„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Forstöðumenn sundlauga sakaðir um einelti og hentistefnu

Forstöðumenn sundlauga sakaðir um einelti og hentistefnu

Starfs­hættir Hafliða Guð­jóns­sonar, for­stöðu­manns Breið­holts­laugar, eru til skoð­unar hjá ÍTR eftir að í ljós kom megn óánægja meðal und­ir­manna hans, þar sem for­stöðu­mað­ur­inn er meðal ann­ars sak­aður um ein­elt­istil­burði. Aðeins 15 pró­sent starfs­manna laug­ar­innar svör­uðu því til að þeir væru ánægðir með yfir­mann­inn. Ein­hverju skárra er ástandið í Graf­ar­vogs­laug en for­stöðu­mað­ur­inn þar, Hrafn Þór Jörg­en­sen, er einnig til skoð­unar hjá ÍTR.

Reykja­vík­ur­borg mælir reglu­lega við­horf starfs­fólks til starfs­um­hverfis, sam­skipta og stjórn­un­ar­hátta.  Við­horfskönnun var lögð fyrir starfs­fólk Reykja­vík­ur­borgar dag­ana 1. mars – 25. mars síð­ast­lið­inn. Nið­ur­stöð­urnar eru nýttar til að við­halda og skapa í senn betra starfs­um­hverfi  fyrir starfs­fólk sem vinnur í þágu borg­ar­búa. Í við­horfskönn­un­inni er meðal ann­ars kannað hvort starfs­fólk hafi upp­lifað áreitni, ein­elti eða ofbeldi, en einnig er kannað við­horf starfs­fólks til stjórn­un­ar­hátta stjórn­enda á vinnu­staðnum.

Skemmst er frá því að segja að for­stöðu­menn­irnir tveir komu illa út úr síð­ustu könnun þar sem þeir eru sak­aðir um ein­elt­is­mál, slæ­leg sam­skipti við und­ir­menn og tak­mark­aða upp­lýs­inga­gjöf. Í kjöl­far gula spjalds­ins hafa verið haldnir fundir með öllum starfs­fólki laug­anna tveggja með það fyrir augum að bæta and­rúms­loftið á vinnu­stöð­unum.

Vinnunni stýrir Margrét Grét­ars­dóttir, mannauðs­stjóri ÍTR, og eftir því sem Mannlíf kemst næst tók hún per­sónu­leg við­töl við starfs­fólk laug­anna. Eins og áður sagði komu nið­ur­stöðu könn­un­ar­innar ekki vel út fyrir for­stöðu­mann Graf­ar­vogs- og Breið­holts­laugar. Í nið­ur­stöð­unum kom einnig fram að karl­kyns­starfs­menn Graf­ar­vogs­laugar séu mjög óánægðir með yfir­gang kven­kyns­starfs­manna laug­ar­innar.

Sama sagan er í Breið­holts­laug, en þar fær for­stöðu­mað­ur­inn Hafliði slæma útreið. Hann fær ein­ungis um 15 pró­sent svar­enda sem segj­ast ánægðir með störf for­stöðu­manns­ins.  Blaða­manni Mannlífs var tjáð af starfs­manni Breið­holts­laugar að: ,,Hafliði taki á starf­manna­mál­unum eftir sínu höfði”.

Í sam­tali við Mannlíf seg­ist Margrét mannauðs­stjóri líta málið alvar­legum augum og bætir því við að þau séu að vinna í því með við­tölum við starfs­menn. Að öðru leyti vill hún ekki ræða ein­staka starfs­staði eða ein­staka starfs­menn ÍTR.

Þrátt fyrir marg­ít­rek­aðar til­raunir Mannlífs þá létu for­stöðu­menn laug­anna, Hafliði og Hrafn, ekki ná í sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins