„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Akureyri.net fordæmt fyrir viðtal við Aron Einar landsliðsfyrirliða – Facebook-síðan logar

Akureyri.net fordæmt fyrir viðtal við Aron Einar landsliðsfyrirliða – Facebook-síðan logar
Aron Einar

Á Facebook-síðu Vef­mið­ils­ins Akureyri.net logar allt vegna við­tals við Aron Einar Gunn­ars­son, lands­liðs­fyr­ir­liða í knatt­spyrnu. Fjöl­mið­ill­inn er af ein­hverjum for­dæmdur fyrir við­talið en Aron Einar er einmitt upp­al­inn Akur­eyr­ingur. Á síð­unni hefur fjöldi grófra athuga­semda verið fjar­lægður þar sem meðal ann­ars var skorað á fólk að refsa fjöl­miðl­inum með úti­lokun.

Svo virð­ist sem Aron Einar, maður sem hefur ekki verið ákærður fyrir eitt né neitt, sé þarna tek­inn hart fyrir.

Margir spyrja: Hvað hefur Aron gert? Er þeim þá stundum svarað með skæt­ingi og útúr­snún­ingi; full­yrð­ingar um brot hans ganga log­andi ljósum og það hversu ósmekk­legt það sé að birta við­tal við Aron „á þessum tíma­punkti.“

Enginn kemur fram með neinar sann­anir um sekt Arons í einu né neinu en orðróm­ur­inn lifir góðu lífi í athuga­semda­kerf­inu.

Kona að nafni Kristín S. Bjarna­dóttir skrifar langa athuga­semd um „málið“ og talar til Skapta Hall­gríms­sonar sem er rit­stjóri Akureyri.net, og hlýtur Kristín góð við­brögð:

„Mér er það ljóst að hér er um mjög við­kvæmt mál að ræða og eflaust mörgum sem líður illa, þó engum eins og þol­and­anum. Mér er jafn­framt ljóst að þau eru mörg sem eru að lesa það sem við skrifum hér og mér er mikið í mun að vanda mig …“.

Kristín vísar til yfir­lýs­inga Hönnu Bjargar Vil­hjálms­dóttur sem opin­ber­lega hefur vakið athygli á aðgerð­ar­leys KSÍ í mál­efnum leik­manna karla­lands­liðs­ins.

„Forkona jafn­réttis­nefndar Kenn­ara­sam­bands Íslands heitir Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir. Hún ber enga ábyrgð á þessum málum aðra en þá að vera, líkt og barnið í ævin­týr­inu Nýju fötin keis­ar­ans eftir H.C. Andersen, nógu ærleg til að benda á það sem þurfti að benda á, á meðan flestir aðrir sem fréttu, hvísl­uðu bara nöfnum sín á milli og eru að því enn. Þetta snýst ekki um skort á heið­ar­leika hjá henni eins og þú veltir fyrir þér. Við vitum það flest í dag að ef hún hefði nafn­greint, þá stæði hún röngu megin við lögin og gæti fengið á sig kæru fyrir meið­yrði. Það umhugs­un­ar­verða er hins vegar að hún vissi líka að hún þyrfti ekki að nafn­greina, því þau hjá KSÍ vissu þá þegar, og höfðu vitað um í ein­hvern tíma, um hvaða menn var að ræða. Ef KSÍ hefði brugð­ist fag­lega og af festu við þegar þau urðu upp­vís að þessu máli og öðrum málum sem hún reifar, þá hefði Hanna Björg ekki haft neina ástæðu til að skrifa þessa grein“.

Lokaorð hennar eru slá­andi.

„Einhver myndi kalla það með­virkni, ég hef heyrt aðra kalla það sam­trygg­ingu. Og á meðan hvorki ger­endur né KSÍ axla ábyrgð er áfram níðst á sam­fé­lags­miðlum á per­sónu þol­and­ans ann­ars vegar, og per­sónu „sendi­boð­ans“ Hönnu Bjargar hins vegar“.

Nokkuð ljóst virð­ist vera að hinn svo­kall­aði „Dómstóll göt­unnar“ sé búinn að rann­saka, rétta og dæma Aron.

Í við­tal­inu, sem er sak­leys­is­legt, ræðir Aron um eitt og annað en hann seg­ist fyrir löngu hafa ákveðið að leika eitt sumar með Þór í lokin, þótt það hafi ekki farið hátt, þar til í sumar:

„Mér finnst það skylda mín að skila til baka því sem Þór gerði fyrir mig þegar ég var ungur. Það er mjög mik­il­vægt fyrir mig að klára fer­il­inn þar sem ég byrj­aði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins