„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gunnar Smári lifir á séreignarsparnaðinum: „Ég er atvinnulaus, ég er tekjulaus og ég er eignalaus“

Gunnar Smári lifir á séreignarsparnaðinum: „Ég er atvinnulaus, ég er tekjulaus og ég er eignalaus“

Gunnar Smári Egilsson, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins og odd­viti flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður, var gestur Reynis Trausta­sonar í hlað­varp­inu Mann­lífið.

„Ég á ekki bót fyrir bor­una á mér, eins og sagt er,“  segir Gunnar Smári, aðspurður um það hvort hann sé ekki auð­ugur maður.

Hann á ekki heldur hús. Húsið sitt varð hann að selja upp í skuldir eftir að Frétta­tím­inn, þar sem Gunnar Smári var bæði eig­andi og rit­stjóri, fór á haus­inn.

„Ég leigi núna, á Smiðju­stígnum.“

„Og ég er ekki með neinar tekjur. Ég bara át húsið mitt – svona her­bergi fyrir her­bergi. Svo er ég búinn að vera að éta sér­eigna­sparn­að­inn minn. Þannig að ég er atvinnu­laus, ég er tekju­laus og ég er eigna­laus. En ég þarf alltaf að vera að svara fyrir það að ég sé ein­hver stór kap­ít­alisti,“ segir Gunnar Smári og hlær.

Þegar hann er spurður að því hvort ekki sitji eitt­hvað eftir, hvort hann lumi til dæmis á eignum í skatta­skjóli, er Gunnar Smári afdrátt­ar­laus í svörum og segir svo ekki vera. Hann eigi að vísu örlítið eftir af sér­eign­ar­sparn­aði sínum, en þess utan eigi hann bara líf­eyr­is­sjóð­inn sinn.

 Þegar hann er spurður út í hvort honum þyki það ekki óþægi­leg staða til að vera í segir hann að svo sé.

„Jú, ég þurfti að hugsa þetta sko, á sínum tíma. Af því að dóttir mín er bara fjórtán ára.“ Dóttir Gunnars Smára heitir Sóley, en hún er ætt­leidd frá Tógó í Afríku.

 „Ég hugs­aði: get ég gert þetta? Bara haldið áfram að byggja upp Sós­í­alista­flokk­inn, gefið honum allt mitt líf. Gefið honum tengsla­netið mitt, alla get­una mína og eitt­hvað fleira. Get ég gert þetta? Verð ég ekki að fara og beygja mig ein­hvers­staðar í duftið og skríða fyrir ein­hvern kap­ít­al­isma og fá vinnu ein­hvers­staðar til að eiga pen­inga til þess að tryggja Sóley betri fram­tíð? Kannski er það eig­in­gjarnt, en ég hugs­aði bara sem svo að það er betra fyrir Sóley að ég sé heið­ar­legur, að ég taki þátt í bar­átt­unni og falli þá bara við það, heldur en að ég beygi mig. Það er betra vega­nesti fyrir börnin mín heldur en að ég erfi þau að ein­hverjum gömlum Skoda.“

Gunnar Smári seg­ist vera eld­heitur sós­í­alisti í hjart­anu. Hann rifjar upp æsku sína og það hvernig hann hafi í raun alltaf verið sós­í­alisti, frá blautu barns­beini.

„Ég var í villta vinstr­inu þegar ég var svona fjórtán, fimmtán, sextán.“

Gunnar Smári heldur áfram:

„Ég man þegar ég var tólf ára, þá var ég svona heima­gangur á heim­ili Péturs Sig­urðs­sonar alþing­is­manns sem sat á þingi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn og við rif­umst um póli­tík. Ég man að ein­hvern tíma hróp­aði hann á mig: „Haltu kjafti og lestu Moggann með poka yfir hausnum!“ Þannig að eitt­hvað hef ég verið að trufla þá.“

Gunnari Smára þykir ganga of hægt að reyna að knýja fram breyt­ingar í gegnum blaða­mennsku. Það þekkir hann vel í gegnum feril sinn. Það breyti líka miklu um afstöðu og hug­myndir að hefja starfs­feril í blaða­mennsku.

„Svo nátt­úru­lega þegar maður fer í blaða­mennsku þá yfir­gefur maður svo­lítið allar þessar hug­myndir. Það er bara þannig. Og svo hittir maður þær aftur þegar ég allt í einu átta mig á því að það er ekki hægt að breyta heim­inum með því að upp­lýsa um stöðu mála. Sjáðu með Samherja. Þjóðin er búin að fá að vita þetta allt saman. En hvað er að frétta? Ekki neitt.“

Hann heldur áfram:

„Ég bara missti trúna, sér­stak­lega þegar ég tók eftir því hjá Frétta­tím­anum að þeir sem stjórn­uðu aug­lýs­ing­unum gátu bara hoggið fæt­urna undan okkur. Og ég hugs­aði: þetta er bara sjálfs­blekk­ing.“

Hann horfir á blaða­mann­inn fyrir framan sig:

„Ég er ekk­ert að segja að.. sko, þú mátt alveg halda áfram í blaða­mennsku. Þetta er bara per­sónu­legt sem við gerum hver upp fyrir sig og ég bara missti trúna.“

Eins og vinstrið trúi ekki að þau eigi að fara með vald

Gunnar Smári er ómyrkur í máli þegar talið berst að hægri öflum lands­ins. Hann hefur lengi verið þekktur fyrir að herja á Sjálf­stæð­is­flokk­inn, hægrið og kap­ít­alið. Nú er greini­lega svo komið að rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins stendur stuggur af Gunnari Smára og Sós­í­alista­flokknum, því hann hefur lagt sér­staka áherslu á að ráð­ast að þeim und­an­farið í skrifum sínum.

„Valhöll og hægrið, þau munu aldrei veigra sér við að nota vald sitt. Það hefur ekki verið vanda­mál hér að vinstrið hafi verið að nota vald sitt. Tökum bara Katrínu Jak­obs­dóttur, þegar hún fer inn í for­sæt­is­ráðu­neytið. Hvern ræður hún til þess að sjá um stjórn­ar­skrár­breyt­ing­arnar? Fyrr­ver­andi þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Vinstrið, það er eins og þau trúi ekki að þau eigi að fara með vald. Í hvert skipti sem þau hafa tæki­færi til þess fara þau að ráða hægri­menn alveg á fullu. Maður sér þetta stundum í svona umræðum og svona, hvern vinstrið kallar til, til þess að stjórna umræð­unum. Það eru alltaf ein­hverjir hægri.. Sigmar Guð­munds­son eða eitt­hvað, að stjórna umræðum fyrir hönd Alþýðu­sam­band Íslands. Hvaða grín er þetta?“

Enginn einkabílstjóri

Þegar Gunnar Smári er spurður um það hvernig ráð­herra hann yrði og hvort hann myndi vera með einka­bíl­stjóra, svarar hann því skýrt og skor­in­ort á þann veg að Sós­í­alista­flokk­ur­inn sé með það í stefnu sinni að hætta með einka­bíl­stjóra. Aðspurður enn frekar um það hvort hann myndi sjálfur hafna einka­bíl­stjóra, jafn­vel þó það stefnu­mál næði ekki í gegn almennt, segir hann svo vera.

„Já auð­vitað, það er bara skammar­legt. Það er eins og að eiga þræl, að vera með svona. Og í gegnum tíð­ina hefur maður hitt ráð­herra og borg­ar­stjór­ann og svona, sem eru með þessa aðstoð­ar­menn sína með. Mér finnst þetta svo nið­ur­lægj­andi. Fólk fer eitt­hvað inn í Kastljós og svo kemur það út og svo kemur aðstoð­ar­mað­ur­inn til þeirra og „djöf­ull stóðstu þig vel“ og svona. Þetta er eins og að eiga svona aðdá­anda númer eitt, þetta er bara… þetta er svo nið­ur­lægj­andi. Það er margt í kringum stjórn­málin sem er svona, hug­mynd um svona status og stöðu og svona. Það er bara óvið­kunn­an­legt.“

Einkaþotan, Dagsbrún og hamingjan

Talið berst að einka­þot­unni, sem Gunnar Smári þáði far með þegar hann var rit­stjóri Frétta­blaðs­ins og for­stjóri fjöl­miðla­sam­steypunnar Dags­brúnar. Nýlega var sú saga dregin fram í dags­ljósið í bók­inni Málsvörn Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar eftir Einar Kárason. Á þessum tíma unnu þeir Gunnar Smári og Jón Ásgeir saman að útgáfu frí­blaðs­ins Nyhedsa­visen, en Jón Ásgeir var eig­andi Dags­brúnar, sem var afsprengi sam­ein­ingar Frétta­blaðs­ins og fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins Norð­ur­ljósa. Gunnar Smári hefur sagt frá því í fjöl­miðlum að þegar verið var að vinna að útgáfu Nyhedsa­visen hafi hann mikið þurft að fara á milli Íslands og Dan­merkur. Yfir­leitt hafi hann flogið með Icelandair, en það kom fyrir að ekki væri nægur tími fyrir hann til þess að fljúga á milli land­anna með hefð­bundnum hætti. Þá hafi Jón Ásgeir boðið honum far með þot­unni, sem hann hafi þegið. Jón Ásgeir hafði skotið föstum skotum á Gunnar Smára í bók­inni og sagt hann helst ekki hafa nennt til Dan­merkur öðru­vísi en í einka­þotu. Því hefur Gunnar Smári vísað til föð­ur­hús­anna.

Ertu ham­ingju­sam­ari núna heldur en þegar þú sast í einka­þot­unni, sem var að vísu leigu­bíll?

„Ég man ekki alveg hvaða tími þetta var, ég held að þetta hafi verið þegar þeir felldu Dagsbrún. Málið var það með Dagsbrún, að það var stjórn­ar­sam­þykkt fyrir því að kaupa tvö­falt og þrefalt efna­hags­reikn­ing­inn, sem þýðir bara að kaupa fyr­ir­tæki. Og það nátt­úru­lega þýðir meiri skuldir og hlut­haf­arnir ætl­uðu að koma með eignir á móti, nýtt eigið fé. Þeir höfðu reiknað með því að þetta myndi bara hækka verðið á hluta­bréf­unum og þeir gætu tekið lán út á hækk­un­ina og borgað það inn sem hlutafé. Síðan kom litla kreppan á Íslandi um pásk­ana 2006 þannig að hluta­bréfin lækk­uðu, en hækk­uðu ekki. Og þá þurftu þeir að finna ein­hverja leið. Þeir áttu ekki þessa pen­inga sem þeir ætl­uðu að leggja inn og hefði aldrei dottið í hug að leggja eigið fé, þeir ætl­uðu bara að sækja það í Lands­bank­ann eða Kaupþing og láta þarna inn. Þannig að þeir fóru í ein­hverjar rosa­legar æfingar við að kljúfa fyr­ir­tækið.“

Hann heldur áfram:

“Þannig að ég var ekki ham­ingju­samur á þessum tíma. Maður hugs­aði bara: hvaða steypa er þetta? Og það er líka eins og mér fannst á þessum tíma, alveg eins og ég er að tala um núna, að ég er eigna­laus, atvinnu­laus en allir halda að ég sé kap­ít­alisti. Stundum er það þarna úti, að þú nærð ekk­ert að breyta neinu. Þannig að ég vissi það að þó að ég myndi stíga fram á þessum tíma og segja: heyrðu þessir menn eru að hlaupa frá sjö millj­arða hluta­fjár­lof­orði… það hefði eng­inn hlustað á mig.“

„En ég var ekki ham­ingju­samur þarna, nei.“ Hann hugsar sig örlítið um. „Eða, ég var alveg ham­ingju­samur, ég var bara undir miklu álagi og erf­ið­leikum. En ég hef alltaf verið ham­ingju­samur.“

Kom beyglaður úr æskunni

Þegar Gunnar Smári er spurður að því hvort hann sé sátt­ari við sjálfan sig núna en hann var þá, hugsar hann sig um. Hann segir það rangt ef hann segð­ist alltaf vera sáttur.

„Af því ég ólst upp í, ég hef oft sagt frá þessu, en ég ólst upp í fátækt og svo skömm. Þannig að þá kemur maður svo­lítið beyglaður úr æsk­unni og það tók mig svo­lítið langan tíma að verða sáttur við það, verða sáttur við for­eldra mína og upp­runa minn og svona. En frá 33 ára aldri er ég bara búinn að vera mjög ánægður með að fá að drusl­ast um heim­inn í þessu formi.“

„Hvert augnablik er ólétt af mörgum framtíðum“

Þegar Gunnar Smári er spurður út í það hvernig hann sjái næstu tíu ár og hvort hann sé ekki maður sem skipu­leggur og hugsar dálítið langt fram í tím­ann, seg­ist hann ekki gera mikið af því.

„Nei, ég nefni­lega hugsa ekki svona langt. Vegna þess að hvert augna­blik er ólétt af mörgum fram­tíðum. Þannig að ef þú ætlar að fara að hugsa of marga leiki fram í tím­ann þá gæt­irðu farið að þröngva þeirri línu í gang og ekki tekið eftir tæki­færum sem þú hefur ann­ars­staðar. Þannig að ég hugsa ekki svona. Ég veit alveg svona sirka hvert við erum að fara með hreyf­ing­una, byggja upp breiða hreyf­ingu. Og ég veit að það mun fylgja því mikið afl og miklar sam­fé­lags­breyt­ingar. Hversu miklar fer eftir ýmsu.“

Gunnar Smári und­ir­strikar það að honum henti ekki að skipu­leggja lífið of langt fram í tím­ann:

„Ég til dæmis get ekki teflt skák, ég hef ekki þol­in­mæð­ina,“ segir hann og hlær.

Hér má hlusta á við­talið við Gunnar Smára í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kvöldviðtal Mannlífs

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síðasta skipti: „Ég er að berjast í þessu“
Menning

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síð­asta skipti: „Ég er að berj­ast í þessu“

Geir Ólafsson heldur á næst­unni sjö­unda árið í röð stór­sýn­ing­una Las Vegas Christmas Show í Gamla bíói og fer hann sem endranær á kostum ásamt hljóm­sveit Don Randi og gesta­stjörnum. Randi, sem mætir með sitt „big­band“, hefur starfað með ýmsum banda­rískum stjór­stjörnum og má þar nefna Elvis Presley, Frank Sinatra, Phil Spector, The Beach Boys, Nancy Sinatra og Michael Jackson....
Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geðræn vandamál“
InnlentKvöldviðtal Mannlífs

Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál“

„Ég var alveg svo­lítið erf­iður ung­lingur“ segir Diljá Pét­urs­dóttir söng­kona og þátt­tak­andi fyrir Íslands hönd í Eurovision 2023. „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál,“ svarar hún, í við­tali hjá Reyni Trausta­syni, aðspurð hvort hún sé trúuð og segir það helstu ástæðu þess að hún hafi hald­ist svo lengi innan kirkj­unar. Diljá byrj­aði ung að syngja í kirkjukór...
Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jólaflóðinu: „Mér finnst gaman á jólum“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jóla­flóð­inu: „Mér finnst gaman á jólum“

Feðginin Illugi Jök­uls­son og Vera Ill­uga­dóttir eru dýrkuð og dáð sem dag­skrár­gerð­ar­fólk í útvarpi. Þau eru þó að sýsla ýmis­legt annað og nú fyrir jólin er Illugi með tvö spil og þrjár bækur í jóla­bóka­flóð­inu. Eina þeirra, bók­ina Dýrin, skrif­uðu þau feðginin saman. „Við Vera tókum saman og skrif­uðum bók­ina um dýrin, ein­fald­lega af því dýr eru svo skemmti­leg og...
Trausti með tvö skemmtileg jólaspil í verslunum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Trausti með tvö skemmti­leg jóla­spil í versl­unum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“

„Hvað er ég eig­in­lega búinn að koma mér út í?“ spyr Trausti Haf­steins­son spila­út­gef­andi sig reglu­lega þessa dag­ana en hann gefur ekki bara út eitt heldur tvö íslensk borð­spil fyrir þessi jól. Spilin tvö eru Gettu betur spurn­inga­spilið og skemmtispiliið Hræri­grautur. Gettu betur og Hræri­grautur eru komin í versl­anir í tak­mörk­uðu upp­lagi. Íslensk spil hafa einmitt verið valin jóla­gjöf árs­ins...
Móðir heimilislauss manns stígur fram og krefst breytinga: „Við höfum verið með lögregluvernd“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Móðir heim­il­is­lauss manns stígur fram og krefst breyt­inga: „Við höfum verið með lög­reglu­vernd“

Á Íslandi er tals­verður fjöldi heim­il­is­lausra og lítið um úrræði fyrir þennan hóp. Fólk á öllum aldri leita í athvörf og gisti­skýli sem ætluð eru heim­il­is­lausum. Mannlíf ræddi við móður 25 ára manns sem neyð­ist til að leita í gisti­skýlið á Lind­ar­götu en þar er aðstaða fyrir 25 karl­menn. „Ég hef ekk­ert sam­band við hann nema ein­staka sinnum þegar hann...
Samúel er að gera frábæra hluti í tónlistinni: „Tónlist með mikinn persónuleika höfðar til mín“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Samúel er að gera frá­bæra hluti í tón­list­inni: „Tónlist með mik­inn per­sónu­leika höfðar til mín“

Samúel Reyn­is­son er ungur og efni­legur tón­list­ar­maður frá Hafn­ar­firði, mennt­aður píanó­leik­ari sem spilar einnig á fjölda ann­arra hljóð­færa. Mannlíf sett­ist niður með Samúel og frædd­ist um líf hans og list, en hann seg­ist njóta matar- og kok­teil­gerðar í botn og er alveg að ná tökum á inn­an­húss garð­yrkju. Samúel, segðu mér aðeins frá því hvaðan þú kemur, frá æsk­unni, námi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu