„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

María leiksskólastýra sýndi foreldrum trúnaðarskýrslu Barnaverndar: „Þetta eru bara opinber gögn“

María leiksskólastýra sýndi foreldrum trúnaðarskýrslu Barnaverndar: „Þetta eru bara opinber gögn“

„Þar var bara opin­ber gögn að finna eins og til dæmis skýrsla frá Barna­vernd, og skýrsla frá Reykj­ar­vík­ur­borg, heil­brigð­is­eft­ir­lit­inu varð­andi aðstöð­una í skól­anum, sem er í raun­inni eðli­legt,“ sagði María Ösp, leik­skóla­stjóri Sælukots, í við­tali við Mannlíf í dag.

Móðir barns sem var á leik­skól­anum Sælukoti sagði frá reynslu sinni í við­tali fyrr í vik­unni.

Þar rekur hún sam­skipti sín við leik­skól­ann. Móðirin segir að leik­skól­inn hafi brugð­ist eftir að grunur vakn­aði um að barn hennar hefði mögu­lega orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi af hálfu starfs­manns  leik­skól­ans.

Ekki náð­ist í stjórn­endur Sælukots við vinnslu fyrri fréttar en Mannlíf ræddi við Maríu Ösp leik­skóla­stjóra og for­stöðu­mann Sælukots í dag.

Móðirin seg­ist í við­tal­inu hafa spurt stjórn­endur leik­skól­ans hvort þyrfti ekki að upp­lýsa for­eldra um málið en það var þver­tekið fyrir það.

„Við sem fyr­ir­tæki þurfum að fylgja reglum varð­andi starfs­fólk ,við getum ekki upp­lýst alla for­eldra eða starfs­fólk um ein­stök mál. Það er bara brot á  reglum sko, það er að sjálf­sögðu ekki hægt að gera það,“ sagði María og bætti við að fylgja þyrfti slíkum reglum:

„Við getum ekki sem stofnun farið á skjön við lög og reglur varð­andi það.“

Móðir barns­ins tók málin í sínar hendur og upp­lýsti for­eldra um málið. Hún tók fram að hún hafi ekki talað um nein smá­at­riði eða ýtar­legar lýs­ingar, né hafi hún nafn­greint starfs­mann­inn.

Í kjöl­farið kallar Sælukot til fundar með for­eldra­ráði, en for­eldrar höfðu einnig óskað eftir fundi með leik­skól­anum að sögn Maríu leik­skóla­stjóra. Á slíkum fundi er farið yfir hin ýmsu mál, skóla­daga­tal, áætl­anir og breyt­ingar.

Eftir fund­inn fréttir móðir barns­ins að for­eldra­ráði hafi verið veittar ítar­legar upp­lýs­ingar um mál barns­ins. Segist móð­irin hafa velt því fyrir sér hvort um trún­aðar- eða per­sónu­vernd­ar­brot hafi verið að ræða.

María segir að á fund­inum hafi verið opin­ber gögn.

„Þar var bara að finna opin­ber gögn eins og til dæmis skýrsla frá Barna­vernd, og skýrsla frá Reykj­ar­vík­ur­borg, heil­brigð­is­eft­ir­lit­inu varð­andi aðstöð­una í skól­anum, sem er í raun­inni eðli­legt, “sagði María.

„Þetta eru bara opin­ber gögn og hver sem er getur komið og skoðað þau.“

María vildi ekki senda gögnin né sýna þau og benti á að lík­lega væri hægt að nálg­ast þau hjá borg­inni.

Blaða­maður upp­lýsti Maríu um áhyggjur móð­ur­innar á því hvort trún­að­ar­brestur hafi ekki orðið þegar for­eldra­ráð var upp­lýst um mál barns­ins. María sagði ekki svo vera:

„Nei þetta er náttu­lega bara verið að fara yfir opin­ber gögn sem eru ekki trún­að­ar­mál sko.“

Að gefnu til­efni hafði Mannlíf sam­band við Barna­vernd, Reykja­vík­ur­borg og lög­fræði­stofu.
Svör hafa ekki borist frá Barna­vernd né Reykja­vík­ur­borg.

Lögmaður sagði í við­tali við Mannlíf að mál barna hjá barna­vernd væru ávallt trún­að­ar­mál og að alvar­legt per­sónu­vernd­ar­brot væri að sýna slík gögn. Skýrslur um ein­stök mál barna væru aldrei opin­ber gögn.

María seg­ist ekki vita til þess að aðrir for­eldrar hafi kvartað yfir starfs­mann­inum sem um ræðir. Auk þess sagði hún að fundur milli barns­ins og rekstr­ar­að­ila hafi aldrei átt sér stað. En fund­ur­inn sem um ræðir má finna í frá­sögn móð­ur­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins