„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hjólabrettamenningin á Íslandi í hnotskurn: „Þinn uppruni, litur og kyn skiptir engu“

Hjólabrettamenningin á Íslandi í hnotskurn: „Þinn uppruni, litur og kyn skiptir engu“

Fyrir um sex árum síðan var opn­aður inn­an­húss hjóla­bretta­garður á Duggu­vogi 8, Reykja­vík. Mannlíf sló á þráð­inn hjá Róberti Ingi­mars­syni, starfs­manni garðs­ins.

Ekki bara fyrir hjólabretti

Bretta­fé­lag Reykja­víkur byrj­aði með þetta verk­efni en fljót­lega tók athafna­mað­ur­inn Alex­ander „Lexi“ Kárason yfir. Stefna þeirra sem að hjóla­bretta­garð­inum standa er sú að gera iðk­endum jaðar­í­þrótta færi á að stunda íþróttir sínar allt árið um kring. „Rigning, vindur og snjór er ekki æski­legt fyrir hjólabretti eða neitt slíkt og þar sem hér a Ísland er liggur við vetur 3/4 af árinu, þá hafa þessir iðk­endur þurft að fela sig í bílakjöllurum og vera reknir í burt af örygg­isvörðum fast­eign­anna,“ segir Róbert við blaða­mann og bætir við að oft séu þessir bíla­kjall­arar skítugir og ekk­ert sér­stak­lega góðir staðir til að renna sér á. Stað­ur­inn er sem sagt ætl­aður fleiri jaðar­í­þróttum en bara hjóla­brettum. Má þá helst nefna skate, scoot og bmx.

Salurinn byggður af sjál­boða­liðum

Til að byrja með setti Lexi miklar fjár­hæðir úr eigin vasa í verk­efnið en sá fljót­lega að veru­legt fjár­magn og kraft þurfti til að halda þessu gang­andi. Róbert segir að viður kosti sitt „og allt hér hefur verið smíðað og af sjálfs­boða­liðum, eða frekar áhugasömum hjóla­brettamönnum sem vinna sem iðn­að­ar­menn,“ og heldur áfram „en þeir aðilar óskuðu aldrei eftir greiðslu, heldur gerðu þeir þetta ein­ungis til að byggja aðstöðuna sem öllum vantar. Þeir eiga mikin heiður skilið.“ Nefnir hann sér­stak­lega þá Ársæl Þór Ingv­ars­son, Davíð Þór Jóseps­son, Daða Snæ Har­alds­son og Róbert Vil­hjálms­son sem voru hvað mest í smíð­unum. Reykja­vík­ur­borg hefur stutt verk­efnið vel segir Róbert „enda vita þau að brýn þörf er á að styðja þessar greinar sem fara ört vax­andi.“

Stefna á sjálfbærni

Áhorf á Ólymp­íu­leik­ana hefur farið dvín­andi á und­an­förnum árum að sögn Róberts en eftir að hjóla­bretta­í­þróttin var tekin inn á leik­ana hafi áhorfið skot­ist upp. Sé það gott dæmi um það hversu stór íþróttin er að verða. Eins og fram kom hér að ofan hefur Reykja­vík­ur­borg styrkt verk­efnið upp að vissu marki en sal­ur­inn er á stærð við sund­laug. Einungis eru tveir starfs­menn við störf í salnum á samn­ing við Reykja­vík­ur­borg en aðeins einn í einu. Þeir þurfi að vera í afgreiðsl­unni og þrífa allt húsið reglu­lega. „Þetta lætur mig stundum hugsa út i það hvernig væri það að það væru bara tveir gæjar að vinna i vest­ur­bæj­ar­laug­inni, einn i senn a sitt­hvorri vakt­inni,“ segir Róbert og bætir við „en það er stuðn­ing­ur­inn sem við höfum og við erum ánægður með hann.“ Róbert segir þá félaga þó stefna á sjálf­bærni í fram­tíð­inni.

Einelti ekki liðið hér

Það bæt­ist stöðugt í hóp iðk­enda og á góðum degi er troð­fullt í salnum að sögn Róberts, „þá er gaman sjá eldri krakk­ana umkringja þá yngri með hvatn­ingu og kennslu, ́ágrein­ingur er sjald­gæfur og ein­elti er ekki liðið hér.“ Róbert bætir því við að það sé gaman að sjá hvað slíkt sé sjald­séð í þeirra menn­ingu, „þessir krakkar eru mest i að styðja hvort annað og hjálpa frekar en að kepp­ast um hver er bestur. Þinn upp­runi, litur og kyn skiptir engu.“ Þá segir hann enn­fremur að „eina sem skiptir máli er hvað þú gerir a brett­inu og það er magnað.“

Aðgangs­eyr­inum inn í bretta­garð­inn er stillt í hóf, aðeins 500 kr. fyrir allan dag­inn. „Við erum ekki að reyna hagn­ast á þessu, heldur fá sem flesta inn i félagið og hjalpa þessum hópum að hitt­ast, þróast og stækka,“ segir Róbert að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kúltúrinn

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“
Menning

Hund­ur­inn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dof­inn yfir þessum missi“

Hollywood-stjarnan Dwayne „The Rock“ Johnson minn­ist hunds­ins síns, sem lést í gær. Ein stærsta Hollywood-stjarnan, á tvenna vegu, Dwayne „The Rock“ Johnson birti í morgun ljúfsárar ljós­myndir af hund­inum hans, Hobbs, sem lést í gær, á Instagram-reikn­ingi sínum. „Hvíl í friði, Hobbs. Ég hef verið dof­inn yfir þessum missi, en við erum svo þakk­lát fyrir hvern ein­asta eyri af hreinni...
DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“
Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugn­an­legar lík­kistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

DJ Khaled er orð­inn nýj­ast stjarnan til að fá afhenta óhugn­an­lega lík­kistu heim til sín í Flórída. Áður hafði Tekashi 6ix9ine fengið slíka send­ingu á höfð­ingja­setur sitt nokkrum dögum fyrr. Hin óhuggu­lega lík­kista var send að heim­ili Khaleds í Miami síð­ast­lið­inn laug­ar­dag, af tveimur mann­eskjum sem keyrðu trukki til örygg­is­varðar, og sögð­ust vera frá send­ing­ar­fyr­ir­tæki, sam­kvæmt lög­reglu­skýrslu. Eftir að þeim...
Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans
Menning

Myrkvi gefur út þriðju breið­skífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tím­ans

Tón­list­ar­mað­ur­inn Myrkvi gefur út þriðju breið­skífu sína á morgun en nafn hennar er Rykfall. Rykfall, þriðja breið­skífa Myrkva, er afrakstur margra ára vinnu. Hún er sjálf­stæð­asta verk lista­manns­ins til þessa en nán­ast hvert smá­at­riði plöt­unnar er spilað eða útsett af honum. Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu var mark­miðið að skapa eitt­hvað sem gæti stað­ist tím­ans tönn. Platan fjallar um að leggja allt undir...
Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza
Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórn­ar­lömb þjóð­ar­morðs­ins á Gaza

Stór­tón­leikar verða haldnir í Háskóla­bíói laug­ar­dag­inn 1. mars kl. 14:00. Ágóði af miða­söl­unni rennur í verk­efnið Gervi­fætur til Gaza. Laug­ar­dag­inn 1. mars efni Félagið Ísland-Palest­ína til stór­tón­leika í Háskóla­bíó þar sem fram koma Bubbi, GDRN, Friðrik Dór, Jón Jónsson, KK og Ellen og hljóm­sveitin FLOTT! Samkvæmt frétta­til­kynn­ing mun ágóði af miða­sölu renna í verk­efnið Gervi­fætur til Gaza sem stofnað var...
The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“
Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tíma­lausum smellum og anda kán­trítón­listar“

Fyrir fjöru­tíu árum, árið 1985, varð kán­trítón­listar saga sköpuð þegar fjórir af bestu tón­lista­mönnum allra tíma, Johnny Cash, Waylon Jennings, Willie Nelson og Kris Kristoffer­son, komu saman til að stofna The Highwaymen. Samstarf þeirra var sam­stundis far­sælt, leiddi til upp­seldra tón­leika, toppplatna og var­an­legrar arf­leifðar sem mót­aði fram­tíð kán­trítón­listar. Kraft­mik­ill og hjart­næmur hljómur þeirra ómaði um allan heim og nú,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza