„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Rútur Skæringur vill afslátt á sjálfsafgreiðslukössum: „Ég vil að fólk sýni mér stöðuga athygli“

Neytandi vik­unnar er Rútur Skær­ingur N. Sig­ur­jóns­son, kvik­mynda­gerð­ar­maður, módel, áhrifa­valdur og lífskúnstner. Auk þess að auka hróður sinn á sviði kvik­mynda heldur hann úti Instagram reikn­ingnum Icerutur.

Hve miklu eyðir fjöl­skyldan í mat og aðrar rekstr­ar­vörur heim­il­is­ins á mán­uði og hvar verslar hún helst?

Ég hef bara aldrei spáð í því. Ég er einn í heim­ili fyrir utan hund­inn og ég fæ að megn­inu til að borða í vinn­unni. Þegar svona stór hluti mat­ar­kost­að­ar­ins er dekk­aður af vinnu­veit­and­anum verður þetta eitt­hvað sem maður hugsar minna um.

Hvað með sparnað í matarinnkaupum og hverju vilt þú breyta sem neytandi?

Ég vil fá meira ódýrt eða frítt dót. Það má alveg vera fyrir alla en sér­stak­lega vil ég fá frítt og ódýrt dót fyrir mig per­sónu­lega. Flest dót á fullu verði er rán­dýrt. Mér finnst ég í raun eiga það skilið en ver­andi áhrifa­valdur og módel þá myndi það veita mér meira fjár­hags­legt bol­magn til að gleðja aðdá­endur mína meira og oftar.

Telur þú álagn­ingu versl­ana sann­gjarna og gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu?

Vanalega er fólk að gefa mér hitt og þetta en ef ég geri verð­sam­an­burð og virki­lega neyð­ist til að kaupa eitt­hvað þá nei, þá finnst mér álagn­ing versl­anna alls ekki sann­gjörn. Mér finnst t.d. að versl­anir sem nota sjálfs­af­greiðslu­kassa ættu að veita afslátt fyrir það að fólk afgreiði sig sjálft. Föt eru sér­stak­lega dýr! Ef maður ber þetta saman við sam­bæri­leg föt erlendis, t.d. jakka­föt, þá er mjög mik­ill verð­munur. Ef jakka­föt sem eru ekki sér­sniðin kosta tvö­falt á við sér­sniðin föt í landi sem er ekki lengra í burtu en Skotland er eitt­hvað mikið að. Ég tala ekki um mun­inn á því að kaupa föt í Asíu.

Leggur þú fyrir, og hvaða leiðir notar þú ef svo er?

Já, ég legg fyrir og geri það með því að leggja inn á sparn­að­ar­reikn­ing en það breytir því ekki að ég þarf að eyða, stundum oft. Það gengur ekki upp að leggja ekki fyrir.

Verðtryggð lán, óverðtryggð lán eða engin lán?

Náms­lánin mín eru verð­tryggð og ég fékk aldrei neina leið­rétt­ingu. Hvar er leið­rétt­ingin mín? Sama hvaða lán maður tekur er lág­mark að eitt gangi yfir alla.

Hvaða mál og málaflokka telur þú að þurfi að leggja meiri áherslu á?

Það væri gott ef fal­legu fólki eins og mér væri gert hærra undir höfði þegar kemur að sam­fé­lags­miðlum. Ég vil að fólk sýni mér stöðuga athygli og leggi hart að sér við það að upp­fylla allar mínar þarfir. Ég legg hart að mér og finnst eðli­legt að aðrir geri það líka.

Þetta er kannski ekki vin­sælt við­horf en það er í það minnsta hrein­skilið.

Umhverfisvernd, skiptir hún þig máli?

Já, bróð­ur­part­ur­inn af því efni sem ég deili á sam­fé­lags­miðlum fer fram undir berum himni og úti í guðs­grænni nátt­úr­unni. Án nátt­úr­unnar hefði ég engan fal­legan bak­grunn fyrir efnið sem ég deili.

Ég flokka ruslið, nota græna sam­göngu­máta þegar ég get og er með­vit­aður um kolefn­is­fótsporið mitt. Ég mun halda þessu áfram þangað til að ég dey eða þetta dettur úr tísku.

Annað sem þú vilt taka fram?

Ég er virki­lega þakk­látur fyrir aðdá­endur mína. Ég elska ykkur öll og þið eruð alveg frá­bær!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

neytandi vikunnar

Borgarfulltrúinn sem vill kaupa falleg föt: „Ákveðnar verslanir ættu að taka sig á“
Innlentneytandi vikunnar

Borg­ar­full­trú­inn sem vill kaupa fal­leg föt: „Ákveðnar versl­anir ættu að taka sig á“

Kjartan Magn­ús­son er 55 ára borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Kjartan býr í Vest­ur­bænum og starf­aði árum saman sem blaða­maður Morg­un­blaðs­ins. Kjartan er Neytandi Mannlífs. Gerir þú verð­sam­an­burð á vöru og þjón­ustu? Já, ég ber gjarnan saman verð á vörum og þjón­ustu því ég veit að það getur verið mjög mis­mun­andi á milli versl­ana. Reyndar finnst mér tölu­vert vanta upp á verð­merk­ingar í...
Tómas er fótboltaverkfræðingur sem vill gott úrval: „Löngun samhliða þörf“
Innlentneytandi vikunnar

Tómas er fót­bolta­verk­fræð­ingur sem vill gott úrval: „Löngun sam­hliða þörf“

Tómas Joð Þor­steins­son er 34 ára gam­all bygg­ing­ar­verk­fræð­ingur. Hann starfar hjá Eykt ehf við upp­bygg­ingu Nýja Lands­spít­al­ans og spil­aði 141 leiki með Fylki í efstu deild í knatt­spyrnu. Tómas býr ásamt kær­ustu og tveimur börnum þeirra í Garðabæ. Hann er neyt­andi vik­unnar. Gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu? Já ég geri oft verð­sam­an­burð, sér­stak­lega við mat­ar­inn­kaup heim­il­is­ins og ýmsa...
Gerir unnustu sína brjálaða með tuði: „Endar í geymslunni“
Innlentneytandi vikunnar

Gerir unn­ustu sína brjál­aða með tuði: „Endar í geymsl­unni“

Arnar Freyr Gunn­steins­son er 34 ára, fæddur og upp­alin á Sel­tjarn­ar­nesi. Hann er þjón­ustu­full­trúi hjá BL og bassa­leik­ari Ultra Mega Technobandsins Stefáns. Arnar býr ásamt Jóhönnu, unn­ustu hans, í Árbænum. Arnar er Neytandi vik­unnar. Gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu? Já, ég skoða alltaf verð á sam­bæri­legum vörum þegar ég er að versla í keðj­unum. Get stundum gert Jóhönnu...
Hjálmar gaf vini sínum dósatunnu: „Tek alltaf plast með mér erlendis og hendi því þar“
Innlentneytandi vikunnar

Hjálmar gaf vini sínum dósa­tunnu: „Tek alltaf plast með mér erlendis og hendi því þar“

Hjálmar Örn Jóhanns­son er 49 ára verka­maður og skemmti­kraft­ur­bú­settur í Reykja­vík. Hann er fjög­urra barna barna faðir og einn fyndn­asti núlif­andi Íslend­ing­ur­inn. Hjálmar er Neytandi vik­unnar. Gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu? Hef ekki gert það. Hvernig sparar þú í mat­ar­inn­kaupum? Get ekki sagt að það sé minn sterkasti kostur að spara því miður. End­ur­nýtir þú? Ertu með ráð...
Emil kjúklingakarl er Pepsi Max fíkill: „Neysla er líklega stærsta vandamálið“
Innlentneytandi vikunnar

Emil kjúklinga­karl er Pepsi Max fík­ill: „Neysla er lík­lega stærsta vanda­málið“

Emil Ólafur Ragn­ars­son heiti ég, giftur með eitt barn. Búsettur í Hval­fjarð­ar­sveit, fæddur í Reykja­vík, upp­al­inn í Dýra­firði og Kjós. Starfa sem bústjóri á kjúklinga­búi. Hef einnig búið hér og þar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu? Já, ætli maður geri það ekki, þó er ég ekki með það nið­ur­skrifað í excel skjal. En maður reynir að...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins