„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Áfall fyrir Þorstein Má: Samherji rekinn til baka með kæru á starfsmenn Seðlabankans

Áfall fyrir Þorstein Má: Samherji rekinn til baka með kæru á starfsmenn Seðlabankans

Lög­reglan á Vest­fjörðum hefur vísað frá kæru stjórn­enda Samherja á hendur starfs­mönnum Seðla­bank­ans sem grun­aðir voru um að hafa lekið upp­lýs­ingum um rann­sókn til Helga Seljan, frétta­manns RÚV.  Rík­is­sak­sókn­ari hefur stað­fest þá ákvörðun. RÚV greindi frá.

Forsaga máls­ins er að Samherji kærði fimm starfs­menn bank­ans fyrir tveimur árum fyrir að hafa lekið til fjöl­miðla upp­lýs­ingum um yfir­vof­andi hús­leit hjá Samherja fyrir 9 árum í tengslum við rann­sókn á meintum brotum félags­ins á lögum um gjald­eyr­is­mál. Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hefur for­dæmt fram­göngu Seðla­bank­ans gegn félag­inu og taldi Seðla­bank­ann vera í her­ferð gegn félag­inu. Baldvin Þor­steins­son, sonur Þor­steins Más og einn erf­ingja Samherja, veitt­ist opin­ber­lega að Má Guð­munds­syni seðla­banka­stjóra vegna máls­ins.

Kæran var í fyrstu lögð fram hjá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en vegna tengsla þáver­andi lög­reglu­stjóra við Samherja tók lög­reglu­stjór­inn á Vest­fjörðum við mál­inu. Samherji var sýkn­aður í gjald­eyr­is­mál­inu vegna þess að reglu­gerð hafði ekki verið und­ir­rituð og því ekki laga­stoð fyrir rann­sókn bank­ans.

Með þessu lýkur einu af fjöl­mörgum málum sem Samherji hefur verið að fást við en stjórn­endur félags­ins eru grun­uðu um mútur og fleiri lög­brot í Namibíu, Færeyjum og víðar. Enn stendur yfir rann­sókn á meintum lög­brotum Samherja í Namibíu þar sem félagið er grunað um mútur. Nið­ur­staða sak­sókn­ara er áfall fyrir Þorstein Má Bald­vins­son.

Samherji hefur einnig kært upp­ljóstr­ar­ann Jóhannes Stef­áns­son til lög­reglu en hann fletti ofan af mútu­greiðslum félags­ins í Namibíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins