„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Útgerðarmenn greiða minna fyrir veiðileyfi en laxveiðimenn

Útgerðarmenn greiða minna fyrir veiðileyfi en laxveiðimenn
Útgerð­ar­menn greiða minna fyrir stór­iðju sína en lax­veiði­menn.

„Veiði­árið 2016-17 greiddu íslenskir útgerð­ar­menn aðeins tvö­falt meira fyrir Íslands­mið en sport­veiði­menn fyrir sína veiði­daga. Flestir hristu haus­inn yfir slíkri fásinnu. Hvað skyldu útgerð­ar­menn hafa greitt fyrir þá afþr­ey­ingu að veiða á Íslands­miðum árið 2020? Heldur minna (rétt lesið) en sport­veiði­menn­irnir eða 4,8 millj­arða króna! Finnst nokkrum sem ekki er á mála hjá útgerð­inni það eitt­hvert vit?“ spyr Benedikt Jóhann­es­son, talna­fræð­ingur og fyrr­ver­andi fjátr­mála­ráð­herra, um þau kjör sem íslenskir útgerð­ar­menn búa við varð­andi einka­leyfi á veiðum úr íslenskum fiski­stofnum. Benedikt birtir nið­ur­stöðu sína í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag. 

Nið­ur­staða Bene­dikts er slá­andi. Sport­veiði­menn í íslenskum ám og vötnum greiddu meira fyrir veið­arnar á síð­asta ári heldur en útgerð­ar­mennrnir með veið­gjöldum sínum.

„Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands mat umfang þess­ara veiði­gjalda árið 2018. Nið­ur­staða könn­un­ar­innar var að þetta ár hefðu veiði­leyfi í ám og vötnum á Íslandi verið seld fyrir 5,2 millj­arða króna miðað við verð­lag árs­ins 2020,“ skrifar Benedikt. 

Benedikt Jóhann­es­son .

Hann segir að útgerð­ar­menn telji að fiski­miðin séu þeirra eign. Laga­á­kvæðið um „sam­eign þjóð­ar­innar“ sé merk­ing­ar­laust.

„Stjórn­mála­menn hafa í ára­tugi úthlutað lok­uðum hópi vina sinna veiði­heim­ildum, fyrst end­ur­gjalds­laust og svo gegn mála­mynda­gjaldi. Þess vegna séu miðin eign útgerðar­að­als­ins og erf­ast eins og aðals­tign í Bret­landi,“ skrifar Benedikt. 

Hann vill að þessu linni og útgerð­ar­menn greiði rétt verð fyrir einka­rétt sinn. 

„Í mark­aðs­leið felst að árlega er hluti kvót­ans boð­inn upp. Hlut­fallið gæti verið milli 5 og 10% á ári. Hver útgerð fær þá end­ur­gjalds­laust 90-95% af kvóta fyrra árs, en er heim­ilt að bjóða í hinar heim­ild­irnar. Nýir aðilar geta líka tekið þátt í upp­boð­inu. Leiðin er sann­gjörn og leiðir til hag­ræð­ingar, stöð­ug­leika og hámarks arð­semi. Þjóðin fær loks­ins sitt. For­rétt­indin hverfa. Flestar þjóðir hafa lagt af kerfi aðals og léns­herra meðan vinstri­st­jórnin, undir for­ystu VG, festir í sessi nýja yfir­stétt“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins