem flestir Íslend­ingar kann­ast við. Tony er níger­íski hæl­is­leit­and­inn sem felldi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur úr stóli dóms­mála­ráð­herra árið 2014 vegna „Leka­máls­ins“ svo­kall­aða. Málið hafði gríð­ar­leg áhrif á Tony Omos og hans fjöl­skyldu enda var hann sak­laus sak­aður...
Ragnar Erling Hermannsson vill milljarð til að kaupa hús fyrir fíkla
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Ragnar Erling Her­manns­son vill millj­arð til að kaupa hús fyrir fíkla

Ragnar Erling Her­manns­son, Raggi Turner, talar í við­tali við Hörpu Mjöll Reyn­is­dóttur meðal ann­ars um hvers vegna hann fór út í neyslu, gisti­skýlið úti á Granda þar sem hann sefur á næt­urna, hann minn­ist á for­dómana í sam­fé­lag­inu, reynslu sinni af geð­deild og draum­inn um stórt hús jafn­vel fyrir utan Reykja­vík þar sem hægt væri að búa til sam­fé­lag. Og...
Margréti Esther misþyrmt með hestasvipum og naglaspýtum: „Skólasystir mín var stungin 18 sinnum“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Margréti Esther mis­þyrmt með hesta­svipum og nagla­spýtum: „Skóla­systir mín var stungin 18 sinnum“

Margrét Esther Erlu­dóttir fata­hönn­uður átti erf­iða æsku. Óregla var á heim­ilnu og frá unga aldri flakk­aði hún á milli fóst­ur­heim­ila. Hún segir að á einu þeirra, sveitabæ norður í landi, hafi tveir nauðgað sér auk þess sem hún hafi meðal ann­ars verið barin. „Þarna var ég algjör­lega eyðilögð. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Eins og stendur í...
Hanna Rún lamaðist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Hanna Rún lam­að­ist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina, tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu. „Það breytti öllu að verða móðir.“ Og parið dans­aði saman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu