„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tómas missti afa og ömmu sama daginn: „Ég vonaði að pabbi myndi vilja hitta mig“

Tómas missti afa og ömmu sama daginn: „Ég vonaði að pabbi myndi vilja hitta mig“
Tómas Tómasson (Mynd: Baldur Krist­jáns.)

Tómas Tómasson veit­inga­maður, sem er hvað þekkt­astur fyrir rekstur Tomma ham­borg­ara og nú Ham­borg­ara­búllu Tómasar, vill á þing en hann er odd­viti Flokks fólks­ins í Reykja­vík norður. Tómas talar hér meðal ann­ars um áherslu­mál sín, föð­ur­inn banda­ríska sem vildi ekk­ert af honum vita, Bakkus, fer­il­inn og upp­á­halds­ham­borgar­ann, þung­lyndið tengt ást­ar­sorg­inni, lyft­ing­arnar og húð­flúrin og flat­köku með roast beef og rækju­sal­ati.

Tómas Tómasson veit­inga­maður er odd­viti Flokks fólks­ins í Reykja­vík norður í alþing­is­kosn­ing­unum í haust. „Það var nú þannig að árið 1978 tók ég þá ákvörðun að ég myndi fara í stjórn­mál þegar ég yrði orð­inn eldri og þroskaðri og væri kom­inn í sæmi­legt fjár­hags­legt öryggi. Ég sá í hendi mér núna orð­inn 72 ára gam­all að ég á ekki nema eitt skot í byss­unni svo ég ákvað að demba mér í slag­inn núna og reyna að láta gott af mér leiða í rest­ina; svona á síð­ustu metr­unum.

Ég valdi Flokk fólks­ins vegna þess að hann hefur verið að berj­ast fyrir hag eldri borg­ara og þar sem ég er nú orð­inn eldri borg­ari þá finnst mér rétt að stað­setja mig þar. Eldri borg­arar á Íslandi eru um 48.000 og þeim fjölgar sífellt og það þarf að hugsa um hag þeirra af því að þeir hafa orðið svo­lítið út undan.“

Tómas segir bar­áttu­mál sín vera nokkur. „Ég ætla að berj­ast fyrir því að allir eldri borg­arar fái að vinna ef þeir geta unnið og vilja vinna. Ég vil berj­ast fyrir því að frí­tekju­markið hækki veru­lega. Það er í dag 100.000 krónur ef fólk vinnur og ég vil sjá það fara upp í að minnsta kosti 200.000 krónur. Ég vil að það sé farið að hugsa alvar­lega um það að hjálpa eldri borg­urum að búa heima hjá sér eins lengi og þeir vilja og eins lengi og þeir geta og síðan vil ég sjá til þess að það séu hjúkr­un­ar­heim­ili og elli­heim­ili sem munu geta tekið á móti fólk­inu þegar það er komið á það stig að það verður að fá aðstoð.

Síðan hef ég mik­inn áhuga á því að náms­menn fái að vinna ótak­markað með sínu námi án þess að það skerði náms­lánin. Það kostar ríkið ekk­ert því fólkið er að fá pen­ing­ana lán­aða og borgar þá til baka; en það er alveg út í hött að þvinga náms­menn til þess að súpa nán­ast dauð­ann úr skel ef þeir eru með stóra fjöl­skyldu og í erf­iðu námi ef þeir geta unnið og vilja vinna. Maður sem vinnur með námi er miklu betri starfs­kraftur þegar hann kemur út í atvinnu­lífið að loknu námi vegna þess að hann veit hvað það er að vinna. Það er ekki það sama að læra og skrifa rit­gerðir og fara síðan út í atvinnu­lífið og vinna; bretta upp ermarnar og taka þátt í því sem er að ske. Svo er það mjög hættu­legt þegar náms­menn freist­ast til þess að vinna svarta vinnu því það er ekki gott fyrir þjóð­fé­lagið og svo geta þeir ánetj­ast því að vinna bara svart og það hefur eng­inn gott af því að lifa í þeim heimi. Náms­maður sem vinnur með námi aflar tekna og hann borgar skatta þannig að ríkið fær skatta af tekjum náms­manns­ins og hann verður ánægð­ari með lífið og til­ver­una. Honum er ekki haldið í fátækra­gildru. Það er mikið atriði. Háskóla­nemar eru um 20.000 og þeim fylgja að minnsta kosti 10.000 manns; eig­in­konur, eig­in­menn og börn. Svo hjálpa sumir for­eldrar náms­mönn­unum kannski af van­efnum en gera það samt. Þannig að þetta væri öllum til hags­bóta.“

Eldri borg­arar á Íslandi eru um 48.000 og þeim fjölgar sífellt og það þarf að hugsa um hag þeirra af því að þeir hafa orðið svo­lítið út undan.

What’s your problem?

Tómas Tómasson sem vill fara á þing og er þekkt­astur sem Tommi í Tomma ham­borg­urum og svo Ham­borg­ara­búllu Tómasar kom í heim­inn í Reykja­vík fyrir 72 árum eins og þegar hefur komið fram. Hann seg­ist vera „kana­barn“.

„Faðir minn var banda­rískur og vann hjá banda­ríska hernum á Kefla­vík­ur­flug­velli og hann stakk af um leið og hann vissi að mamma var ófrísk. Hún varð fyrir miklum von­brigðum því hún var búin að láta sig dreyma um að hún væri þarna búin að finna lífs­föru­naut sem var ekki. Hann var mjög leið­in­legur við hana þegar hún reyndi að tala við hann eftir að hann fór í burtu og gaf skít í hana.

Mamma flutti til Banda­ríkj­anna þegar ég var tveggja ára og það má segja að hún hafi skilið mig eftir hjá ömmu og afa því hún ein­hvern veg­inn ánetj­að­ist Ameríku og var þar allt sitt líf eftir það. Hún sendi mér stundum pakka með dóti í og galla­buxum sem var gaman að fá og amma og afi voru rosa­lega góð við mig þannig að ég ein­hvern veg­inn lifði við það að þetta væri bara sjálf­sagður hlutur.“

Hann var átta ára þegar hann sá móður sína næst en man ekk­ert eftir henni áður en hún flutti vestur um haf sex árum áður. Hann heim­sótti hana svo af og til í gegnum árin. „Ég á tvær stelpur, önnur er 26 ára og hin er 14 ára, og það var ekki fyrr en þær fædd­ust sem ég gerði mér grein fyrir að þetta hafði ekki alveg verið eins og það átti að vera. Þó að amma og afi hafi verið góð þá voru þau alltaf að bíða eftir að mamma kæmi heim sem hún gerði ekki; þau þurftu að vera með mig í þeirri von að mamma kæmi heim. Þannig að fyrir vikið var ég svo­lítið afskiptur sem ég er að fatta núna mörgum árum seinna. Ég er rúm­lega sjö­tugur og allt í einu skil ég þetta.“

Amma og afi Tómasar dóu sama dag­inn þegar hann var 15 ára.

„Amma dó klukkan sex um morg­un­inn og afi klukkan 11 um kvöldið. Amma var með maga­sár og það dró hana til dauða og ég veit ekki annað en að afi hafi dáið úr sorg. Hún var 79 ára og hann var orð­inn 85 ára gam­all og þau voru búin að vera gift í rúm­lega 50 ár. Þau elsk­uðu hvort annað og voru rosa­lega sam­rýmd. Afa fannst lífið bara vera búið þegar amma dó. Það leið yfir mig við kistu­lagn­ing­una. Það var áfall að missa þau.“

Amma dó klukkan sex um morg­un­inn og afi klukkan 11 um kvöldið.

Tómas flutti til móð­ur­bróður síns og bjó honum næstu árin. Hann gekk í Verzlunarskóla Íslands og segir að sér hafi gengið illa í skól­anum til að byrja með. „Ég komst ein­hvern veg­inn upp með að vera óreglu­samur og féll í 1. og 2. bekk. Svo fór ég til Ameríku í high school og bjó hjá móður minni en ég var óhress og óánægður með að vera þar í skóla og kláraði ekki það ár og kom aftur til baka og fór í kokk­inn.“

Tómas sá aldrei föður sinn sem hét Thomas Downey.

„Ég gróf upp síma­núm­erið hans þegar ég var orð­inn 27 ára gam­all og var í háskóla­námi í hótel- og veit­inga­rekstri við Florida International Uni­versity í Miami. Ég hringdi í hann og spurði hvort hann myndi eftir móður minni og þá sagði hann: „What’s your problem?“ Ég end­ur­tók spurn­ing­una og sagð­ist halda að við værum skyldir og hann sagði aftur „What’s your problem?“ og hann gaf til kynna að hann vildi ekki tala við mig. Ég bað hann afsök­unar og ég tal­aði ekki aftur við hann. Þetta var í eina skiptið sem ég hafði ein­hver sam­skipti við hann. Ég var svo­lítið skúff­aður. Ég var búinn að vona að hann myndi vilja hitta mig og ég myndi kannski kynn­ast honum eitt­hvað en það varð ekki og ég ein­hvern veg­inn lærði að lifa með þessu.“

Ég hringdi í hann og spurði hvort hann myndi eftir móður minni og þá sagði hann: „What’s your problem?“

Bakkus

Tómas sagð­ist hafa kom­ist upp með að vera óreglu­samur. Hann var 13 ára þegar hann fékk sér fyrsta sopann.

„Ég man eftir honum eins og þetta hefði gerst í gær. Ég fékk mér sopa úr séni­ver­flösku sem stóð á bak við gard­ín­una heima hjá vini mínum sem heitir Siggi. Við vorum að passa og horfa á Kana­sjón­varpið. Ég sá þessa flösku, tók hana upp, skrúf­aði tapp­ann af og fékk mér sopa. Ég veit ekki af hverju ég gerði það. Mér fannst þetta vera gott og ég fann aðeins á mér og gerði þetta aftur næstu helgi. Svo var ég far­inn að gera þetta eins oft og ég gat á þessum tíma.“

Ófermdur.

„Ég datt nú ekki í það á ferm­ing­ar­dag­inn en ég man að ég fékk svo mik­inn pen­ing í ferm­ing­ar­gjöf að ég gat notað hluta af honum til þess að kaupa brenni­vín. Amma og afi gerðu sér ekki grein fyrir því að ég væri að drekka. Afi vissi að ég var byrj­aður að drekka þegar ég var 15 ára rétt áður en hann lést. Það er engum hollt að drekka brenni­vín sem eru 13-14 gamlir. Þetta var eins og þegar krakkar á þessum aldri eru að stel­ast til að drekka um helgar. Svo þegar amma og afi dóu þá fékk ég frjáls­ari hendur við að drekka. Þegar ég fór síðar að vinna sem kokkur komst ég upp með að vera undir áhrifum í vinn­unni og það var ekki eðli­legt.“

Tómas vann á Kefla­vík­ur­flug­velli um tíma þegar hann var 16 ára og bjó þá í bragga. „Hjartað í mér fór eitt kvöldið að slá með miklum látum og ég hélt hrein­lega að ég væri að deyja. Ég var rosa­lega hræddur. Ég samdi við Guð um það að ef ég myndi ekki deyja þá myndi ég hætta að reykja og drekka. Svo bara hjaðn­aði þetta og hjartað fór að slá eðli­lega og svo sofn­aði ég fyrir rest. Reyndar hafði læknir komið og skoðað mig og komst hann að þeirri nið­ur­stöðu að þetta væri eins og þeir segja „false alarm“. Ég var skít­hræddur við að deyja á þessum tíma en í dag átta ég mig á því að við endum öll á því að deyja ein­hvern tím­ann og ég er ein­hvern veg­inn sáttur við það að þegar það skeður þá bara skeður það og ég er alveg rólegur.“

Tómas seg­ist hafa samið við Guð þetta kvöld í bragg­anum. Hann sveik lof­orðið og hélt áfram að drekka.

Tómasi dreymdi um að verða veit­inga­maður á þessum tíma. „Þegar ég var 16 ára byrj­aði ég að vinna á pyslu­bar sem var í Aust­ur­stræti sem hét Prima pylsur. Ég var þá í Verzlunarskólanum og sóp­aði portið fyrir aftan stað­inn og svo fékk ég að afgreiða pylsur inn á milli. Mér fannst svo gaman að afgreiða kúnn­ana að ég sagði „vá, þetta finnst mér gaman að gera“. Og ég ein­hvern veg­inn stefndi á þetta. Ég fór svo að læra að vera kokkur þegar ég var 18 ára og kláraði kokk­a­námið þegar ég var 22 ára.“

Og hann drakk allt of mikið í mörg ár.

„Alkó­hól­ismi er nú þannig að hver og einn verður að hitta sinn botn og botn­inn getur verið mis­jafn­lega neð­ar­lega. Ég er af þeirri kyn­slóð sem þekkti ekki önnur vímu­efni þannig að minn vímu­gjafi var bara áfengi. Ungt fólk sem fer í með­ferð í dag er yfir­leitt búið að vera í ein­hverjum efnum. Ég er eins og ferm­ing­ar­drengur við hlið­ina á þessu fólki sem er í með­ferð í dag sem er búið að vera í harðri neyslu. Ég átti það til að drekka í tvo til þrjá daga í röð og það var of mikið og ekki rétt. Það end­aði með því þegar ég var 31 árs að þá fannst mér nú vera nóg komið og fór ég í með­ferð uppi á Sil­unga­polli. Og ég hef ekki drukkið í 41 ár og tvo mán­uði.“

Alkó­hól­ismi er nú þannig að hver og einn verður að hitta sinn botn og botn­inn getur verið mis­jafn­lega neð­ar­lega

Hamborgaraævintýrið

Tómas vann sem mat­reiðslu­maður í mörg ár. Hann vann meðal ann­ars í eld­húsi Loft­leiða og svo sá hann í þrjú ár um rekstur eld­húss­ins í félags­heim­il­inu Festi í Grinda­vík á árunum 1974-1977; hann seg­ist ekki hafa drukkið á þeim þremur árum.

Hann átti erfitt með að finna vinnu þegar hann kom úr með­ferð­inni á Sil­unga­polli. Vinur hans spurði hann einn dag­inn hvort hann vildi hjálpa sér við að opna lít­inn ham­borg­ara­stað við Laugaveg 116 og þeir gerðu það. „Þá komst ég að því að mér fannst gaman að steikja ham­borg­ara og mér fannst þeir vera góðir. Það varð til þess að ég opn­aði fjórum mán­uðum síðar minn eigin ham­borg­ara­stað við Grens­ás­veg undir naf­inu Tomma ham­borg­arar. Það var 14. mars árið 1981.

Ég átti engan pen­ing þegar ég fór af stað með minn eigin stað og bað vini og vanda­menn um að hjálpa mér við að inn­rétta og svo klór­aði ég mig áfram í róleg­heit­unum. Og ein­hvern veg­inn tókst mér að opna stað­inn. Ég átti von á því að ég myndi selja á milli 2-300 ham­borg­ara á dag en eftir fimm vikur var ég far­inn að selja um 1000 ham­borg­ara á dag. Fyrsta árið seldi ég um 353.000 ham­borg­ara sem var því­líkt ævin­týri að ég hef aldrei lent í öðru eins.

Ég opn­aði fleiri Tomma ham­borg­ara­staði í fram­hald­inu af því og svo seldi ég þá og opn­aði síðan Sprengisand við Bústaða­veg og var þar í þrjú ár. Síðan opn­aði ég Hard Rock Café í Kringl­unni og var þar í 10 ár, ég var með Ömmu Lú og svo rak ég Hótel Borg í 10 ár; ég átti hót­elið að nafn­inu til. Ég opn­aði svo Ham­borg­ara­búllu Tómasar fyrir 17 árum. Þetta er í grófum dráttum fer­ill­inn minn.“

Fyrsta árið seldi ég um 353.000 ham­borg­ara sem var því­líkt ævin­týri að ég hef aldrei lent í öðru eins.
Með Helga Björns 1992 á fimm ára afmæli Hard Rock Cafe.

Það hefur gengið upp og niður í rekstr­inum; bara svona eins og hafið bláa hafið er ann­að­hvort lygnt eða þá að stormar geysa og öld­urnar teygja sit í átt til him­ins og láta öllum illum látum.

„Ég er búinn að lenda í alls konar ævin­týrum í þessum fyr­ir­tækjum sem ég hef stofnað og ég hef stundum skrifað nafnið mitt og það hefur tekið mig tvö eða þrjú ár að losa mig út úr ein­hverju sem ég skuld­batt mig til að taka ábyrgð á. Þannig að þetta er búin að vera ein alls­herjar bar­átta í gegnum við­skiptin þótt það hafi gengið vel á köflum. Ég hef stundum lent í ævin­týrum með að opna ein­hverja staði sem voru miklu dýr­ari í inn­rétt­ingum heldur en átti að vera en ég hef ein­hvern veg­inn klórað mig út úr þessu. Málið er að maður þarf alltaf að taka ein­hverja áhættu þegar maður fer út í við­skipti. Þegar ég opn­aði Ham­borg­ara­búllu Tómasar þá var ég svo blankur að ég þufti að skrapa saman 500 kalli úr þremur banka­reikn­ingum til að kaupa inn­eign á síma. Ég þurfti bara að byrja upp á nýtt og ég gerði það og opn­aði stað niðri við Geirs­götu sem hefur verið flagg­skipið okkar.“ Annar sonur Tómasar sér nú um rekstur stað­anna en Tómas seg­ist vera meira upp á punt. „Það er mynd af mér á öllum stöð­unum og ef það er eitt­hvað um að vera þá kem ég og steiki en dags dag­lega hef ég ekki lengur nein föst verk­efni annað en bara að fylgj­ast með og vita hvað er að ske. En ég hef frjálsar hendur og fulla starfs­orku og tíma til þess að fara út í stjórn­málin.“

Tómas er spurður um upp­á­halds­ham­borgar­ann. „Hann er mjög ein­faldur. Það er gróf­hakkað nauta­kjöt sem er um 20% fita og medium rare, aðeins rautt í miðj­unni, brauð og ég dýfi þessu ofan í kok­teilsósu. Og það verða að vera franskar með.“

Ham­borg­ara­kóng­ur­inn er spurður hvað það er við ham­borg­ara sem mörgum finnst vera svo gott. „Það er eins með ham­borgar­ann og pyls­una. Það er auð­velt að borða hvort tveggja og þetta er svo­lítið eins og að fara í bíó og sjá B-bíó­mynd; hún er alltaf skemmti­leg og góð, hún skilur ekk­ert mikið eftir en mann langar alltaf til að sjá aðra svip­aða ein­hvern tím­ann seinna. Ham­borg­ari er matur sem hægt er að borða hvenær sem er dags­ins, jafn­vel milli mála, og þetta er eins og Coca Cola; mörgum finnst alltaf gott að drekka kók. Og það má segja að ham­borg­ar­inn sé eins og nammi; syk­ur­laust nammi. Í dag er hægt að fá ham­borg­ara mjög víða á Íslandi. Þetta hefur tekið svaka­legum fram­förum og menn eru farnir að elda alveg hreint dásam­lega ham­borg­ara út um allt.“

En ég hef frjálsar hendur og fulla starfs­orku og tíma til þess að fara út í stjórn­málin.

Ástin

Jú, hafið bláa hafið sýnir á sér margar hliðar eins og lífið sem getur verið eins og salt­fiskur. Svo er það ástin og skugg­arnir.

„Ég varð þung­lyndur árið 1998 og mér leið mjög illa í um sex mán­uði. Það var mjög erf­iður tími. Ég var að skilja við sam­býl­is­konu mína og ég tók það mjög nærri mér og það ágerð­ist bara og ég var ekk­ert að hugsa um sjálfan mig á þessum tíma. Ég borð­aði lítið sem ekk­ert. Ég sat bara og horfði ofan í skrif­borðið mitt og beið eftir að tím­inn liði þangað til það kæmi kvöld til þess að ég gæti farið að sofa til þess að vakna svo morg­un­inn eftir til þess að setj­ast aftur við skrif­borðið mitt og horfa ofan í það. Það var líka ótrú­legt að liggja með Biblíuna á bring­unni og biðja Guð um aðstoð. Svo hjaðn­aði þetta smám saman og þegar þessu var lokið þá horfði ég til baka og sagði „vá, var ég þung­lyndur og var ég í þessu óþægi­lega ástandi?“

Það var líka ótrú­legt að liggja með Biblíuna á bring­unni og biðja Guð um aðstoð.

Tómas seg­ist hafa leitað til 12 spora sam­tak­anna þegar honum leið sem verst. „Ég hitti líka þerapista. Ég hef í gegnum tíð­ina farið til þerapista oft og mörgum sinnum. Það eiga allir að fara til þerapista og létta á sér og ræða ýmis mál.“

Hann talar um ást­ina til barn­anna sinna. Hann á fjögur. Tvo syni og tvær dætur. Hann var varla kom­inn af barns­aldri þegar hann eign­að­ist eldri son sinn 19 ára gam­all. Hann var svo 25 ára þegar hinn kom í heim­inn. „Ég var ekki nógu þrosk­aður þegar þeir fædd­ust. Þeir voru lengi vel eins og bræður mínir. Þegar eldri dóttir mín fædd­ist þá átti ég von á því að þetta væri strákur frekar en stelpa en mig lang­aði svo­lítið til að eign­ast stelpu. Ég var við­staddur fæð­ingu hennar og þegar hún kom út og ég sá að þetta var stelpa þá var eins og það hefði bráðnað ein­hver ísjök­ull sem var utan um hjartað á mér. Ég fann hvað ég elskaði hana mikið. Það er ótrú­leg til­finn­ing þegar maður finnur allt í einu hvað ástin getur verið sterk. Og þegar yngri dóttir mín fædd­ist þá fann ég sömu til­finn­ing­una. Ég var líka við­staddur fæð­ingu hennar og það var eins og himn­arnir hefðu opn­ast þegar ég fékk að halda á henni alveg nýfæddri í hand­klæð­inu og hjálpa til við að klippa nafla­streng­inn.“

Flatkaka með roast beef og rækjusalati

72 ára gam­all mað­ur­inn er í góðu formi og hann seg­ist lyfta fjórum sinnum í viku. Það er saga á bak við hvers vegna hann fór að lyfta á sínum tíma.

„Ég fór árið 1981 á rokk­há­tíð á skemmti­staðnum Broadway sem var í Mjódd­inni. Það komu fram allar aðal­hljóm­sveitir lands­ins á þessum tíma og eitt síð­asta skemmti­at­riðið var með hljóm­sveit­inni Egó sem Bubbi var í for­svari fyrir. Bubbi fór á kostum og söng lögin sem hann var frægur fyrir á þessum tíma. Hann var á þessum tíma gjarn á að fara úr að ofan og hann var stæltur og með six pack og ég veit ekki hvað. Ég dáð­ist að honum. Svo kom ég heim um kvöldið, horfði á mig í spegl­inum ber að ofan og sagði „vá, ég verð að gera eitt­hvað í þessu“. Það varð til þess að ég fór að æfa í „gimmi“ sem ég hafði ekki gert áður. Svo ein­hvern veg­inn ánetj­að­ist ég þessu og fór að æfa.“

Fjórum sinnum í viku. „Ég var að æfa áðan. Ég lyfti, fer í róðr­ar­vél­ina og á hjólið og geri ditt­inn og datt­inn. Þeir segja sko þegar maður æfir: If you don’t use it you loose it“. Á mínum besta degi snemma á þessu ári tók ég 100 kíló í bekk­pressu. En ég geri það ekki á hverjum degi. Maður er mis­jafn­lega vel upp­lagður. Ég fer kannski niður í 90 kíló en ef ég er í stuði þá get ég farið upp í 100 kíló. Það er eins og það sé svo­kallað „milestone“ að taka 100 kíló í bekk­pressu. Þá er maður búinn að ná ákveðnum árangri. En það er ekki aðal­málið; ég meina, margir sem æfa reglu­lega taka 60-70 kíló og eru bara ánægðir með það að vera fitt og flottir.“

Á mínum besta degi snemma á þessu ári tók ég 100 kíló í bekk­pressu.

Tómas skartar fullt af húð­flúrum. Hann fékk það fyrsta í Kaup­manna­höfn árið 1971 hjá Tattu Ole. Það er svört rós. Það er rós sem visnar ekki.

„Svo gerði ég ekk­ert í þessu fyrr en fyrir fimm árum síðan þegar ég byrj­aði að láta húð­flúra mig hægri vinstri. Hann Fjölnir tattú tattú­verar mig gjarnan. Hérna er mynd af flugu sem dóttir mín teikn­aði; ég læt yfir­leitt húð­flúra eitt­hvað sem teng­ist dætrum mínum eða ein­hverjum part í lífi mínu.“

Tómas, sem hefur fjórum sinnum verið í sam­búð og kvænst þrisvar sinnum, býr einn í kjall­ara­í­búð í Grjóta­þorp­inu. Hann seg­ist ekki sjá fram á að hann eigi eftir að búa aftur með konu. „Ég er orð­inn vanur því að vera einn. Það er bara svo­leiðis.“ Hann seg­ist aldrei verða ein­mana. „Ég elska að vera einn. Það er mitt bread and butter að vera einn í róleg­heit­unum og vera að sýsla í bókum eða tölv­unni og þess vegna að horfa pínu­lítið á sjón­varpið ef ég finn góða mynd eða seríu. Mér finnst vera rosa­lega gott að horfa á sorg­legar myndir og gráta pínu­lítið. Besta myndin til að gráta yfir heitir I’m Sam; Sean Penn leikur þroska­heftan mann sem er að ala upp dóttur sína. Myndin er dásam­leg. Ég horfi oft á hana.“

Mér finnst vera rosa­lega gott að horfa á sorg­legar myndir og gráta pínu­lítið.

Tómas seg­ist halda að hann sé mjúkur maður. Rosalega mjúkur maður.

Og honum þykir gaman að leysa sudoku-þrautir.

Upp­á­halds­matur Tómasar er ekki ham­borg­ari. „Ég fékk upp­á­halds­mat­inn minn í fyrsta skipti þegar ég var 13 eða 14 ára og það er svo skrýtin sam­setn­ing á mat að það reka allir upp stór augu þegar ég segi frá þessu. Það er flat­kaka með roast beef og rækju­sal­ati. Það er það besta. Það var búð við Hjarð­ar­haga sem seldi flat­kökur sem þeir fengu í bunkum og sem voru smurðar eftir hend­inni og svo voru þeir með salat, kjöt­á­legg og alls konar snarl og ég fékk þetta í fyrsta skipti í frí­mín­útum þegar ég var í Haga­skóla. Og það var eins og himn­arnir hefðu opn­ast. Þetta er því­líkt lost­æti og ég hef meira að segja borðað þetta á jól­unum. Fyrir utan þetta finnst mér humar vera góður.“

Flatkaka, roast beef og rækju­salt. Allt í einum graut. Má kannski að ein­hverju leyti líkja þessu við líf Tómasar sem hefur gengið í gegnum súrt og sætt? „Er það ekki bara? Ég er hvat­vís þannig að ég geri stundum hluti en ég ætti kannski stundum að hugsa mig betur um þannig að fyrir vikið er þeta svo­lít­ill hræri­grautur á köflum.“ Hvatvísi á eldri árum og hann tal­aði um óstýti­læti á æsku­ár­unum. Hann er spurður um ADHD. Mögu­leik­ann á því. „Ég fór í ADHD-próf fyrir nokkrum árum síðan og gerði alls konar þrautir og ég var dæmdur ekki með ADHD. Ég var svo­lítið hissa á því. Ég hélt ég hlyti að vera með ADHD en ég er það ekki. Ég heyrði mjög góða reglu um dag­inn sem ég reyni að fara eftir en man það ekki alltaf en hún er sú að ef ég fæ góða hug­mynd þá bíð ég þangað til dag­inn eftir að fram­kvæma hana. Og ef hún er þá jafn­góð eins og dag­inn áður þá get ég hugsað mér að fram­kvæma hana. Annars ekki.“

Tómas. Veit­inga­mað­ur­inn sem fer kannski á þing á átt­ræð­is­aldri. Hann er spurður hvernig hann vilji að fólk minn­ist sín. „Ég var tal­inn vera svo­lítið skrýt­inn í gamla daga. Ég var alltaf að spyrja. Á ein­hverjum tíma­punkti var ég kall­aður „Tommi af hverju“. Og núna nýt ég þess heið­urs að vera tal­inn sér­vitur. Fyrir utan það að ég vil að fólk minn­ist mín af því að ég átti gott sam­band við börnin mín sem ég elska mikið þá er ég alveg sáttur við það að vera tal­inn sér­vitri karl­inn sem bjó til góða ham­borg­ara.“

Ég hélt ég hlyti að vera með ADHD en ég er það ekki.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætluðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfsmenn“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætl­uðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfs­menn“

„Við vorum búnir að pæla í því í ein­hvern tíma hvernig hægt væri að koma með eitt­hvað nýtt inn á mat­vöru­mark­að­inn og við lágum yfir þessu á eld­hús­borð­inu. Pabbi hafði verið með snefil af ódýrum vörum í Aust­ur­veri; það var svona „afslátt­ar­þurr­vöru­mark­aður“ og við lögðum upp með þennan ein­fald­leika,“ segir Jón Ásgeir um það hvernig Bónus varð til en rætt...
Aníta Briem: „Krakkarnir, voru að fela sig í runnunum þegar hann kom og sótti mig“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Aníta Briem: „Krakk­arnir, voru að fela sig í runn­unum þegar hann kom og sótti mig“

„Ég var svo ótrú­lega heppin að ég fékk að spreyta mig svo­lítið í Þjóð­leik­hús­inu frá því að ég var níu ára gömul. Þá var ég fyrst í Emil í Katt­holti og lék þar Idu og var svo alveg í fjórum leik­sýn­ingum í Þjóð­leik­hús­inu, þannig að ég var ótrú­lega lánsöm að ég ein­hvern veg­inn fékk svo­lítið að kanna hvað leik­listin væri...
Tony var sakaður um mansal: „Íslendingar tóku mjög vel á móti mér, en ríkisstjórnin ekki“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Tony var sak­aður um man­sal: „Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki“

„Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki,“ segir Tony Omos í við­tali í nýju helg­ar­blaði Mannlífs. Tony Omos er nafn sem flestir Íslend­ingar kann­ast við. Tony er níger­íski hæl­is­leit­and­inn sem felldi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur úr stóli dóms­mála­ráð­herra árið 2014 vegna „Leka­máls­ins“ svo­kall­aða. Málið hafði gríð­ar­leg áhrif á Tony Omos og hans fjöl­skyldu enda var hann sak­laus sak­aður...
Ragnar Erling Hermannsson vill milljarð til að kaupa hús fyrir fíkla
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Ragnar Erling Her­manns­son vill millj­arð til að kaupa hús fyrir fíkla

Ragnar Erling Her­manns­son, Raggi Turner, talar í við­tali við Hörpu Mjöll Reyn­is­dóttur meðal ann­ars um hvers vegna hann fór út í neyslu, gisti­skýlið úti á Granda þar sem hann sefur á næt­urna, hann minn­ist á for­dómana í sam­fé­lag­inu, reynslu sinni af geð­deild og draum­inn um stórt hús jafn­vel fyrir utan Reykja­vík þar sem hægt væri að búa til sam­fé­lag. Og...
Margréti Esther misþyrmt með hestasvipum og naglaspýtum: „Skólasystir mín var stungin 18 sinnum“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Margréti Esther mis­þyrmt með hesta­svipum og nagla­spýtum: „Skóla­systir mín var stungin 18 sinnum“

Margrét Esther Erlu­dóttir fata­hönn­uður átti erf­iða æsku. Óregla var á heim­ilnu og frá unga aldri flakk­aði hún á milli fóst­ur­heim­ila. Hún segir að á einu þeirra, sveitabæ norður í landi, hafi tveir nauðgað sér auk þess sem hún hafi meðal ann­ars verið barin. „Þarna var ég algjör­lega eyðilögð. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Eins og stendur í...
Hanna Rún lamaðist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Hanna Rún lam­að­ist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina, tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu. „Það breytti öllu að verða móðir.“ Og parið dans­aði saman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu