„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Guðný vill búa til hluti sem snerta fólk: „Ég er frumkvöðull frá náttúrunnar hendi“

Guðný vill búa til hluti sem snerta fólk: „Ég er frumkvöðull frá náttúrunnar hendi“

„Það er svo sem ekki að ástæðu­lausu að þetta kall­ast „að vera í hark­inu“. Ég hugsa að allir sem vinna við eigin vöru­hönnun hér á landi séu sam­mála um að þetta sé frekar mikið hark,“ segir Guðný Björk Pálma­dóttir, eig­andi íslenska hönn­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins FABIA.

Guðný segir í sam­tali við Mannlíf að mikið hafi gerst á und­an­förnum árum og almennur skiln­ingur sé á því núorðið að hand­verk og hönnun séu ekki sami hlut­ur­inn, þó að það fari oft saman.

Hún segir að á Íslandi sé orðið all­nokkuð um mjög flott hönn­un­ar­fyr­ir­tæki þar sem unnið sé af mik­illi fag­mennsku. Að hennar mati eru versl­anir hér á landi opnar og til­búnar að leyfa nýjum hönn­uðum að koma inn á mark­að­inn og það telur hún að sé stór kostur.

Hins vegar er íslenskur mark­aður ekk­ert sér­stak­lega stór og hver og ein verslun ekki að selja mikið magn, þannig að það tekur oft langan tíma að ná mark­aðs­hlut­deild sem leyfi að hægt sé að sinna þessu í fullu starfi.

Guðný er með vinnu­stof­una sína á Selfossi, þar sem hún er einnig með litla gjafa­vöru­verslun. En auk þess tekur hún að sér hönnun og ráð­gjöf inn­an­húss fyrir fólk og fyr­ir­tæki undir nafn­inu Pálma­dóttir, en þar áður undir nafn­inu Fabia Studio.

„Þannig næ ég að búa mér til vinnustað þar sem ég get sinnt þessu öllu og gefur af sér þannig að ég geti greitt mér laun.

En það er líka erfitt að vera með marga bolta á lofti, því að ef þú sinnir einum vel þá fá hinir ekki eins mikla athygli á meðan. En ég held að þetta sé stóra vanda­málið hjá hönn­uðum hér á landi. Það er erfitt að kom­ast á þann stað að þetta geti gefið af sér fullt starf og margar hindr­anir á leið­inni. Ég held að það glími allir við þá hugsun reglu­lega, hvort þeir eigi að halda þessu áfram eða bara ráða sig í vinnu ein­hvers staðar upp á að fá stabíl laun,“ segir Guðný.

Fabia er íslenskt hönn­un­ar­fyr­ir­tæki sem leggur metnað sinn í að fegra heim­ili með vörum úr umhverf­is­vænu hrá­efni. Allar vörur eru hann­aðar þannig að þær skilji eftir sig eins lítið umhverf­is­spor og mögu­legt er. Aðal­mark­mið fyr­ir­tæk­is­ins er að búa til eitt­hvað fal­legt en Guðný leggur einnig mikla áherslu á fram­leiðslu­að­ferð­irnar.

Hvert skref og hver þáttur í heildarferlinu er metinn út frá umhverfisáhrifum, allt frá hugmynd að veruleika. Þannig er reynt að halda kolefnisspori hverrar vöru í lágmarki.

Fyrsta form­lega varan sem fram­leidd var undir merki Fabia kom á markað í byrjun árs 2017. Síðan þá hefur fyr­ir­tækið vaxið hægt og rólega og er í dag með 16 vörur á mark­aði í 18 versl­unum víðs vegar um landið.

Guðný Björk er sem fyrr segir stofn­andi, eig­andi og eini starfs­maður fyr­ir­tæk­is­ins. Hún er menntuð á sviði hönn­unar, er með BSc-gráðu í arki­tektúr og hönnun og MSc-gráðu í nýsköpun og við­skipta­þróun frá Ála­borg­ar­há­skóla.

„Ég lifi auð­vitað og hrær­ist í þessum heimi og myndi segja að ég væri frum­kvöð­ull frá nátt­úr­unnar hendi. Mér finnst fátt skemmti­legra en að vinna að fjöl­breyttum verk­efnum og leysa þau á skap­andi og skemmti­legan hátt.“

Helstu áherslur í hennar fram­leiðslu eru að búa til fal­lega hluti sem snerta við fólki, en með umhverf­is­sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi.

„Ég passa upp á að vör­urnar mínar skilji eftir sig eins lítið umhverf­is­spor og ég mögu­lega get. Til að mynda reyni ég alltaf að fram­leiða vör­urnar hér heima, sé það hægt yfir­höfuð. Annars eru mínar vörur að mestu fram­leiddar hér heima og í Evrópu til að minnka kolefn­is­spor við flutn­ing. Allar umbúðir eru t.d. fram­leiddar hér heima. Ég kynni mér vel hrá­efnin og reyni alltaf að taka upp­lýsta ákvörðun um hvaða áhrif efni­viður og vinnslu­að­ferðir hafa á umhverfið.

Það er því miður aldrei neitt svart og hvítt í þessum málum, en ég tek alltaf upplýsta ákvörðun og vel besta kostinn hverju sinni.“

Þær vörur sem hafa fengið hvað mesta athygli er Ömmu­bolla-línan sem skartar blómum sem vaxa villt í íslenskri nátt­úru. Boll­arnir eru merktir með ártali og á hverju ári bæt­ist nýtt blóm í flór­una. Boll­arnir eru allir hvítir að utan en að inn­an­verðu ákvarð­ast lit­ur­inn af lit blóms­ins.

Hug­myndin að Ömmu­boll­anum kvikn­aði þegar Guðný missti ömmu sína árið 2018, en hún var mikil blóma­kona og Guðný elskaði að vera hjá henni í sveit­inni þegar hún var barn.

„Það var því kjörið að nýta þá teng­ingu og búa til fal­lega blóma­bolla í nútíma­legum og popp­uðum bún­ingi,“ segir Guðný.

„Svo hefur ljóðið mitt, Frá konu til konu, fengið mikla athygli. Ljóðið orti ég sem hvatn­ingu til mín, þegar ég stóð á ákveðnum tíma­mótum í líf­inu. Ég ákvað að gefa það út í von um að fleiri konur gætu nýtt sér þessi orð sem hvatn­ingu til að standa með sjálfum sér og leyfa sér að vera þær sjálfar. Þaðan kemur nafn ljóðs­ins Frá konu til konu.“

Guðný segir að það sé ótal­margt skemmti­legt við það að vera hönn­uður og það sé auð­vitað ástæðan fyrir því að fólk haldi þetta út, þrátt fyrir harkið. Hjá flestum er skemmti­leg­asti part­ur­inn að búa til og skapa eitt­hvað. Að þróa hug­mynd og sjá hana svo verða að veru­leika og þar er Guðný engin und­an­tekn­ing.

„Það er ótrú­lega gaman að vera búin að ganga með hug­mynd í mag­anum og sjá hana svo verða að veru­leika eftir alla vinn­una sem búið er að leggja í hana. Það er svo enn skemmti­legra þegar fólk kann að meta það sem þú hefur fram að færa. Þannig kemur hvatn­ingin og vilj­inn til að halda áfram og gera meira.“

Und­an­farið hefur mik­ill tími farið í að byggja upp og mark­aðs­setja Ömmu­bolla-lín­una sem nýtur sívax­andi vin­sælda. Guðný hefur verið að prófa sig áfram með íslenska ösp og á síð­asta ári setti hún á markað fjöl­nota við­ar­bretti, unnið úr ösp frá Egils­stöðum.

„Það var virki­lega skemmti­legt verk­efni þar sem ég fékk m.a. styrk­veit­ingu frá SASS í fyrra.“ Mark­hóp­ur­inn er aðal­lega konur á öllum aldri, en þær eru stærsti við­skipta­hóp­ur­inn. „Karl­arnir hafa því miður fengið aðeins minni athygli frá mér þótt þeir slæð­ist stundum með. En flestar vör­urnar eru frekar kven­legar eins og nöfnin benda til, Ömmu­bolli og Frá konu til konu.“

Næst á dag­skrá er að und­ir­búa jóla­törn­ina, fylla lag­er­inn af vörum og safna smá kröftum áður en hún hefst.

„Ég von­ast svo til þess að á næsta ári geti ég kynnt nýja vöru­línu, en það er enn þá allt í vinnslu.“

Smelltu hér til að lesa brak­andi og feskt helg­ar­blað Mannlífs eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins