„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ráðuneytið sagt hafa reynt að hindra leitina að líki Hauks

Ráðuneytið sagt hafa reynt að hindra leitina að líki Hauks
Haukur Hilm­ars­son dansar

Mannlíf hefur undir höndum nafn­laust bréf sem barst innan úr utan­rík­is­ráðu­neyt­inu þar sem fram koma alvar­legar ásak­anir um starfs­mann þar í tengslum við hvarf Hauks Hilm­ars­sonar í Afrín hér­aði í Sýrlandi, árið 2018. Bréf­rit­ar­inn brigslar starfs­mann­inum hrein­lega um mann­vonsku.

Hauk Hilm­ars­son þekkja flestir en hann tók þá afdríf­a­ríku ákvörðun að hjálpa Kúrdum við að berj­ast við ISIS sam­tökin er þau réð­ust á sam­fé­lag Kúrda í Afrin hér­aði, Sýrlandi. Tyrk­neski her­inn hóf loft­árásir á Kúrda fljót­lega eftir sigur Kúrda á ISIS-liðum og eru taldar yfir­gnæf­andi líkur á að Haukur hafi fallið í þeim árásum.

Í bréf­inu kemur fram að ákveð­inn aðili, sem er nafn­greindur, hafi „beitt öllum til­tækum ráðum að mál­efni Hauks yrðu svæfð í ráðu­neyt­inu.“ Þar kemur einnig fram að við­kom­andi starfs­maður hafi verið illa í nöp við Hauk og hans fjöl­skyldu en þau hafa lengi verið gagn­rýnin á íslensk stjórn­völd í hinum ýmsum málum. Segir bréf­rit­ar­inn að starfs­mað­ur­inn hafi ítrekað kallað Hauk „Bón­us­fán­ann, sem hefði átt að vita betur en að æða til Sýrlands með hríð­skotariffil.“

Aukreitis segir nafn­lausi bréf­rit­ar­inn að við­kom­andi starfs­maður hafi tekið undir með afstöðu Tyrkja, sem skil­greina Kúrda sem hryðju­verka­menn og skil­greindi því Hauk sem slíkan. Árið 2018 komst alþjóða­dóm­stóll í mál­efnum Tyrkja og Kúrda að þeirri nið­ur­stöðu að Erdoğan, þjó­höfð­ingi Tyrkja, bæri beina ábyrgð á stríðs­glæpum tyrk­neska rík­is­ins gagn­vart Kúrdum á und­an­gengum árum. Ögmundur Jónasson, fyrr­ver­andi þing­maður, vakti athygli á því í mars sama ár, að Tyrkland væri fyrir dómi vegna stríðs­glæpa gegn Kúrdum.

Begga Dan, móð­ur­bróðir Hauks, barst bréfið fyrr í sumar og óskaði þá í fjöl­miðlum eftir stað­fest­ingu á inni­haldi bréfs­ins, að bréf­rit­ar­inn stigi fram undir nafn­leynd. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hefur bréf­rit­ar­inn ekki stigið fram enn.

Biðlar nú Mannlíf til bréf­rit­ar­ans að koma fram við blaða­mann en nafn­leynd hans er tryggð sam­kvæmt 25. grein fjöl­miðla­laga nr. 38/2011, svo hægt sé að stað­festa um sann­leiks­gildi bréfs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins