„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Helga jógakennari segir marga óttast að ræða kynlíf eða sjálfsfróun: „Kynorka er lífsorkan okkar“

Helga jógakennari segir marga óttast að ræða kynlíf eða sjálfsfróun: „Kynorka er lífsorkan okkar“
Ljós­mynd­ari: Ásta Krist­jáns­dóttir

„Ég trúi því svo inni­lega að við megum og raun­veru­lega þurfum að fá að vera allt sem við erum, að kynn­ast öllum hliðum okkar, líka þeim sem þykja ekki eins við­ur­kenndar. Þetta hljómar ein­falt en því miður er vega­nesti okkar flestra að við fengum og fáum mjög mikið af skila­boðum um hvaða hliðar okkar eru við­ur­kenndar og hverjar ekki“ segir Helga Snjólfs­dóttir jóga­kenn­ari.

Blaða­maður Mannlífs hafði sam­band við Helgu sem hefur síð­ustu miss­eri starfað undir merkjum Allt sem þú ert. Eina alvöru­mark­miðið sem starf Allt sem þú ert hefur er að styðja fólk í að vera meira það sjálft, fella grímur og fækka hlut­verkum – að geta verið sönn okkur sjálfum í öllum aðstæðum. Starf­semin er svo nám­skeið og við­burðir, á sviði jóga og svo með­vit­aðrar kyn­hegð­unar (e. conscious sexu­ality) – allt sem teng­ist með­vit­aðri nálgun á kyn­líf, sam­skipti og nánd. Einnig býður Helga upp á einka­við­töl um kynorku og nánd fyrir ein­stak­linga og pör.

„Flest okkar heyrðu til dæmis í barn­æsku „láttu ekki svona!“ (eða sam­bæri­lega frasa) þegar við vorum leið/reið/frek/kát/feimin/æst og svo má áfram telja, það kenndi okkur að rit­skoða líðan okkar og hegðun til að hlífa umhverf­inu“.

Fann kynorku streyma um líkamann

„Veg­ferðin inn á þessa braut byrj­aði eftir örlaga­ríka ferð til Liverpool haustið 2018 með bestu vin­konu minni! Við fórum tvær á 3ja daga nám­skeið þar sem við vorum í 80 manna hópi að dansa svo­kall­aðan 5ryt­hms dans. Á svona nám­skeiði er mjög sam­þykkt að fólk bresti í grát, öskri eða hlæi, sýni alls kyns til­finn­ingar. Á dans­gólf­inu fer ég svo að finna kynorku streyma um lík­amann, unaðs­strauma raun­veru­lega og heyri skýr skila­boð innra með mér um að það sé ekki við­eig­andi hér í marg­menni. Á sama tíma fann ég að sann­leikur minn var að auð­vitað væru þessar til­finn­ingar jafn við­eig­andi og allar hinar, að þetta væri bara mitt og mætti alveg flæða um mig. Annað sem ég hugs­aði var að ef ég væri í karl­manns­lík­ama og væri með stand­pínu, hvernig væri það, þyrfti ég að fela það? Þarna runnu í gegnum huga minn alls konar gamlar sögur og hugs­anir sem tengj­ast hömlum og skil­yrð­ingum í kringum það að vera kyn­vera. Það sem stóð upp úr var að þetta var svo mikið bull og hlaðið skömm og sekt­ar­kennd fyrir það eitt að vera kyn­vera“.

„Ég kom heim úr þess­ari ferð og fór á google og leit­aði að „sexu­ality & sensu­ality“. Þar hófst magnað ferða­lag sem er enn í gangi. Algjör umbreyt­ing og end­ur­skoðun á við­horfum mínum og skil­yrð­ingum í sam­bandi við að vera kyn­vera, og mann­eskja! Þegar þarna er komið við sögu er ég búin að vera á and­legri braut frá ung­lings­aldri þegar ég kynnt­ist jóga“.

Ég upp­lifði margt sem gerði mig for­vitna.

„Ég var líka mikil efa­hyggju­mann­eskja á þessum árum og trúði ekki á neitt. Heim­ur­inn var mjög svart­hvítur í mínum augum. Svo byrj­aði ég að upp­lifa ýmis­legt á jóga­dýn­unni sem gerði mig for­vitna og sú for­vitni um að til­veran væri marg­slungn­ari og dul­ar­fyllri en ég hafði trúað dró mig áfram. Ein sterk minn­ing er að liggja í slök­un­ar­stöðu í lok æfingar og upp­lifa sterkt að ég væri nátt­úra, haf, fjöll og him­inn allt í senn!“

„Nú hef ég verið jóga­iðk­andi hálfa ævina og jóga­kenn­ari fjórð­ung ævinnar en ég rækt­aði jóga­iðkun sam­hliða verk­fræði­námi og síðar starfs­frama í Össuri“.

Vorið 2018 ákvað Helga að segja starfi sínu hjá Össuri lausu og ein­beita sér að ástríðu sinni sem er að styðja við vellíðan nútíma­fólks með það að leið­ar­ljósi að það er hægt að lifa and­legu og inni­halds­ríku lífi í nútíma sam­fé­lagi. Til þess þarf þó þjálfun og æfingu í að þekkja sjálfan sig og hvað skiptir mann mestu máli og velja og hafna í sam­ræmi við það.

Fyrsta nám­skeið Allt sem þú ert var Kvenna­Kraftur – end­ur­heimt þar sem Helga byggir á eigin reynslu af kulnun og notar jóga bak­grunn­inn til að skapa nær­andi nám­skeið fyrir konur sem af ein­hverjum ástæðum þurfa að byggja sig upp.

„Svo í fram­haldi af þess­ari upp­götvun minni um kyn­ver­una, að hún væri í raun nið­ur­bæld hjá mér og mörgum öðrum, fór ég að læra meira og sótti mér þjálfun á þessu sviði. Haustið 2019 steig ég stórt skref og fór af stað með nám­skeið fyrir konur sem heitir Kven­leiki, nánd, kynorka! Það er búið að vera ótrú­lega dýr­mætt að leiða fjöld­ann allan af konum í gegnum það 6 vikna ferða­lag um þessa mik­il­vægu þætti til­ver­unnar sem er allt of lítið fjallað um. Síðan þá hef ég haldið ýmsa við­burði og nám­skeið fyrir ein­stak­linga og pör sem allir fjalla um sam­skipti, nánd og kyn­ver­und. Ég býð svo líka upp á einka­tíma fyrir ein­stak­linga og pör“.

Það sem Helgu finnst standa mest upp úr á þessu „ferða­lagi“  vera teng­ing við sjálfa sig. „Ég þekki mig betur og elska mann­eskj­una sem ég er, með öllum mínum kostum og brestum. Þetta hefur svo kennt mér sam­kennd, að taka fólki eins og það er, og það tekst orðið yfir­leitt“.

„Þessi sjálfs­þekk­ing styður mig svo við að velja hvað ég vil gera hverju sinni og nýt þess að vera meira og minna laus við að þurfa sam­þykki frá öðrum. Sem svo leiðir að því að setja mörk, sem því miður okkur er fæstum kennt, ég veit núna að ég set mörk fyrir sjálfa mig og ber ábyrgð á að virða þau og tjá eftir þörfum og þarf að treysta því að aðrir sjái um að setja sín mörk“.

Brjóta upp hversdaginn

Helga talar um að vanda­málin sem fólk er að koma með til hennar séu að sjálf­sögðu af mis­jöfnum toga. „Stór hluti finnur eitt­hvað svona kitl, finnur að það er eitt­hvað meira, er sjálft búið að finna þetta sem ég fann að það eru ein­hverjar innri hömlur, skil­yrð­ingar, eitt­hvað sem við bara fengum í gegnum upp­eldi, umhverfi, sam­fé­lag og menn­ingu, sem er ekk­ert endi­lega satt, að minnsta kosti ekki fyrir okkur.

Annar hluti er bara for­vitnin eða með ein­lægan áhuga á nánd og sam­skiptum. Svo þessir sem eru alltaf til í að gera eitt­hvað nýtt eða nýstár­legt, brjóta upp hvers­dag­inn og víkka sjón­deild­ar­hring­inn. Svo eru það auð­vitað þau sem virki­lega finna fyrir þungum far­angri, skömm, sekt­ar­kennd og ótta í sam­bandi við að vera kyn­vera og þurfa hjálp við að finna sátt og frelsi“.

„Flestir eru hræddir eða að minnsta kosti stress­aðir fyrir að byrja að skoða þessa hluti. Eitt er að byrja að tala um kyn­hegðun og nánd og þurfa jafn­vel að rifja upp hluti eins og fyrstu kyn­lífs­reynsl­urnar eða tala um sjálfs­fróun. Annað er til­hugs­unin um að breyt­ast, það getur verið mjög ógn­vekj­andi, hvað þýðir það ef ég og við­horf mín breyt­ast? Hvað ef ég upp­götva að líf mitt er ekki eins og ég óska mér? Hvað ef ég er ekki það sem ég hélt? Mun fólkið í lífi mínu ennþá elska mig?“.

„Kynorka er lífs­orkan okkar, orkan sem drífur okkur áfram og meðal ann­ars getur skapað nýtt líf, heila nýja mann­eskju. Þessi til­finn­ing að finn­ast maður lif­andi, sem er því miður ekki alltaf til staðar, er þegar lífs­orkan flæðir.

Því miður hefur fók­us­inn í okkar umhverfi verið mjög mikið á hug­ann, afrakstur og árangur og þar með teng­ing við lík­amann okkar, orku og skynjun mjög mikið týnst. Með því að læra betur á ork­una okkar getum við víbrað af lífi og upp­lifað dýpri teng­inu við okkur sjálf og umhverfi okkar“.

Fyrsta er að virkja næmni líkamans og skynjun

Fyrsta verk­efnið sem ég tek fyrir með flestum sem koma til mín er að byrja virkja næmni lík­am­ans og skynjun, að með­vitað snerta lík­ama sinn og finna fyrir honum

Helga talar um að því miður virð­ast margir upp­lifa skömm í kringum þessi mál­efni.

„Það sem kemur fyrst upp í hug­ann eru þær fjöl­mörgu konur sem þekkja pík­una sína ekki, hafa mögu­lega ekki skoðað hana eða kannað hana, finnst hún ekki líta ‚rétt‘ út, lyktin af henni vond og svo má lengi halda áfram. Að kyn­færin eru bara þarna og mögu­lega bara könnuð af ein­hverjum öðrum, aldrei skoðuð og heiðruð fyrir það sem þau eru og snert bara til að snerta þau ekki bara til að fá unað eða full­næg­ingu“.

„Frá karl­mönnum hef ég meira upp­lifað skömm í kringum frammi­stöðu ýmis konar, til dæmis ris­vanda­mál, pressu á að full­nægja kyn­lífs­fé­laga, ótti við að mis­stíga sig og fara yfir mörk. Vil samt leggja áherslu á að þetta er ekki klippt og skorið og getur átt við um alla óháð kyni“.

„Stór upp­lifun mín er að fólk sé búið að hólfa af kyn­ver­una, að hún sé ein­hver partur af okkur sem er bara vak­andi í mjög til­greindum aðstæðum og með ákveðnum aðilum. Það þýðir að það er raun­veru­lega verið að bæla hana niður stóran hluta tím­ans, og lífs­kraft­inn þar með. Svo á hún bara vakna úr dvala þegar rétta til­efnið sýnir sig, en það er kannski ekki svo auð­velt“.

Njóta kynlífs í núinu

Sýn Helgu er að að hægt sé að njóta kyn­lífs í núinu, að finna, skynja og njóta þess sem er að ger­ast núna. „Þegar full­næg­ing er aðal­mark­mið kyn­lífs er hætta á að við missum af kyn­líf­inu í kapp­inu að þeim. Kynlíf er líka svo full­komið tæki­færi til að tengj­ast og það hljómar eins og rík­ara mark­mið en full­næg­ing“

„Hvað er svo kyn­líf? Það er spenn­andi að spyrja sig að því, hvað flokk­ast sem kyn­líf hjá mér og svo spjalla um það við kyn­lífs­fé­laga. Því miður heyri ég of oft að kyn­líf hefur mjög þrönga skil­grein­ingu og á milli þess og hvers­dags­legra sam­skipta er oft lítil sem engin lík­am­leg nánd. Meira að segja er algengt að fólk sé hætt að kyssa djúsí kossa, faðma, dansa eða gefa nudd því það er orðin óskrifuð regla að það leiði til kyn­lífs, en Helga segir okkur að það sé efni í heilt auka­við­tal um sam­skipti, tján­ingu, með­virkni, mörk og fleira“.

Reynsla í að vinna með kynorku og nánd

Það sem að Helgu langar að segja við þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í þessum hug­leið­ingum er að finna hugs­unum sínum far­veg, skrif­aðu niður, finna vin sem þú getur talað við, finna þér ráð­gjafa. „Það ger­ist ekk­ert á meðan áhug­inn fær bara að hring­sóla í hug­anum“.

Það hjálp­aði Helgu mjög mikið að leita á net­inu, lesa bækur, hlusta á hlað­vörp og svo auð­vitað nám­skeið þar sem hún fékk upp­lifun og reynslu í að vinna með kynorku og nánd.

„Það er svo magnað að vinna með kynork­una því hún hreyfir við svo djúpum og oft gömlum þungum til­finn­ingum eins og skömm, ótta og sekt­ar­kennd. Krefj­andi en áhrifa­ríkt“.

„Þegar við förum að tengj­ast okkur nánar krefur það okkur um að horfast í augu við okkur sjálf, allt sem við erum, líka það ljóta og hrædda, til dæmis. Nánd snýst um að opna sig, ber­skjalda og deila sér með ein­hverjum öðrum, það er stórt verk­efni fyrir okkur flest að fella varn­irnar okkar og verða fær um djúpa nánd“.

Erfiðast í þessu ferli hefur verið að sleppa tökum á full­komn­un­ar­áráttu og kröfum á mig sjálfa, segir Helga.

„Að við­ur­kenna bresti mína og þora að sýna mínum nán­ustu allar mínar hliðar. Ég segi þora, því ótt­inn við að vera ekki lengur elskuð eða sam­þykkt var mik­ill.

Einnig var erfitt að átta mig á hversu mikið af hug­myndum mínum voru bara arf­leifð, að mín grunn­gildi og við­horf eiga ekki mikið skilt við það sem ég fékk úr upp­eldi, sam­fé­lagi og menn­ingu“.

Lestu allt um málið og meira til í brak­andi fersku helg­ar­blaði Mannlífs hér eða flettu blað­inu hér fyrir neðan: 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynlíf

Samfélagsmiðlaherferð gegn kynsjúkdómum – Lekandasmit á Íslandi ekki fleiri í 30 ár
Innlent

Sam­fé­lags­miðla­her­ferð gegn kyn­sjúk­dómum – Lek­anda­smit á Íslandi ekki fleiri í 30 ár

Ástráður – kyn­fræðslu­fé­lag lækna­nema hófu sam­fé­lags­miðla­her­ferð um kyn­sjúk­dóma í dag, í sam­starfi við Sótt­varn­ar­svið Embættis land­læknis. Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu frá Ástráði – kyn­fræðslu­fé­lagi lækna­nema, er helsta mark­mið félags­ins með sam­fé­lags­miðla­her­ferð­inni, sem ber nafnið Trúnó með Ástráði, vera þá að vekja athygli á fjölgun lek­anda­smita í sam­fé­lag­inu og ná tökum á útbreiðslu þeirra. Sjötíu pró­sent auk­ing varð á slíkum smitum milli áranna...
Dóttir Heidi Klum fann kynlífstæki móður sinnar: „Mér fannst þetta það svalasta sem ég hafði séð“
Menning

Dóttir Heidi Klum fann kyn­lífstæki móður sinnar: „Mér fannst þetta það svalasta sem ég hafði séð“

Eldri dóttir Heidi Klum fann kyn­lífstækja­skúffu mömmu sinnar og sýndi vinum sínum. Ofur­fyr­ir­sætan Heidi Klum við­ur­kenndi í við­tali nýlega að eldri dóttir hennar, Leni Klum, sem hún á með fyrr­ver­andi eig­in­manni sínum, söngv­ar­anum Seal, hafi eitt sinn fundið kyn­lífstækja­safn hennar, fyrir til­viljun, eða eins og Heidi orðar það: „Hún fann kyn­lífs­skáp­inn minn.“ Þrátt fyrir að atvikið hafi átt sér stað...
Britney lýsir kynlífi hennar og Farrell við „götubardaga“: „Slagsmál er eina orðið yfir þetta“
Menning

Britney lýsir kyn­lífi hennar og Farrell við „götu­bar­daga“: „Slagsmál er eina orðið yfir þetta“

Britney Spears líkir kyn­lífi sínu með Colin Farrell við „götu­bar­daga“, í nýrri ævi­sögu, sem beðið er með óþreyju en bókin heitir The Woman in Me. Hin 41 ára poppprinsessa, átti tveggja vikna ást­ar­æv­in­týri með írska stór­leik­ar­anum Colin Farrell árið 2003, stuttu eftir að hún hætti með Justin Tim­berlake. Britney hitti Colin í gegnum vin sinn en hún sagði að þau...
„Tantrafræðin lýsa kynlífi sem einni af grunnþörfum mannsins“
Innlentkynlíf

„Tantra­fræðin lýsa kyn­lífi sem einni af grunn­þörfum manns­ins“

„Kynorkan knýr okkur áfram, ýtir undir lang­anir og gerir okkur for­vitin um heim­inn. Kynorkan kveikir í okkur og fær okkur til að upp­götva nýjar hliðar á til­ver­unni, sér­stak­lega ef þær lofa nautn og vellíðan. Ef þessi orka er í ójafn­vægi getur það fram­kallað allskyns fíkn, lang­anir eða sjúk­dóma sem geta dregið okkur til dauða.“ Blaða­maður Mannlífs ræddi við Serafim Arnar...
Hvað myndi breytast hjá þér ef þú hlustaðir á hvað kynhvötin þín hefur raunverulega að segja?
Innlentkynlíf

Hvað myndi breyt­ast hjá þér ef þú hlust­aðir á hvað kyn­hvötin þín hefur raun­veru­lega að segja?

„Ég ákvað að rann­saka and­lega hlið kyn­lífs svo ég gæti kafað dýpra ofan þessa unaðstengdu kennslu,“ segir Birna M. Gustafs­son, kyn­fræð­ingur hjá Losta, í sam­tali við Mannlíf. Birna fer yfir ýmiss konar tækni tengda kyn­lífi, en segir að lyk­il­at­riðið sé að njóta sín. „Það getur verið erfitt að ein­beita sér að unaði þegar hug­ur­inn vill vera ann­ars staðar – stundum...
Sigga Dögg telur ýmislegt vanta upp á umræðu um BDSM: „Masterclass í valdadýnamík“
Innlent

Sigga Dögg telur ýmis­legt vanta upp á umræðu um BDSM: „Masterclass í valda­dýnamík“

Sigríður Dögg Arn­ar­dóttir kyn­fræð­ingur, eða Sigga Dögg eins og hún er alltaf kölluð, var í ein­lægu og opin­skáu helg­ar­við­tali Mannlífs um liðna helgi. Sigga Dögg hefur verið í þunga­miðj­unni á heitri og oft óvæg­inni sam­fé­lags­um­ræðu und­an­farið. Í við­tal­inu fer hún um víðan völl; ræðir þeyti­vindu sam­fé­lags­miðla, berg­máls­hella og fræðir blaða­mann um hluti tengda kyn­fræðslu, BDSM og það hvernig hún nálg­ast...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu