„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Forsetinn heiðraði séra Pálma í kveðjumessunni: „Ekkert viss um að ég kæmist í gegnum þetta“

Forsetinn heiðraði séra Pálma í kveðjumessunni: „Ekkert viss um að ég kæmist í gegnum þetta“

Séra Pálmi Matth­í­as­son sá sunnu­dag­inn 26. sept­em­ber um sína síð­ustu messu í Bústaða­kirkju sem sókn­ar­prestur þar. „Ég var með kveðju­messu í dag klukkan eitt og það var mjög til­finn­inga­rík, hátíð­leg og ein­læg stund og komust færri að en vildu,“ segir hann seinni part­inn þann dag. „Messan var í grunn­inn hefð­bundin sunnu­dags­messa en með meiri tón­list. Það var ein­söngur Grétu Hergils, Marteins Sig­urðs­sonar og frænda míns, Krist­jáns Jóhanns­sonar. Kam­merkór kirkj­unnar söng og gamlir kór­fé­lagar sungu með. Matthías Stef­áns­son lék á fiðlu. Minn kæri vinur, Jónas Þórir org­anisti, stýrði þessu af snilld.  For­set­inn kom og heiðr­aði mig með nær­veru sinni og flutti ávarp. Mér þótti mjög vænt um það.“

Hann segir að það hafi verið kær­leikur í loft­inu sem og þakk­læti. „Þegar ég flutti predik­un­ina þá fann ég fyrir svo ein­kenni­legri og mátt­ugri kyrrð. Þetta var alveg ótrú­legt. Ég var að hugsa um það þegar ég var að tala hvers konar ofboðs­leg þögn þetta væri. Mér fannst eins og hvert orð væri með­tekið og eins og það hitti fólkið.“

Þegar ég flutti predik­un­ina þá fann ég fyrir svo ein­kenni­legri og mátt­ugri kyrrð.

Séra Pálmi lagði í þess­ari síð­ustu predikun sinni sem sókn­ar­prestur út af því ferða­lagi lífs­ins sem hófst 18. sept­em­ber árið 1977 þegar hann var vígður. „Þá lagði maður af stað í ferða­lag og taldi sig vera mjög færan til ferða­lags­ins; ungur maður, vel mennt­aður og í hörku formi beint úr íþróttum. En ég lærði það fljótt að það þarf meira til en lær­dóm og lík­am­legt form í starfi sem byggir á trú.“

Messan þennan sept­em­ber­dag árið 2021 hófst á sama sálmi og byrjað var á dag­inn sem hann var vígður fyrir ára­tugum síðan: Guðs kirkja er byggð á bjargi; það er sálmur 288. Fyrsta erindið er svona:

Guðs kirkja er byggð á bjargi,

en bjargið Jesús er,

hún er hans undra­smíði,

sem alla dýrð hans ber.

Af vatni, orði og anda

hún öðl­ast hefur líf,

og sett á öllum öldum

sem allra þjóða hlíf.

Síðasti sálm­ur­inn var einnig sá sami og í vígsl­unni, sálmur 26, Nú gjaldi Guði þökk.

Nú gjaldi Guði þökk

hans gjörvöll barna­hjörðin,

um dýrð og hátign hans

ber him­inn vott og jörðin.

Frá æsku vorri var

oss vernd og skjól hans náð,

og allt vort bætti böl

hans blessað líkn­ar­ráð.

Séra Pálmi segir að kór­inn hafi sungið til hans hlýja kveðju sem er lítið vers eftir Bjarna Stefán Kon­ráðs­son:

Megi gæfan þig geyma,

megi Guð þér færa sig­ur­lag.

Megi sól lýsa þína leið,

megi ljós þitt skína sér­hvern dag.

Og bænar bið ég þér,

að ávallt geymi

þig Guð í hendi sér.

„Þetta er ótrú­lega fal­legur texti, sem hrærði við mér þegar þau sungu þetta til mín.“

Séra Pálmi segir að til­finn­ing­arnar á þessum degi síð­ustu messunnar sem sókn­ar­prestur teng­ist fyrst og fremst þakk­læti. „Ég var svo sem ekk­ert viss um að ég kæm­ist í gegnum þetta án þess að verða klökkur og röddin myndi bresta en ein­hvern veg­inn tókst að ljúka mess­unni. Það er ekk­ert auð­velt að segja skilið við söfnuð eftir svona langa sam­fylgd og finna vin­áttu fólks í söfn­uð­inum. Ég var gíf­ur­lega þakk­látur fyrir hvað það komu margir og ekki síst hvað kom mikið af ungu fólki. Ég fann það þegar þetta var búið að ég hafði eytt mik­illi orku í að láta þetta ganga.“

Það er ekk­ert auð­velt að segja skilið við söfnuð eftir svona langa sam­fylgd og finna vin­áttu fólks í söfn­uð­inum.

Gleði og sorg

Séra Pálmi lauk emb­ætt­is­prófi í guð­fræði frá Háskóla Íslands árið 1977. Hann var sókn­ar­prestur í Mel­stað­ar­presta­kalli í Húna­vatns­pró­fasts­dæmi á árunum 1977-1981, sókn­ar­prestur í Gler­ár­presta­kalli á Akureyri 1981-1989 og sókn­ar­prestur í Bústaða­presta­kalli frá árinu 1989. Hann segir að ef prestur ætli að vera góður prestur þá þurfi hann fyrst og fremst að vera á meðal fólks­ins og sam­sama sig því í ólíkum aðstæðum í gleði og sorg. „Ef manni tekst að vera með því á því ferða­lagi sem það er á þá held ég að það sé meiri skiln­ingur á því starfi sem prest­ur­inn er að sinna.“

Séra Pálmi segir að það sem hann hafi lært af því að vera í hlut­verki prests í alla þessa ára­tugi sé fyrst og fremst að hann sé aldrei einn á ferð og að þetta sé ekki gert á hans eigin verð­leikum. „Maður gerir þetta vegna þess að það er ein­hver blessun sem fylgir og það er fyrst og síð­ast náð Guðs sem gerir mann að því sem maður er. Það er kannski fyrst og fremst auð­mýkt og þakk­læti sem maður lærir.“

Hann segir að starf sitt hafi gefið sér ómælda gleði. „Þegar ég fór upp í kirkju í morgun þá var ég jafn­glaður eins og þegar ég fór í kirkj­una á fyrsta degi. Mér hefur alltaf fund­ist þetta vera ótrú­lega spenn­andi ferða­lag og ferða­fé­lagar hafa verið góðir.“

Það er stór­kost­leg til­finn­ing að gifta fólk og sjá það leggja af stað út í lífið.

Gleði­stund­irnar tengdar starf­inu eru marg­vís­legar. Sr. Pálmi nefnir að það fylgi því ótrú­lega mikil gleði og blessun að skíra lítið barn. „Það er stór­kost­leg til­finn­ing að gifta fólk og sjá það leggja af stað út í lífið. Það er stór áfangi á lífs­leið­inni að fá að vera ferm­ing­ar­faðir barna. Í gær, laug­ar­dag, var mikil gleði í hverf­inu þegar Víkingur varð Íslands­meist­ari í fót­bolta og mér þótti rosa­lega vænt um að fá að vera á mynd með öld­ung­unum í lið­inu, Sölva Geir Ottesen og Kára Árnasyni, og vera með bik­ar­inn. Þeir spurðu hvort þeir ættu að koma með bik­ar­inn í kveðju­mess­una. Maður eins og hálf­hrekkur við þegar maður hefur skírt annan og fermt hinn og síðan far­inn að ferma og skíra fyrir þá. Þetta eru snill­ingar sem maður hefur aldrei slitið tengslin við og mér þykir afar vænt um þá.“

Sorgin teng­ist starfi prests­ins þegar til dæmis dauð­inn knýr dyra hjá sókn­ar­börnum. „Það er svo skrýtið að það fólk sem er sorg­mætt og á í mestu erf­ið­leikum er kannski það fólk sem gefur manni lang­mest af öllum vegna þess að kvikan er svo opin. Fólk er svo ein­lægt og opið í þessu ferli og það verður oft til vin­átta sem er mik­il­væg­ari heldur en allt annað. Það mynd­ast oft tengsl sem erfitt er að útskýra en maður eign­ast stundum vini fyrir lífs­tíð í gegnum erf­ið­ustu og sár­ustu augna­blikin.“

Á krossgötum

Prest­ur­inn sem hefur verið stoð og stytta margra á þeirra erf­ið­ustu tímum hefur sjálfur upp­lifað sorg og missi eins og flestir gera. „Það gengur eng­inn í gegnum lífið án þess að fara í gegnum hæðir og lægðir. Það er örugg­lega það erf­ið­asta sem maður lendir í þegar vinir eða vanda­menn lenda í erf­iðum veik­indum og missi. Þá verður þetta svo nálægt manni og þá er maður ein­hvern veg­inn öðru­vísi þátt­tak­andi heldur en sem prestur sem kemur að ein­hverju sem maður kannski þekkir ekki per­sónu­lega.“

Jú, hann segir að það séu mörg atvik í eigin lífi sem hafa verið erfið. „Það var til dæmis erfitt þegar ég missti móð­urafa minn og nafna þegar ég var ungur maður. Hann var eig­in­lega í fang­inu á mér þegar það gerð­ist og það tók á. Mér fannst samt gott þegar frá leið að það skyldi hafa verið ég en ekki ein­hver annar sem var í þessum sporum. Hann var mér sem annar faðir í líf­inu og skipti mig miklu máli. Það var blessun að eiga afa og pabba sem vini sína. Við vorum ótrú­lega miklir vinir og höfðum unnið saman; verið á sjó saman. Þeir kenndu mér margt gott í líf­inu sem ég hef notað í mínu starfi sem prestur.“

Það var blessun að eiga afa og pabba sem vini sína.

Það eru kafla­skil. Séra Pálmi stendur á kross­götum. Frítími er ný upp­lifun og hann ætlar að verja meiri tíma með fjöl­skyld­unni en hann hefur getað gert. „Þau hafa því miður oft orðið að vera til hliðar og bíða á meðan ég hef verið að sinna ákveðnum hlutum og oft hafa áætl­anir breyst vegna þess að eitt­hvað hefur gerst í mínu starfi; starfið er eig­in­lega þannig að ann­að­hvort er maður í því af heilum hug og lætur það hrein­lega ráða sér eða ekki. Það er ekk­ert hægt að segja „já“ við þennan en „nei“ við hinn. Ég hef reynt að segja „já“ við öllu og reynt að leggja mig fram. Stundum tekst það þokka­lega og stundum örugg­lega ekki. Við hjónin eigum fullt af áhuga­málum og okkur langar til þess að dvelja erlendis kannski í svo­lít­inn tíma og sjá hvernig það gengur.“ Séra Pálmi byrj­aði á sínum tíma í námi í „multi­media“ tengdu helgi­haldi og hefur hug á að klára það á Florida. „Námið gengur meðal ann­ars út á hvernig hægt er að nota þessa nýju sam­skipta­tækni í kirkju­starfi og boðun orðs­ins. Setja sem mest á skjá og tengj­ast snjall­tækjum fólks.“ Prest­ur­inn hefur gaman af því að veiða og hann segir að þau hjónin séu svo­lítið að dunda í golfi.

Séra Pálmi byrj­aði á sínum tíma í námi í „multi­media“ tengdu helgi­haldi og hefur hug á að klára það á Florida.

„Ég er fyrst og fremst þakk­látur fyrir að hafa náð þessum áfanga, verða þetta gam­all og standa á þessum kross­götum. Hver dagur lífs­ins er gjöf og ekk­ert öruggt í þeim efnum. Ég þekkti alltof marga sem hafa því miður ekki náð þessu og hafa hvatt. Ég missti til dæmis minn besta vin og jafn­aldra fyrir stuttu og mér fannst það mjög sárt. Við vorum búnir að vera vinir frá því við vorum þriggja ára og það voru fáir dagar sem við töl­uðum ekki saman.“

En er prest­ur­inn Pálmi alveg hættur eða má hann til dæmis gifta, skíra og jarða ef ein­hver leitar til hans? „Ef ein­hver hefur áhuga á því að leita til mín með eitt­hvað þá reynir maður að sinna því eins vel og maður getur. Er ekki vin­sælt í öllu í dag að kalla að maður sé „freelance?“.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kvöldviðtal Mannlífs

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síðasta skipti: „Ég er að berjast í þessu“
Menning

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síð­asta skipti: „Ég er að berj­ast í þessu“

Geir Ólafsson heldur á næst­unni sjö­unda árið í röð stór­sýn­ing­una Las Vegas Christmas Show í Gamla bíói og fer hann sem endranær á kostum ásamt hljóm­sveit Don Randi og gesta­stjörnum. Randi, sem mætir með sitt „big­band“, hefur starfað með ýmsum banda­rískum stjór­stjörnum og má þar nefna Elvis Presley, Frank Sinatra, Phil Spector, The Beach Boys, Nancy Sinatra og Michael Jackson....
Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geðræn vandamál“
InnlentKvöldviðtal Mannlífs

Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál“

„Ég var alveg svo­lítið erf­iður ung­lingur“ segir Diljá Pét­urs­dóttir söng­kona og þátt­tak­andi fyrir Íslands hönd í Eurovision 2023. „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál,“ svarar hún, í við­tali hjá Reyni Trausta­syni, aðspurð hvort hún sé trúuð og segir það helstu ástæðu þess að hún hafi hald­ist svo lengi innan kirkj­unar. Diljá byrj­aði ung að syngja í kirkjukór...
Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jólaflóðinu: „Mér finnst gaman á jólum“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jóla­flóð­inu: „Mér finnst gaman á jólum“

Feðginin Illugi Jök­uls­son og Vera Ill­uga­dóttir eru dýrkuð og dáð sem dag­skrár­gerð­ar­fólk í útvarpi. Þau eru þó að sýsla ýmis­legt annað og nú fyrir jólin er Illugi með tvö spil og þrjár bækur í jóla­bóka­flóð­inu. Eina þeirra, bók­ina Dýrin, skrif­uðu þau feðginin saman. „Við Vera tókum saman og skrif­uðum bók­ina um dýrin, ein­fald­lega af því dýr eru svo skemmti­leg og...
Trausti með tvö skemmtileg jólaspil í verslunum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Trausti með tvö skemmti­leg jóla­spil í versl­unum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“

„Hvað er ég eig­in­lega búinn að koma mér út í?“ spyr Trausti Haf­steins­son spila­út­gef­andi sig reglu­lega þessa dag­ana en hann gefur ekki bara út eitt heldur tvö íslensk borð­spil fyrir þessi jól. Spilin tvö eru Gettu betur spurn­inga­spilið og skemmtispiliið Hræri­grautur. Gettu betur og Hræri­grautur eru komin í versl­anir í tak­mörk­uðu upp­lagi. Íslensk spil hafa einmitt verið valin jóla­gjöf árs­ins...
Móðir heimilislauss manns stígur fram og krefst breytinga: „Við höfum verið með lögregluvernd“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Móðir heim­il­is­lauss manns stígur fram og krefst breyt­inga: „Við höfum verið með lög­reglu­vernd“

Á Íslandi er tals­verður fjöldi heim­il­is­lausra og lítið um úrræði fyrir þennan hóp. Fólk á öllum aldri leita í athvörf og gisti­skýli sem ætluð eru heim­il­is­lausum. Mannlíf ræddi við móður 25 ára manns sem neyð­ist til að leita í gisti­skýlið á Lind­ar­götu en þar er aðstaða fyrir 25 karl­menn. „Ég hef ekk­ert sam­band við hann nema ein­staka sinnum þegar hann...
Samúel er að gera frábæra hluti í tónlistinni: „Tónlist með mikinn persónuleika höfðar til mín“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Samúel er að gera frá­bæra hluti í tón­list­inni: „Tónlist með mik­inn per­sónu­leika höfðar til mín“

Samúel Reyn­is­son er ungur og efni­legur tón­list­ar­maður frá Hafn­ar­firði, mennt­aður píanó­leik­ari sem spilar einnig á fjölda ann­arra hljóð­færa. Mannlíf sett­ist niður með Samúel og frædd­ist um líf hans og list, en hann seg­ist njóta matar- og kok­teil­gerðar í botn og er alveg að ná tökum á inn­an­húss garð­yrkju. Samúel, segðu mér aðeins frá því hvaðan þú kemur, frá æsk­unni, námi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu